SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Blaðsíða 2
2 15. ágúst 2010 4-8 Vikuspeglar Smokkurinn, vatnsbúskapur heimsins og konur grýttar til bana. 14 Ólöf Arnalds Kolbrún fer innundir skinnið á sérstæðri tónlistarkonu, sem fékk gríð- arlega góða dóma á nýlegu tónleikaferðalagi ytra. 18 Bak við tjöldin Skapti Hallgrímsson fylgdist með fiskideginum mikla á Dalvík. 24 Gunnlaugur Briem Gunnlaugur Briem segir frá lífshlaupi og næstum dauða Mezzoforte, sólóverkefni sínu og kynnum af Nelson Mandela. 36 Heilsa Afreksíþróttakona með námskeið um mataræði og matreiðslu. 38 Hönnun Græn hugsun og sköpunargleði í gistihúsinu 1x6 í Keflavík. 42 Kvikmyndir Er James Bond dauðans matur? Lesbók 48 Bókmenntir og kartöflur Tungutak Þórðar Helgasonar. Rætt við Annie Barrows, annan höfund bókarinnar Bókmennta- og kartöflubökufélagið. 50 Vilborg Dagbjartsdóttir Skáldkonan ræðir um lífið og ljóðin. 20 Hjartans mál Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Ólöfu Arnalds. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. 32 New York Augnablikið Ferðamaður á ystu nöf við fossinn. Dettifoss í nærmynd Dettifoss steypist niður gljúfrið. Aflmesti foss Evrópu. Þ að er aldrei of varlega farið við Detti- foss sem var hrikalegur ásýndum í júl- ílok, eins og myndirnar bera með sér. Dettifoss er aflmesti foss Evrópu, 45 metra hár og 100 metra breiður. Ógnarkraftur leysist úr læðingi þegar fljótið kastast fram af gljúfurbarminum. Vissara er að fara að öllu með gát. Um síðustu aldamót lést ísraelsk kona þegar hún féll í Jök- ulsárgljúfur við Dettifoss og hafnaði á und- irlendi við fossinn. Það mun hafa verið 40 til 50 metra fall. Björgunarsveitarmenn þurftu sér- stakan búnað til að síga ofan í gljúfrið eftir henni. Að sögn kunnugra á ekki að vera hættulegt að skoða fossinn en „menn eru ansi frakkir sumir“. Það sést vel á meðfylgjandi mynd þar sem ferða- maður hefur komið sér fyrir á bjargbrún til þess að komast nær fossinum austanmegin. Ekki má miklu skeika til að fossinn standi undir nafni. Enn varasamara er að fara að fossinum vest- anmegin en þar hafa verið settir kaðlar sem eiga að halda ferðamönnum frá brúninni. Brögð eru að því að fólk láti það ekki stöðva sig. Þeim megin skellur gjarnan mikill úði á klettana svo ferðamenn þurfa frá að hverfa og ná ekki myndum. Í roki er mikill gusugangur. Og það fer upp að vestan, yfirleitt er þurrt að austan. Síðan á veturna frýs vatnið, þannig að það er ein gljá og hallandi niður. Ekki veitir af köðlum því ef menn renna af stað, stoppa þeir ekkert fyrr en niðri í gljúfrinu – eða úti í Öx- arfirði. pebl@mbl.is 14. til 29. ágúst Jazzhátíð Reykjavíkur hefst um helgina og verða viðburðir tengdir henni haldnir víðsvegar um borgina í ágúst. Fjöldi þekktra tónlistarmanna stíga á svið, innlendir sem erlendir. Meðal innlendra listamanna má nefna Hauk Gröndal, Guitar Islancio, Jagúar, Stórsveit Reykjavíkur, Moses Hightower og Ellen Kristjánsdóttur. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1990 eða síðan Norrænir jazzdagar í Reykjavík fóru fram það ár. Jassaður ágústmánuður Við mælum með … 14. ágúst til 12. september Innlendir og erlendir listamenn opna sýn- inguna Kaosmosis í Kling & Bang galleríi um helgina. Lista- mennirnir dvöldu nýlega á Flateyri og er sýningin meðal annars af- rakstur þeirrar dvalar. 15. ágúst Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Reginfirru fara fram þetta kvöld, sunnudag, kl. 22 á Venue. Þar mun sveitin flytja í heild sinni nýút- gefna plötu sína, Reginfirra. 16., 18. & 20. ágúst Sænski danshöfund- urinn Anna Asplind sýnir verkið Dance- walk á sviðslistahá- tíðinni artFart. Verkið er mjög nýstárlegt að því leyti, að það er dansverk í formi hljóðleið- angurs. Upphafsstaður þess er Hugmyndahús háskólanna. Þvottavél 1200 snúningar Tekur 6 kg 5 ára ábyrgð 89.900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.