SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Síða 10
10 15. ágúst 2010
E
itthvað virðist samviskan vera farin að naga Pál Gunnar Páls-
son, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, eftir allan þann aum-
ingjaskap sem sú stofnun hefur sýnt af sér í gegnum árin,
bæði undir hans forystu og forvera hans, þegar kemur að um-
ræðu um að stofnunin setji skorður við einokunartilburðum hinna stóru
á matvörumarkaði. Fyrst snerist umræðan um ráðandi markaðs-
hlutdeild Hagkaups og Bónuss eftir að þau fyrirtæki voru sameinuð
snemma á tíunda áratugnum og svo aftur um einokunartilburði Baugs
og 10-11, eftir að Baugur (nú Hagar) yfirtók Vöruveltuna ehf. (10-11
verslanirnar) 1999.
Samkeppnisyfirvöld, (áður Samkeppnisstofnun, nú Samkeppniseft-
irlit) hafa í áraraðir verið harðlega gagnrýnd fyrir að aðhafast ekkert,
nákvæmlega ekkert, þótt Baugs-
veldið og síðar Hagar hafi sölsað
undir sig allt upp í 60% markaðs-
hlutdeild á matvörumarkaðnum og
oft hafa samkeppnisyfirvöld
kveinkað sér undan gagnrýninni og
borið fyrir sig þær röksemdir sem
finna má í nýjasta pistli Páls Gunn-
ars Pálssonar á heimasíðu Sam-
keppniseftirlitsins: Að Samkeppn-
isyfirvöldum hafi aldrei verið fært
að gera athugasemdir við samein-
ingu Hagkaups og Bónuss, af þeirri
einföldu ástæðu að samruninn átti
sér stað örfáum mánuðum áður en
samkeppnislög tóku gildi hinn 1.
mars 1993; og að samkeppnisyf-
irvöld hafi ekki heldur haft lagalegar
forsendur til þess að grípa til íhlut-
unar vegna samruna Baugs (Haga)
og 10-11 verslananna vegna þess að
aukning markaðshlutdeildar úr
50% í 57-58% hafi ekki skipt sköp-
um; fyrirtækið hafi hvort eð er verið með markaðsráðandi hlutdeild.
Yfirklórið og aumingjaskapurinn virðast vera allsráðandi hjá sam-
keppnisyfirvöldum, þótt vissulega megi segja að það séu ekki bara þau
sem hafa sofið á verðinum, heldur einnig hið háa Alþingi.
Í töflu sem Páll Gunnar birtir með pistli sínum kemur fram að mark-
aðshlutdeild Haga í smásölu á matvörumarkaði hafi árið 2008 verið
55%, hlutdeild Kaupáss (Nóatún og Krónan) hafi verið 19%, Samkaups
15% og annarra 11%.
Í apríl 2006 fór ég til London og ræddi við breska þingmanninn Jim
Dowd sem veitti forstöðu breskri þingnefnd, sem kannaði samþjöppun
í smásölu á Bretlandseyjum. Þingnefndin hafði áhyggjur af samþjöpp-
uninni og að Tesco væri komið með 30% markaðshlutdeild. Fjórir
stærstu á Bretlandseyjum höfðu samtals um 70% markaðshlutdeild og
var þetta breskum stjórnvöldum mikið áhyggjuefni. Nefndin lagði m.a.
til að tímabundið bann yrði lagt við samruna og yfirtökum á smá-
sölumarkaðnum til þess að sporna gegn einokun og/eða fákeppni.
Dowd sagði m.a.: „Mikil samþjöppun hefur orðið og fáir stórir eru
orðnir mjög fyrirferðarmiklir á markaðnum, víða svo jaðrar við einok-
un, tvíkeppni eða í besta falli fákeppni. Þetta á ekki síst við um mat-
vörumarkaðinn, sem við höfum skoðað sérstaklega náið.“ Og síðar
sagði Dowd: „En við erum að taka sérstakan vara við og benda á að í
auknum mæli gerist það á Bretlandseyjum að góð fyrirtæki eru neydd til
þess að hætta, þau keypt upp og/eða lögð niður. Ekki vegna þess að þau
standi sig illa, veiti ekki góða þjónustu og bjóði upp á gæði heldur vegna
þess að þeir stóru hafa slíka yfirburði að þeir geta í krafti stærðarinnar
þröngvað þeim út af markaði með ýmsum meðulum sem eru ekki endi-
lega af hinu góða eða markaðnum, neytendum eða samfélaginu til
góðs.“
Hvenær ætlar Alþingi að vakna til lífsins og láta þessi má til sín taka?
Hvað með frumvarp viðskiptaráðherra sem bíður afgreiðslu þingsins?
Þurfa ekki samkeppnisyfirvöld og löggjafinn að leggjast á eitt, til þess að
hér megi tryggja að heilbrigð samkeppni ríki á matvörumarkaði, ekki
einokun eða fákeppni, þar sem sá stærsti (Jóhannes Jónsson) kemst upp
með að þrýsta á og kúga birgja smásölunnar til þess að selja sér á lang-
bestu kjörunum og montar sig svo af ofbeldinu í Kastljósi, eins og frægt
er orðið?
Er það eðlilegt að Hagar (1998 ehf.) sem eru í eigu Arion banka séu
með markaðsráðandi stöðu? Er það í lagi að maður sem var stór þátt-
takandi í að keyra hér allt í þrot, m.a. gömlu viðskiptabankana, Jó-
hannes Jónsson í Bónus, skuli vera við stjórnvölinn á 1998 í skjóli Arion
banka og ráða þar ferðinni, án þess að eiga nokkuð í því fyrirtæki? Er
það furða að það þurfi sérstaka úttekt eftirlitsnefndar með skuldaaðlög-
un bankanna á því hvernig Arion banki stóð að
skuldaskilum Haga?!
Yfirklór og
aumingjaskapur
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Jóhannes
Jónsson
Páll Gunnar
Pálsson
’
Er það furða að
það þurfi sér-
staka úttekt
eftirlitsnefndar með
skuldaaðlögun bank-
anna á því hvernig
Arion banki stóð að
skuldaskilum Haga?!
7:00 Vaknaði á undan dótt-
ur minni og kærasta. Náði að
gera smá jóga :-) Það er frá-
bært að byrja daginn á jóga.
Stundum ef ég næ ekki að sofa
nógu lengi eða vel, bjargar það
mér algjörlega að gera jóga á
morgnana. Það er eins og mað-
ur fái auka kraft.
8:00 Ég lauma mér aftur
upp í rúm og eftir smá stund
vaknar dóttir mín og segir:
„Hæ, gott að borða.“ Við fáum
okkur gott að borða, hafra-
graut með haframjólk.
8:45 Við búum í sama húsi
og amma mín sem er 85 ára.
Það er fastur liður hjá okkur að
kíkja upp til ömmu eftir morg-
unmat, „heilsa ömmu“ eins og
dóttir mín segir. Við förum öll
upp, ég, Ella og Víðir. Víðir fær
sé kaffi og spjallar um stjórn-
mál við ömmu, Ella fer í skoð-
unarleiðangur um íbúðina sem
er ansi spennandi og ég reyni
að glugga í blöðin og fylgist
með dóttur minni með öðru
auganu. Mér finnst þetta virki-
lega verðmætur tími.
9:30 Förum niður, klæðum
okkur og kíkjum út í garð að
leika og líka aðeins niður á róló
sem er beint fyrir neðan húsið
okkar.
10:30 Ég læðist síðan inn
og svara nokkrum tölvu-
póstum. Elín og Víðir fara út að
hjóla. Ég undirbý hádegismat
og reyni að laga smá til sem
gengur yfirleitt ekki vel. Hef
engan tíma til þess.
11:30 Legg af stað í vinn-
una í jógastöðina mína Yoga
shala. Alltaf gaman að koma í
vinnuna :-)
12:00 Jógatíminn hefst og
það er fullt í tíma. Virkilega
góð stemning. Allir fara sáttir
og sælir út og endurnærðir í
vinnuna. Ég finn blað á skrif-
borðinu mínu þar sem skrifuð
eru skilaboð frá Fanneyju vin-
konu minni sem býr á Ítalíu.
Hún hafði komið við á meðan
ég var að kenna. Hún er á
landinu og ég hlakka ekkert
smá mikið til að hitta hana.
13:00 Legg af stað heim.
Næst er að ná í ömmuna og fara
með hana í Kringluna til að
kaupa afmælisgjöf fyrir Birtu
frænku.
13:20 Leggjum við amma
gögg (er kölluð amma gögg því
ég gat ekki sagt Ingibjörg þegar
ég var lítil) af stað. Við finnum
fljótlega gjöfina fyrir Birtu en
skoðum okkur líka aðeins um.
Ég litast um hvort ég finni eitt-
hvað fatakyns handa mér en
eins og fyrri daginn finn ég
ekki neitt.
14:15 Komnar heim. Ég
hringi í Fanneyju og við mæl-
um okkur mót niðri í bæ. Ella
og Víðir koma með og við
hendumst út í bíl.
14:50 Vinkona mín bíður
eftir okkur niðri í miðbæ með
fjölskyldu sinni, systur og lítilli
frænku. Svakalega gaman að
hittast. Við röltum upp Lauga-
veginn. Stefnan er tekin á
Sandholt til að fá sér góðan ís.
Tíminn líður svo fljótt. Það er
svo mikið um að tala. Áður en
ég veit af er ég alveg að verða of
sein í tíma. Við leggjum af stað
til að ná í bílinn og mér er
skutlað í vinnuna.
16:30 Mysore-jógatími
hefst. Þetta eru ótrúlega vin-
sælir tímar hjá okkur. Tíminn
stendur yfir í tvo tíma. Allir
iðka saman, byrjendur og
lengra komnir. Hver og einn
gerir sína ashtanga vinyasa-
rútínu sem ég hef kennt þeim,
á sínum hraða. Ég geng á milli
og hjálpa hverjum og einum.
Þarna verður jógaiðkunin þín
svo miklu dýpri og persónu-
legri. Ég bæti síðan við æfing-
um hjá hverjum og einum eftir
því hversu líkaminn verður
opnari og sterkari. Mæli ein-
dregið með þessum tímum
sem eru mjög hefðbundnir,
eins og þeir eru kenndir á Ind-
landi.
18:30 Jógaflæðitími hefst.
Það eru nokkrir nemendur
komnir úr fríi og að utan. Alltaf
gaman að hitta fólk aftur sem
hefur verið hjá okkur áður.
Tíminn verður rólegur, djúpur
og mjúkur, en dálítill sviti.
19:45 Sníki mér far heim.
19:55 Komin heim. Mér
finnst yndislegt að koma heim
og fá knús frá snúllunni minni.
Það er búið að elda og ég fæ
mér að borða. Hátta síðan El-
ínu, burstum tennur, lesum og
syngjum.
21:00 Dóttir mín er sofnuð.
Ég væri alveg til í að sofna líka
en þarf að vinna aðeins. Það er
svo mikill undirbúningur fyrir
veturinn. Ný stundaskrá að
fara í loftið, nýr erlendur
gestakennari á leiðinni, hanna
auglýsingar með henni Önnu
minni, ný vefsíða að komast í
loftið sem hann Guðni snill-
ingur er að hjálpa mér
við … allt að gerast og ég hef
ROSALEGA góða tilfinningu
fyrir vetrinum.
11:30 Tími til að koma sér í
háttinn. Loka augunum til að
sjá fallega drauma :-)
Dagur í lífi Ingibjargar Stefánsdóttur jógakennara
Morgunblaðið/Ernir
Fjölskyldan, vinir og jóga