Morgunblaðið - 30.01.2010, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.01.2010, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is MIKILL samdráttur varð í skattskyldri veltu fyrirtækja í mannvirkjagerð í fyrra miðað við árin á undan. Svo dæmi sé tekið má nefna að samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra nam skattskyld velta í flokki sem kallast bygging íbúðar- og at- vinnuhúsnæðis, en þar undir flokkast starfsemi stóru byggingafyrirtækjanna, rúmlega 51 milljarði í fyrra, en rúmlega 112 milljörðum árið á undan. Fyrirtækin eiga eftir að skila virðisaukaskatti fyrir síðasta uppgjörstímabil ársins 2009, tímabilið nóvember-desember. Þær upplýsingar liggja ekki fyrir fyrr en í byrjun mars og tölur um skattskylda veltu á síðasta ári eiga því eftir að hækka. Hér er ekki tekin með undanþegin velta, þ.e. vara og þjón- usta sem seld hefur verið út úr landinu. Í ein- hverjum tilvikum geta upphæðir verið tvítaldar eins og þegar stórt byggingafyrirtæki kaupir vinnu af undirverktaka, t.d. vegna raflagna. Veltan getur því komið fram hjá báðum aðilum. Ef litið er á einstakar greinar í byggingariðnaði kemur í ljós að skattskyld velta í múrhúðun var 1.816 milljónir í fyrra, en 3.718 milljónir árið á und- an með sömu fyrirvörunum um uppgjör fyrir síð- ustu tvo mánuðina í fyrra. Skráningu aðila var breytt hjá Ríkisskattstjóra þar sem Hagstofa Íslands tók upp nýja atvinnu- greinaflokkun frá 1. janúar 2008 og er því erfiðara að bera saman einstaka flokka aftur í tímann. Í flokki sem áður var færður undir liðinn pípu- lagnir má sjá að skattskyld velta hækkaði úr 6,8 milljörðum 2005 í 10,9 milljarða 2007. Árið 2008 var skattskyld velta í flokki, sem þá hét pípulagnir, uppsetning hitunar- og loftræstikerfa, tæplega 12 milljarðar 2008 og fyrstu tíu mánuðina í fyrra var veltan í þessum flokki kominn í 6 milljarða. Samdrátturinn er jafnvel enn meiri hjá arkitekt- um en þar fór hann úr rúmlega 7,3 milljörðum 2008 í 2,3 milljarða í fyrra. Skattskyldar tekjur af starf- semi verkfræðinga voru tæplega 14,8 milljarðar í fyrra, en 28,1 milljarður árið á undan. Nánast ekkert í pípunum Friðrik Ólafsson, framkvæmdastjóri Meistara- félags iðnaðarmanna í Hafnarfirði, segir að staðan sé vægast sagt erfið hjá mörgum og sérstaklega hjá þeim sem hafi verið í framleiðslu íbúðar- húsnæðis og skrifstofu- og verslunarhúsnæðis. „Í þessum geira er staðan erfiðust og þarna var stærsti hópurinn,“ segir Friðrik. „ Til viðbótar eru þeir sem voru í stærri verkefnum á vegum hins op- inbera komnir inn á þennan þunga markað.“ Friðrik segir að greinin kalli eftir því að ein- hverjar framkvæmdir fari í gang en núna virðist nánast ekkert vera í pípunum hjá hinu opinbera. Horft sé til byggingar Háskólasjúkrahúss, en framkvæmdir fari ekki í gang fyrr en eftir tvö ár að hönnun lokinni. „Hvað á að gera þangað til?“ spyr Friðrik. „Það sem vantar eru fleiri minni og millistór verkefni sem kalla á mannafla. Þegar minna er framkvæmt líða ríki og sveitar- félög fyrir minni skatttekjur. Getan verður minni til að takast á við vandann og svona keðjuverkun er hættuleg. Það geta ekki allir starfandi iðnaðar- menn í landinu farið inn á viðhaldsmarkaðinn því þó svo að húsnæði kalli eftir viðhaldi heldur fólk að sér höndum eins og ríki og sveitarfélög,“ segir Friðrik. Skattskyld velta minnkaði um helming í mörgum greinum Minni umsvif leiða til minni veltu og þá um leið minni skatttekna. Samdráttur í bygging- ariðnaði kom víða niður á síðasta ári og getan verður minni til að takast á við vandann. Byggingariðnaðurinn kallar eftir því að einhverjar framkvæmdir fari í gang Hættuleg keðjuverkun Skattskyld velta í mannvirkjagerð og hönnun Atvinnugrein Bygging íbúðar- ogatvinnuhúsnæðis Vegagerð Brúarsmíði og jarðgangagerð Undirbúningsvinnaábyggingarsvæði Raflagnir Pípulagnir,uppsetninghitunar- og loftræstikerfa Múrhúðun Uppsetning innréttinga Lagninggólfefnaog veggefna Málningarvinna Glerjun Vinna við þök 2008 2009 (til nóvember) Tölur eru í milljónum króna Listinn er ekki tæmandi 112.338 51.231 11.044 4.711 6.190 3.491 9.400 3.431 20.720 11.505 11.942 6.009 3.718 1.816 6.285 2.815 3.421 1.962 6.038 3.433 123 79 999 539  Samtök iðnaðarins tilkynntu á þriðjudag að útboðsþing yrði ekki haldið í lok janúar. Í auglýs- ingu frá SI sagði að engin at- vinnugrein hefði orðið fyrir jafn- miklum samdrætti á undanförnum misserum og mann- virkjagerð.  „Aldrei hefur verið mikilvæg- ara fyrir landsmenn að sporna gegn auknu atvinnuleysi með sókndjarfri áætlun um verklegar framkvæmdir og almenna endur- reisn atvinnulífsins,“ segir Gylfi Arnbjörnsson í fréttabréfi ASÍ.  „Kreppan byrjaði í þessum bransa áramótin 2007-8 þegar bankarnir lokuðu fyrir fjár- magnið,“ sagði Árni Jóhannsson, forstöðumaður mannvirkjasviðs SI, í samtali við Morgunblaðið í vikunni.  Hann sagði um þrjú þúsund Ís- lendinga sem starfað hefðu við mannvirkjagerð vera skráða at- vinnulausa.  „Það er alla farið að lengja eftir því að eitthvað gerist, það virðist ekkert vera framundan,“ sagði Sigríður Magnúsdóttir, for- maður Arkitektafélags Íslands. Vill sókn- djarfa áætlun Morgunblaðið/Eggert RÍKISSTJÓRNIN hefur heimilað útboð vegna breikkunar vegarkafla á Suðurlandsvegi og Vesturlands- vegi. Eftir athuganir með sérfræð- ingum sínum komust samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjár- málaráðherra að þeirri niðurstöðu að svigrúm væri innan fjárveitinga þessa árs til þessara verkefna til viðbótar þeim sem þegar er unnið að og var byrjað á árið 2009 og 2008. Þau verkefni taka bróður- partinn af fjárveitingu ársins, sam- kvæmt upplýsingum úr samgöngu- ráðuneytinu. Kostnaðaráætlun við þessi nýju verk er samtals hátt í tveir millj- arðar króna. Vegagerðin vinnur nú að undirbúningi útboðanna. Fram- kvæmdir dreifast á tvö ár, þær hefj- ast í vor og lýkur haustið 2011. aij@mbl.is Svigrúm til tveggja nýrra verkefna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.