SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Qupperneq 13
15. ágúst 2010 13
Þ
etta er vonlaust! Við veiðum ekkert hérna. Það er
ekkert vatn í ánni,“ sagði veiðifélagi minn, sambland
af undrun og vonbrigðum í rómnum. Félaginn var
kominn alla leið frá New York til að veiða þarna með
mér og við stóðum á brúnni sem liggur neðarlega yfir ána sem
við veiddum maríulaxana okkar í fyrir tíu árum. Síðan höfum
við komið árlega þarna til veiða, í Flekkudalsá á Fellsströnd,
stundum veitt vel, stundum síður, en alltaf skemmt okkur
konunglega með
góðum hópi
veiðifélaga.
Í fyrra fengum
við þó engan lax,
enda afskaplega
lítið vatn í ánni og
hún afar heit. Nú
sáum við að það
var ennþá minna
vatn en í fyrra –
þetta yrði von-
laust.
Undrun okkar
var því nokkur
þegar við komum
í veiðihúsið og sáum að þeir sem veiddu á undan okkur náðu þó
sjö löxum á stangirnar þrjár, einkum í dýpstu hyljunum á
neðsta svæði árinnar. Í þveránni Tunguá, sem venjulega gefur
vænan hluta aflans, höfðu þó aðeins veiðst þrír laxar í allt sum-
ar – það kom þó ekki á óvart enda rann hún varla.
Haustlitir í þurru landinu
Dalirnir voru eiginlega sviðnir. Djúpu grænu júlílitina vantaði í
landið; fölgrænir, gulir og brúnir yfirgnæfandi í palettunni eins
og undir haust. Enda rigndi ekkert þarna í júlí. Og við fréttum
af því að laxar væru teknir að drepast í Borgarfjarðarám vegna
súrefnisskorts. Ekki uppörvandi tíðindi.
En veiðimenn eiga alltaf að vera vonglaðir og jákvæðir. Nei-
kvæðir veiðimenn eiga ekki að koma nálægt veiðisvæðum – ef
takan er treg er alltaf hægt að njóta náttúrunnar og þess að vera
til. Þess vegna var stöngunum skipt á svæði og menn óskuðu
hver öðrum góðs gengis. Við félagarnir byrjuðum neðst og í
djúpum hyl undir háum kletti var svo sannarlega fjöldi laxa.
Einhvern veginn hafði hann komist þangað – og kraftaverkin
gerðust þegar sól lækkaði á lofti. Þá fékk hinn bandaríski félagi
minn tvo í beit, ekki á smáflugur heldur á hálftommu Snældu í
þýsku fánalitunum. „The Mighty Snælda!“ sagði hann hróð-
ugur – enda hefur hann meiri trú á þeirri túpu en öllum öðrum
flugum sem ég hef fengið hann til að leggja fyrir laxinn á liðnum
árum.
Mættur um morguninn
Fyrra kvöldið leið og á meðan það var spjallað yfir gúllassúp-
unni í veiðihúsinu var eitthvað að gerast úti á firðinum. Stór-
streymt var og laxar voru á heimleið. Um morguninn fór það
ekki á milli mála; ekkert hafði bæst í ána af vatni, en í veiði-
stöðum sem ég hafði vaðið um kvöldið áður, til að læra betur
inn á þá ef ég veiddi í þeim aftur, voru skyndilega komnir speg-
ilgljáandi laxar. Fimmtán í einum, átta í öðrum, og á miðsvæð-
iðu voru hyljir við Gullbrárfoss og Torfunesfoss stappaðir af ný-
gengnum laxi. Tökuglöðum laxi! Þar var líka mun meira af
stórum laxi en við höfum séð á liðnum árum. Og við nutum
þess. Það var nánast ekkert vatn í ánni en laxinn náði samt að
þoka sér áfram og dreifa sér um hylji – og hann tók flugur. Bæði
smápöddur, númer 14 og 16, og Snældur. Vaktirnar fjórar gáfu
okkur 16 laxa – og annað eins slapp, því tökurnar voru iðulega
nettar.
„Ég hélt þetta yrði vonlaust,“ sagði félaginn undrandi en
ánægður þar sem við stóðum á brúnni og vorum að leggja af
stað heim. Undir brúnni lágu nokkrir silfraðir laxar – og við
vorum líka með laxa í bílnum. Þessi ferð sýndi okkur að þótt
aðstæður virðist vonlausar, þá veit maður aldrei. Laxinn getur
nefnilega tekið, þótt maður búist alls ekki við því.
Veiðipistill
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Vatnsleysi en
ekki endilega
tökuleysi
Það er fallegt við Flekkudalsá en vatnið var
ískyggilega lítið í ánni. Samt tók laxinn.
Morgunblaðið/Einar Falur
Inga Bachmann skartgripahönnuður og gull-
smiður er hönnuður skemmtilegra silfurháls-
mena, sem hún gerði í tilefni af Gay Pride. „Ég
gerði svona hálsmen fyrir nokkru fyrir samkyn-
hneigðan vin minn. Þannig kom hugmyndin upp-
haflega til. Svo datt mér í hug að það væri tilvalið
að gera nokkur men fyrir hinsegin dagana,“ segir
hún en menin verða þó ekki aðeins til á tyllidög-
um, heldur áfram. Inga, sem rekur verslunina
Hringa við Laugaveg, hafði áður gert parahálsmen
af þessu tagi nema þar var parið af sitthvoru kyn-
inu.
Hún segir menin hafa verið mikið seld sem
morgungjöf. „Fólk virðist finna sig í þessum háls-
menum.“
ingarun@mbl.is
Hinsegin hálsmen
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Þann 27. ágúst kemur út glæsilegt
sérblað um Heilsu og lífsstíl sem
mun fylgjaMorgunblaðinu
þann dag.
Í blaðinu verður kynnt fullt af
þeimmöguleikum sem í boði eru
fyrir þá sem stefna á heilsuátak og
bættan lífstíl haustið 2010.
MEÐAL EFNIS:
Ný og spennandi námskeið
í heilsuræktarstöðvum
Hreyfing og líkamsrækt
Hvað þarf að hafa í ræktina
Andleg vellíðan
Afslöppun
Dekur
Svefn og þreyta
Mataræði
Skaðsemi reykinga
Hollir safar
Fljótlegar og hollar uppskriftir
Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi efni
Heil
sa o
g líf
sstí
ll
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Heilsa og lífsstíll
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 23. ágúst.