SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Side 6
6 15. ágúst 2010
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu í
lok júlí að aðgangur að hreinu
vatni skyldi teljast til mannrétt-
inda. Víða í heiminum er gríð-
arlegur vatnsskortur. Fá ríki búa
hins vegar jafn vel í þessum efn-
um og Ísland, sem sat hjá í at-
kvæðagreislunni.
Maude Barlow er formaður
stærstu mannréttindasamtaka
Kanada og hefur um árabil beitt
sér í umhverfismálum, þar á með-
al að aðgangur að vatni teldist til
mannréttinda.
Þýska blaðið Die Zeit ræddi við
hana eftir atkvæðagreiðsluna:
„Við verðum að fara að átta okkur
á að það er ekki ótakmarkað
framboð af vatni á plánetunni
okkar. Víða er vatn fyrir fólk á
þrotum. Við notum það til að
rækta plöntur til matvælafram-
leiðslu í þróunarríkjum þar sem
ekki er nóg af því fyrir. Þar sveltur
fólk og þjáist af þorsta í þágu okk-
ar velferðar. Við flytjum vatn í
stórborgirnar þar sem bruðlað er
með það og dælum því kerf-
isbundið úr jörðinni. Í Kína hafa
íbúar þúsunda lítilla borga og
þorpa verið fluttir burt vegna þess
að jarðvegurinn þornaði upp í ár-
anna rás. Þar blása nú vindarnir
ryki.“
Barlow segir miður hvað
ákvörðun SÞ hafi vakið litla at-
hygli í fjölmiðlum. Enn þurfi fólk í
iðnríkjunum ekki að hafa áhyggjur
af því að hafa ekki nóg vatn til að
elda og baða sig, en sá tími muni
koma að enginn staður á jörðu
verði undanskilinn vatnsskorti.
„Árið 2010 eru ekki ýkjur að
segja að skortur á aðgangi að
vatni sé mesta mannréttindabrot
veraldar,“ segir hún.
Framboð vatns er ekki ótakmarkað
Starfsmenn við Þriggja gljúfra-stífluna í Kína fylgjast með vatns-
flaumnum. Kínverjar leita meðal annars aðgangs að vatni í Afríku.
Reuters
F
jórðungur uppskerunnar í Rússlandi er í
hættu vegna þurrka, hita og elda. Til að
takmarka tjónið þarf rigningu. Þá hækk-
ar í vatnsbólum og hægt verður að vökva
ræktarland. Vandinn í Rússlandi er aðeins eitt
dæmi um mikilvægi vatns. Vatnsskortur veldur
vanda um allan heim og vandamálin verða sífellt
erfiðari viðfangs.
Maðurinn notar nú 4500 milljarða rúmkíló-
metra (km3) af vatni á ári. Um miðja tuttugustu
öldina var notkunin 1480 milljarðar km3 og hefur
því þrefaldast á 60 árum. Því er spáð að árið 2030
verði notkunin komin í 6500 milljarða km3, muni
sem sagt aukast um 44% á 20 árum.
Gríðarleg sóun er í vatnsveitukerfum heimsins.
Ónýtar leiðslur og feysknir innviðir leiða til þess
að aðeins um helmingur drykkjarvatns kemst alla
leið frá uppsprettu til neytanda. Samkvæmt grein
í þýska vikuritinu Die Zeit á þetta jafnt við um
iðnríki, sem önnur. Þekkt er að í Bandaríkjunum
fara 20% vatns til spillis á leiðinni frá uppsprett-
unni til neytandans. Landbúnaður getur verið
mjög vatnsfrekur. 70% af vatnsnotkun mannkyns
er í landbúnaði. Þar er oft lítil virðing borin fyrir
auðlindinni. Iðulega er vatn niðurgreitt og bænd-
ur fá það langt undir kostnaðarverði, sem bein-
línis ýtir undir sóun.
Vatnsforða jarðarinnar er ójafnt skipt. Víðast
hvar í hinum iðnvædda heimi er nóg af vatni, en
öðru máli gegnir um þróunarlöndin. Samkvæmt
upplýsingum Sameinuðu þjóðanna hafa 900
milljónir manna engan aðgang að drykkjarvatni.
Talið er að tvær milljónir manna deyi árlega
vegna skorts á hreinu vatni eða neyslu mengaðs
vatns. Í löndum, sem eru að nálgast lífskjör iðn-
ríkjanna, verður erfitt að uppfylla vatnsþörfina og
vatnsskortur getur staðið þróun þeirra fyrir þrif-
um.
Um 250 fljót fara á milli landamæra. Um 280
vatnsból liggja einnig á landamærum. Að sögn
Sameinuðu þjóðanna mun árið 2025 þriðjungur
íbúa jarðar búa í landi þar sem vatnsskorts gætir.
Vatn er forsenda lífs og margir hafa spáð því að
vatn verði ásteytingarsteinn framtíðarinnar og
jafnvel meginorsök stríðs á 21. öldinni. Í fyrra
komst bandaríska varnarmálaráðuneytið að þeirri
niðurstöðu að deilur um vatn yrðu á komandi ár-
um meira áberandi í alþjóðastjórnmálum.
Enn hefur þó ekki brotist út vatnsstríð, þótt
deilur um vatn eigi oft hlut að máli og átökin í
Darfur megi til dæmis að hluta rekja til viðvar-
andi skorts á vatni í vesturhluta Súdans. Vatna-
deilur valda víða spennu. Egyptar og Súdanar
hafa skipt gæðum Nílar á milli sín. 200 milljónir
manna eiga nú viðurværi sitt undir fljótinu, en
fólksfjölgunin er slík að sú tala mun tvöfaldast á
næstu áratugum. Þá hafa umsvif Kínverja í Afríku
valdið áhyggjum. Vatn er af skornum skammti í
Kína og stjórnvöld þar hafa leitað til Afríku og
keypt land til að komast að vatni og ræktarlandi
fyrir bómull og korn. Í fyrra luku þeir við smíði
Tekeze-stíflunnar í einni af þverám Nílar í Eþíóp-
íu. Það er nú stærsta stífla Afríku.
Fyrr á þessu ári gerðu Eþíópía, Kenía, Rúanda,
Tansanía og Úganda samkomulag um nýtingu ár-
innar þar sem endi er bundinn á neitunarvald,
sem Egyptar hafa haft í rúm 80 ár og veitir þeim í
raun yfirráð yfir fljótinu. Egyptar og Súdanar,
bandamenn þeirra, hafna þessu samkomulagi al-
farið. „Eina deiluefnið, sem gæti orðið til þess að
draga Egyptaland aftur út í stríð, er vatn,“ sagði
Anwar Sadat, forseti Egyptalands, fyrir 30 árum.
Nú segir Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra
Egyptalands, að Níl sé spurning um þjóðaröryggi
og til sé „rauð lína“ sem ekki verði farið yfir. Í
egypskum fjölmiðlum hafa birst vangaveltur um
hvaða hernaðaráætlunum eigi að beita brjótist út
stríð.
Vatn er deiluefni
21. aldarinnar
Vatnsþörf mannkyns mun vaxa
um 44% á næstu tuttugu árum
Þurr árfarvegur í Tanh Hoa-héraði í Víetnam. Þar geisa nú mestu þurrk-
ar í tvo áratugi. Vatnsnotkun mannkyns hefur þrefaldast á 60 árum.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Í samþykkt Sameinuðu þjóð-
anna frá 28. júlí er við-
urkenndur rétturinn til sann-
gjarns aðgangs að öruggu og
hreinu drykkjarvatni og hrein-
lætisaðstöðu sem algildum
mannréttindum, sem séu
nauðsynleg til að njóta til fulls
réttarins til lífs og mannlegrar
reisnar.
Nauðsynlegt
lífi og reisn
www.noatun.is
Nóatúni
Nýttu þér nóttina í
Verslanir Nóatúns eru
opnar allan sólarhringinn