SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Síða 4
4 15. ágúst 2010
hafi kannski tileinkað sér of neikvætt
viðhorf gagnvart smokknum þar sem
það tengir notkun hans við lauslæti. En
við viljum einmitt að kynlíf veiti okkur
gleði og ánægju og til þess að það sé
mögulegt er mikilvægt að við hugum að
okkar kynhegðun og séum ekki með
fordóma eða yfirborðshyggju sem getur
reynst mjög dýrkeypt,“ segir Sigurlaug.
Í Englandi hafa stjórnvöld gripið til
ýmissa ráða til að auðvelda unglingum
aðgengi að smokkum svo og öðrum
getnaðarvörnum. Þannig hafa samtökin
Safe, sexual health advice for everyone,
til að mynda dreift til fólks undir tví-
tugu litlu spjaldi sem það getur sett á
lyklakippuna. Með því að sýna spjaldið
fá ungmennin fría smokka en til að fá
spjaldið þurfa þau að svara spurninga-
lista á netinu eða heimsækja skólahjúkr-
unarfræðing til að tryggja nægilega
fræðslu um kynlíf og kynheilsu.
Fyrir rúmlega 20 árum vakti auglýs-
ingaherferð um notkun smokksins mikla
athygli hér á landi enda hafði umræðan
fram að því að mestu einkennst af
feimni og pukri. Í dag eru tímarnir
öðruvísi og segir Sigurlaug nú talið að
það hafi meiri áhrif að tala saman.
Þannig hafi leiðir félaga eins og Ástráðs
reynst mjög vel en forsvarsmenn þess
eru ekki mikið eldri en unglingarnir sem
þeir leiðbeina. Sama eigi við um HIV Ís-
land en forsvarsmenn þeirra samtaka
hafa rætt við krakka í efri bekkjum
grunnskóla um kynsjúkdóma og reynslu
sína af því að lifa með HIV. Þá er Sig-
urlaug sjálf í hópi þriggja kvenna sem
beita sér fyrir því að virkja samtal for-
eldra og unglinga um kynlíf með sam-
eiginlegri fræðslu foreldra og unglinga í
skólum.
O
ft hefur verið rætt um verð á
smokkum hérlendis en ríkið
setur smokka í hæsta skatt-
þrep þannig að á þeim er
25,5% virðisaukaskattur. Samkvæmt
fréttum vikunnar hefur beiðni frá Sótt-
varnaráði um ókeypis smokka fyrir ungt
fólk legið á borði heilbrigðisráðuneyt-
isins frá árinu 2004. „Það gæti verið ein
leið til að lækka smokkaverð að afnema
virðisaukaskatt þó albest væri að þeir
væru ókeypis. Ég veit að í einhverjum
löndum er smokkum útdeilt ókeypis á
heilugæslustöðum, félagsmiðstöðum og í
skólum. Þetta höfum við sótt um en ekki
enn fengið í gegn en vonandi stendur
það nú til bóta. Þangað til er mikilvægt
að við hugsum um smokkinn sem hverja
aðra forvörn, rétt eins og að spenna á sig
öryggisbeltið,“ segir Sigurlaug Hauks-
dóttir yfirfélagsráðgjafi á Sóttvarnasviði
Landlæknisembættis.
Sigurlaug telur hátt verð vissulega
geta haft sín áhrif á smokkanotkun en
þó liggi margvíslegar aðrar ástæður þar
að baki. Ungur aldur fólks geti haft þau
áhrif að fólk byrji að stunda kynlíf áður
en það sé í raun tilbúið og óöryggi geti
gert það að verkum að það noti síður
smokk. Ýmis viðhorf til smokksins hjá
hverjum og einum geta gert það að
verkum að smokkur sé ekki hafður við
hönd. Hér er t.d. hægt að nefna að fólk
telji sig sýna vantraust á hinn aðilann
við það að vilja nota smokk. Þá geti fólk
talið að hinn aðilinn sé ekki með kyn-
sjúkdóm þar sem það sjáist ekki á hon-
um. Þetta sé vitaskuld rangt þar sem yf-
irleitt séu kynsjúkdómar einkennalausir
og ekki hægt að sjá þá utan á fólki. „Út
frá umræðu um skyndikynni hvað varð-
ar smokkanotkun held ég líka að fólk
Vikuspegill
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Ábyrgðarleysi í notkun
getur reynst afar dýrkeypt
Smokkurinn eins
og öryggisbelti
Þessi maður tók málin í eigin hendur á alþjóða-alnæmisdeginum og mótmælti lé-
legri kynfræðslu í skólum Hong Kong klæddur sem smokkur.
Reuters
Samkvæmt rannsókninni heilsa og lífskjör
skólanema (HBSC) sem framkvæmd var vet-
urinn 2005 til 2006 nota 15% engar getn-
aðarvarnir, 5% reiða sig á rofnar samfarir en
2⁄3 eða 66% notuðu smokk gegn þungun og
kynsjúkdómum, miðað við síðasta skipti
sem einstaklingurinn stundaði kynlíf. Það
voru Háskólinn á Akureyri og Lýðheilsustöð
sem stóðu saman að rannsókninni af Ís-
lands hálfu en hún er hluti af alþjóðlegri
rannsókn á vegum WHO Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar. Rannsókninni var skipt í
nokkra hluta eins og reykingar, einelti og
kynlíf en misjafnt var hvaða aldurshópur
svaraði hvaða spurningum. Spurningar um
kynhegðun voru lagðar fyrir alla nemendur í
10. bekk á Íslandi en alls svöruðu 11.800
nemendur rannsókninni í heild og var svar-
hlutfall 86% en niðurstöður rannsóknarinnar
voru birtar árið 2008. Þá má geta þess að
tilvik klamidíu hér á landi hafa sveiflast
nokkuð milli ára, árið 2002 voru tilvikin
2.088 en í fyrra 2.203.
Alþjóðleg rannsókn á
kynhegðun ungmenna
Morgunblaðið/RAX
Margir muna eftir plakötum
þar sem þjóðþekktir Íslend-
ingar minntu á mikilvægi
smokksins. Smokkurinn má
ekki vera neitt feimnismál
var slagorð herferðarinnar
sem farin var árið 1986.
Herferðin vakti gríðarlega at-
hygli á sínum tíma og aflétti
þeirri feimni sem lá á orðinu
smokkur. Þjóðþekktir Íslendingar tóku þátt.
Morgunblaðið/RAX
Smokkur
ekkert
feimnismál
ódýrt og gott
Ungnauta roast beef
kr.
kg1749
Verð áður 3498 kr./kg
50%afsláttur