Morgunblaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 Margar sérkennilegar vendingarhafa orðið í viðskiptalífinu. Ýmsir sem ætla mætti að hefðu átt að skolast út í hruninu hafa öðlast óvænt framhaldslíf. Ótrúlega þrautseigir auðjöfrar hafa með aðstoð banka komist í óskiljanlega stöðu. Aðstoðin virðist litlu minni en fyrir hrun.     Bankarnir, sem reknir hafa verið áábyrgð ríkisins, hafa þjónað auð- jöfrunum vel og hvorugir hafa þurft að hafa áhyggjur af að ríkisstjórnin gerði athugasemdir við gjafa- meðferðina.     Jón Ásgeir Jóhannesson, sem vill núná Högum til sín aftur út úr Arion banka, náði áður 365 út úr Lands- banka.     Nú eru sagðar fréttir af því að fjár-festar hyggist setja 1.000 millj- ónir króna inn í þetta fyrirtæki og Ari Edwald forstjóri hefur upplýst að stærstur hluti þess eigi að koma frá fjárfestum sem muni ekki hafa neitt um reksturinn að segja.     Þessir fjárfestar eiga með öðrumorðum að leggja fram fé til að Jón Ásgeir geti haldið völdum í 365. Þetta eiga þeir víst að gera vegna mikillar hagnaðarvonar.     Arion banki lætur dótturfélag sitt,Haga, að vísu dæla fé inn í 365, en getur verið að þær greiðslur séu svo rausnarlegar að fjárfestar sjái sér hag í að leggja hundruð milljóna inn í 365 án áhrifa?     Ef sú er raunin, hver er þá skýr-ingin á þessu háttalagi Arion banka? Ari Edwald Gjafameðferðin Jón Ásgeir Jóhannesson Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 1 skýjað Lúxemborg 0 snjókoma Algarve 17 skýjað Bolungarvík -3 skýjað Brussel 2 skúrir Madríd 10 heiðskírt Akureyri -6 léttskýjað Dublin 3 skýjað Barcelona 10 léttskýjað Egilsstaðir -7 léttskýjað Glasgow 2 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -2 skýjað London 4 léttskýjað Róm 7 skúrir Nuuk 2 alskýjað París 6 skúrir Aþena 15 skýjað Þórshöfn -2 snjókoma Amsterdam 3 skúrir Winnipeg -24 heiðskírt Ósló -10 snjókoma Hamborg 0 snjókoma Montreal -18 skafrenningur Kaupmannahöfn -2 snjókoma Berlín 1 snjókoma New York -7 heiðskírt Stokkhólmur -11 skýjað Vín 3 skýjað Chicago -12 skýjað Helsinki -13 snjókoma Moskva -9 snjókoma Orlando 20 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 30. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 0.10 0,3 6.20 4,3 12.42 0,2 18.46 4,0 10:14 17:09 ÍSAFJÖRÐUR 2.10 0,2 8.14 2,5 14.48 0,1 20.43 2,1 10:37 16:56 SIGLUFJÖRÐUR 4.15 0,2 10.31 1,4 16.55 -0,0 23.21 1,3 10:20 16:38 DJÚPIVOGUR 3.35 2,2 9.50 0,3 15.47 1,9 21.55 0,0 9:48 16:34 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á sunnudag Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, dálítil él á N- og V-landi, en annars skýjað með köflum. Frost víða 0 til 8 stig, en 1 til 5 stiga hiti vestast. Á mánudag Hægviðri og stöku él við strönd, en annars léttskýjað. Hiti 1 til 5 stig við S- og V- ströndina, en frost 0 til 8 stig. Á þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag Suðaustan- og austanátt og dá- lítil slydda eða rigning S-lands, en úrkomulítið fyrir norðan. Hlýnar smám saman í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-13 m/s og él með A- ströndinni og NA-til, en annars mun hægara og bjart. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum NA-lands. DREGIÐ hefur úr óflokkuðu heim- ilissorpi í Reykjavík um 20% frá árinu 2006. 185 kg mældust á hvern íbúa Reykjavíkur á liðnu ári, en 233 kg árið 2006. Áhugi íbúa á flokkun sorps og breytt neyslumunstur er líklegasta skýringin á þessari breytingu að mati umhverfissviðs. Sorphirða Reykjavíkur sótti tæp- lega 22 þúsund tonn af óflokkuðu heimilissorpi árið 2009 en árið 2008 voru rúmlega 25 þúsund tonn sótt heim. Þegar mest var árin 2006 og 2007 vó sorpið rúmlega 27 þúsund tonn í tunnum Reykvíkinga. Skýringar á samdrætti í óflokk- uðu heimilissorpi eru nokkrar að mati Sigríðar Ólafsdóttur, rekstrar- stjóra Sorphirðunnar. Sú fyrsta er að hægt er að skipta út tunnu undir almennt sorp fyrir bláa flokkunartunnu sem tekur ekki aðeins dagblöð, auglýsingapóst og tímarit heldur einnig fernur, um- búðapappír, prentpappír, sléttan pappa og karton. 2.500 bláar tunnur standa nú við heimili í borginni en það er eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík. Aðrar ástæður eru að mati Sigríð- ar endurvinnslutunnur Gámafélags- ins og Gámaþjónustunnar, sem eru við mörg heimili, breytt neysla og að fleiri einstaklingar fara nú með flokkaðan úrgang á Endur- vinnslustöðvar Sorpu en áður. Dregur úr óflokkuðu heimilissorpi um 20% Áhugi Reykvíkinga á flokkun sorps hefur aukist umtalsvert á seinni árum Morgunblaðið/Frikki Rusl Nú er meira flokkað. Milljónaútdráttur Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 1. flokkur, 29. janúar 2010 Kr. 1.000.000,- 2005 B 2130 B 19589 H 23971 B 25584 H 25729 H 26047 G 34567 H 53856 B 57210 H TIL HAMINGJU VINNINGSHAFAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.