SunnudagsMogginn - 15.08.2010, Qupperneq 44
44 15. ágúst 2010
Hljómsveitin My Morning Jacket er byrjuð að
vinna að upptökum á sinni sjöttu breiðskífu í
gamalli kirkju í heimabæ sveitarinnar, Lou-
isville í Kentucky, og segir söngvarinn Jim
James að eftir aðeins tvær vikur séu fimm
lög tilbúin. James sagði í nýlegu viðtali við
Rolling Stone að sveitin ætti eftir að taka
upp í fjórar vikur til viðbótar og að platan
væri væntanleg um mitt næsta ár. Sveitin
hefur fengið til liðs við sig upptökustjórann
Tucker Martine en hann sá t.d. um upptökur
á plötunum The Crane Wife og Hazards of
Love frá hljómsveitinni The Decemberists.
Leigja kirkju til að
taka upp nýja plötu
Ný plata frá My Morning Jacket væntanleg
um mitt næsta ár.
Thom Yorke hefur tekið ný Radiohead-lög á
tónleikum að undanförnu.
Í viðtali við BBC Radio 6 fyrr í sumar sagði
Ed O’Brien, gítarleikari Radiohead, frá því að
hljómsveitin væri við það að klára upptökur
á nýrri breiðskífu og að hugsanlega gæti
platan komið út á allra næstu vikum.
Söngvarinn Thom Yorke hefur verið dug-
legur að stríða aðdáendum sveitarinnar á
tónleikum undanfarið og leyft þeim að heyra
eitt og eitt lag af plötunni. Yorke kom óvænt
fram á Big Chill-hátíðinni á dögunum þar
sem hann spilaði lagið „Give Up The Ghost“
af væntanlegri plötu. Þetta var þó ekki í
fyrsta sinn sem Yorke spilar lagið því í mars
síðastliðnum lék hann það og tvö til viðbótar
á tónleikum í Cambridge.
Thom Yorke spilar
ný Radiohead-lög
ROKKSVEITIN Helmet reis
hvað hæst í skugga gruggbylt-
ingarinnar og náði platan
Meantime (1992) miklum vin-
sældum og sölu og myndbönd
þaðan voru góðkunningjar
MTV glápara um heim allan.
Sveitin er leidd af Page Hamil-
ton og er enn starfandi, reis upp úr
öskustó árið 2004 með plötunni Size
Matters, tveimur árum síðar kom Mo-
nochrome út og ný plata, Seeing Eye
Dog er væntanleg eftir eina og hálfa viku
eða svo. Þessar plötur eru svona og
svona, eiginlega hálfómerkilegar þannig
séð og svipaðar síðustu plötu Helmet
áður en hún lagðist í kör, Aftertaste
(1997). Fyrstu þrjár plöturnar eru hins
vegar skotheldar, sú fyrsta,
Strap it On (1990) ískrandi hrá
þar sem tappað er rækilega inn
í drullurokksstemninguna sem
lék um hið frábæra merki
Amphetamine Reptile (Jesus
Lizard, Cows o.fl.). Meantime
er einnig frábær plata en list
Helmet reis þó hæst á plötunni sem hér
er til umfjöllunar, Betty, sem út kom
1994. Snilldin við Helmet er (var?) sú að
þarna voru stuttklipptir gaurar með
rætur í nýbylgju- og utangarðsrokki að
spila myljandi þungarokk með riffum
sem best væri að lýsa sem „kremjandi“
þungum. Þessi samsláttur leiddi af sér
mikla töfra og tónninn var sleginn full-
komlega á Betty þar sem saman fór hau-
saskakandi grúv og þekkileg tilrauna-
mennska. Nægir að hlýða á
opnunarlagið, „Wilma’s Rainbow“ og
hið stórkostlega „Milquetoast“ til að
sannfærast um guðdóminn sem lúrir á
plötunni. Í síðara laginu sýnir sveitin á
sér allar sínar bestu hliðar; níðþung
bárujárnsriff, brotin upp með surgandi,
sértækum og endurgjafarríkum gít-
artónum og laginu er slaufað með ótrú-
legum trommuleik John Stanier (sem er
nú í Battles).
Platan var endurútgefin í sumar í nið-
urhalsformi. Fimm aukalög fylgja, en
þau komu upprunalega út á tvöföldu
tíutommuútgáfunni af Betty og á tólf-
tommuútgáfu lagsins „Biscuits for
Smut“.
Poppklassík: Helmet – Betty
Þegar indíboltar spila þungarokk
H
eitasta platan á Amazon.co.uk, sú
plata sem almenningur í Bretlandi
bíður spenntastur eftir og hefur
fengið flestar fyrirframpantanir er
eftir sex menn á sextugsaldri. Platan sem um
ræðir kallast The Final Frontier og er uppfull
af löngum, dramatískum þungarokkslögum
sem slaga hæglega upp í tíu mínúturnar þar
sem textarnir fjalla um konunga og stríðs-
hetjur og lögin bera titla á borð við „The Tal-
isman“ og „The Man Who Would Be King“.
Skrítið. Eða hvað?
Hljómsveitin sem um ræðir kallast Iron
Maiden og meðlimir hafa átt feril sem ungir og
upprennandi rokkarar geta ekki annað en öf-
undast út í eða það sem heilbrigðara væri tek-
ið sér til fyrirmyndar. Í þrjátíu og fimm ár (já,
þrjátíu og fimm) hafa Steve Harris, hinn
óskoraði leiðtogi sveitarinnar, og hans menn
gert nákvæmlega það sem skap þeirra hefur
boðið þeim; fylgt bjargfastri hugsjón mála-
miðlanalaust og aldrei slegið þumlung af hvað
metnað og vinnusemi áhrærir.
Nei, það er engu upp á Harris og félaga log-
ið.
Það kann líka að hljóma einkennilega en
síðasta plata Maiden, A Matter of life and
Death, var firnasterk en sú sem var þar á und-
an, Dance of Death (2003) var einslags dauða-
dans svo ég komi nú með smákerskni inn í
þetta. Eftir smávegis dýfu á tíunda áratugnum
er Blaze Bailey hélt um hljóðnemann hafa
Maiden aldrei verið vinsælli og eru orðnir eins
og Rolling Stones, stofnun sem verður ekki
haggað hvað vinsældir varðar.
Alltént, Maiden hafa í seinni tíð einbeitt sér
að lengri og „stærri“ lögum, þannig að annað
hvert lag er stórbrotin smíð a la „Rhyme of
the Ancient Mariner“. Nýja platan er enda
þeirra lengsta til þessa, rúmar 76 mínútur og
er hvert lag að meðaltali átta mínútur að
lengd.
Upptökustaðurinn var þá sögulegur,
Compass Point-hljóðverið á Bahamaeyjum
þar sem sveitin tók upp plöturnar Piece of
Mind (1983), Powerslave (1984) og Somew-
here in Time (1986) en sú fyrstnefnda er af
mörgum talin listrænn hápunktur sveit-
arinnar.
Orðrómur hefur verið á kreiki um að þessi
nýja plata verði svanasöngur sveitarinnar og
horfa menn þá m.a. til titilsins sem vísbend-
ingar um það. Steve Harris sló þó allt slíkt tal
út af borðinu í útvarpsviðtali í sumar, sveitin
myndi halda áfram að túra og taka upp og er
meira að segja búið að bóka tvenna tónleika í
Ástralíu á næsta ári.
Járnfrúin er því farin að bera nafn með
rentu í ellinni, kvikindið er með öllu ódrep-
andi að því er virðist. Er það vel …
Að eilífu, Maiden
Fimmtánda hljóðversplata Iron Maiden, The Final
Frontier, kemur út eftir helgi. Er það vel.
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is
Meðlimir Iron Maiden stilla sér upp við flug 666. Söngvarinn Brucke Dickinson sér svo um að fljúga ferlíkinu.
Fáar hljómsveitir eru jafn
meðvitaðar um að sinna
aðdáendum sínum og Iron
Maiden. Platan kemur
meðal annars út í forláta
boxi þar sem verður m.a.
að finna tölvuleikinn Mis-
sion II: Rescue & Re-
venge. Hægt er að spila
fyrri leikinn Mission I:
Search & Salvage í gegn-
um heimasíðu sveit-
arinnar.
Eddie gamli lætur ekki
að sér hæða
Hjálpum
Eddie!
Tónlist
Þegar tónlistarmaðurinn Elliott Smith dó árið
2003 skildi hann eftir sig stórt safn tónlistar
sem hann gaf út hjá fjórum mismunandi
plötuútgáfum. Annan nóvember ætlar plötu-
útgáfan Kill Rock Stars að gera upp feril tón-
listarmannsins og gefa út plötuna An Intro-
duction to … Elliott Smith á geisladisk og
tvöfaldri vínylplötu. Flest lög á safnplötunni
var að finna á fyrstu plötu Smiths, Either/Or.
En einnig verða á henni lög eins og „Needle in
the Hay,“ „The Biggest Lie,“ og „Angeles.“
Safnplata með lögum Elliott Smith verður
gefin út annan nóvember næstkomandi.
Safnplata væntanleg