Morgunblaðið - 30.01.2010, Page 16

Morgunblaðið - 30.01.2010, Page 16
16 FréttirALÞINGI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 12-14 ı www.reykjavik.is/fer Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í þrjár kennslu- stofur og tvo tengiganga sem flytja skal af staðnum. Hver stofa er 60 m2 og hvor tengigangur um 15 m2, samtals 210 m2. Húsin standa á lóð Korpuskóla við Bakkastaði í Reykjavík. Þau verða til sýnis fyrir væntanlega bjóðendur miðvikudaginn 3. febrúar 2010, kl. 13:00. Nánari upplýsingar um húsin og fyrirkomulag sölu eru á www.reykjavik.is/fer og í síma 411 1111. Til sölu Timburhús til brottflutnings Nýtt ráðu- neyti at- vinnuvega JÓHANNA Sig- urðardóttir for- sætisráðherra gerir sér vonir um að fljótlega verði lagt fram frum- varp á Alþingi um sameiningu ráðu- neyta í eitt at- vinnu- og nýsköp- unarráðuneyti, og það verði að lögum á vorþinginu. Jó- hanna sagði í svari við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur í Sam- fylkingunni á Alþingi í gær að enginn bilbugur væri á ríkisstjórninni í þessu efni. Það væri kirfilega neglt niður í stjórnarsáttmálanum að ráðuneyt- unum yrði fækkað úr tólf í tíu „og það sem er í stjórnarsáttmálanum hefur auðvitað ríkisstjórnin skyldur til þess að framkvæma. Báðir flokkarnir,“ sagði Jóhanna. Hún sagðist hafa hlustað á sjónarmið Vinstri grænna um að farið yrði hægar í sakirnar varðandi stofnun atvinnuvegaráðu- neytis. Sagði hún að unnið væri af fullum krafti að undirbúningi breyt- inganna í forsætisráðuneytinu og smíði frumvarps væri langt á veg komin. Jóhanna Sigurðardóttir Vinstri græn vilja fara hægar í sakir Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is FULLTRÚAR Landsbankans gátu ekki gefið fullnægjandi skýringar á fyrirætlunum um að hækka vaxtaálögur á sjávarútvegsfyrirtæki í 4% á fundi efnahags- og skattanefndar í gær- morgun, að sögn Tryggva Þórs Herberts- sonar, þingmanns Sjálfsstæðisflokksins. Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylk- ingarinnar, telur að fulltrúar bankans hafi gef- ið fullnægjandi skýringar á fundinum. „Þetta er algerlega vanhugsuð aðgerð af hálfu Landsbankans og óskiljanlegt að þetta skuli vera framlag bankans til þess að reyna að halda lífi í fyrirtækjunum,“ segir Tryggvi Þór. Hann telur að þetta muni veikja stoðir enn fleiri fyrirtækja en orðið er og auka mjög áhættu í kerfinu. „Þeir gátu ekki gefið fullnægjandi skýringar á því af hverju er verið að hækka vaxtakostn- aðinn á sjávarútvegsfyrirtækin,“ segir Tryggvi Þór. „Þeir voru spurðir að því hvort þeir hefðu farið yfir áhættuna, sem þeir væru að auka í kerfinu með þessu. Fyrirtækin geta síður stað- ið í skilum og vanskil aukast sem leiðir til þess að lánasafn þeirra versnar, sem aftur leiðir svo til þess að afskriftirnar aukast og þá þurfa þeir aftur að hækka vextina o.s.frv. Þeir voru spurðir hvort þeir hefðu gert sér grein fyrir þessum áhrifum en svörin voru loðin.“ „Hér er um að ræða eðlilega, viðskiptalega ákvörðun hjá bankanum,“ segir Magnús Orri. „Til þess að geta áfram tryggt íslenskum fyr- irtækjum erlenda fjármögnun verðum við að gera þá kröfu á bankann að hann tapi ekki á þeim viðskiptum og sé ekki að greiða með lán- unum. Kostnaðurinn sem hlytist af því yrði sendur á eigandann, sem er ríkissjóður.“ 1,1% vaxtamunur er of lítill Bankinn hefur í gegnum tíðina veitt fyr- irtækjum erlend lán með vaxtáálagi ofan á svo- nefnda LIBOR-millibankavexti. Að sögn Magnúsar Orra bentu fulltrúar bankans á að eina aðgengi bankans að erlendu fjármagni væri með 2,90% álagi ofan á LIBOR. Bankinn bendi fyrirtækjum á að ef þau vilja fá áfram- haldandi erlenda fjármögnun þá hafi hann ekki aðgang að neinu lánsfé, nema með þessu álagi. Bankinn sé rekinn á vaxtamun og í raun og veru sé ekki nægilegt að hækka vaxtaálagið í 4% því þá stendur eftir 1,1% vaxtamunur sem er of lítill til lengri tíma litið. Hafi bankinn ekki treyst sér til að ganga lengra vegna ástandsins í samfélaginu og eftir að hafa tekið tillit til skuldsetningar fyrirtækja og fjármagnskostn- aðar þeirra. Þetta sé þó ólíðandi til lengdar fyrir skattgreiðendur sem hljóti að gera þá kröfu til bankans að hann standi undir sér. Ósammála um skýringar bankans  Hækkun vaxtaálags í 4% vanhugsuð aðgerð Landsbankans að mati Tryggva Þórs Herbertssonar  Eðlileg viðskiptaleg ákvörðun segir Magnús Orri Schram  Bankinn treysti sér ekki lengra UNNIÐ er að því í tveimur ráðu- neytum að finna frekari úrræði til að létta á greiðsluvanda skuldugra heimila. Forsætisráðherra sagðist á Alþingi í gær vona að tillögur gætu litið dagsins ljós í næstu viku. Einnig væri brýnt að taka á nauðungarsöl- unum sem auglýstar hefðu verið. „Það þarf að afskrifa hjá ein- staklingum sem standa ekki undir skuldbindingum sínum, ekkert síður en hjá fyrirtækjum sem eru í mikl- um erfiðleikum,“ sagði Jóhanna Sig- urðardóttir. Það var Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, varaformaður Sjálfstæð- isflokksins, sem tók málið upp og spurði forsætisráðherra um úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Vitn- aði hún til nýlegrar könnunar fyrir ASÍ sem sýndi að af þeim sem hafa leitað sér aðstoðar í bönkunum hafa 83% ekki fengið fullnægjandi úr- lausn sinna mála að eigin mati. Hún sagði aðgerðir sem ríkisstjórnin hef- ur gripið til smáskammtalækningar. Þarf að af- skrifa lán „Handhafar valds forseta Íslands hafa gefið út svo- hljóðandi bréf […],“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra í upphafi þingfundar í gær, þegar hún las upp bréf um að Alþingi skyldi koma saman til fram- haldsfunda. Þingmenn komu saman til fyrsta þingfund- arins frá því þinginu var frestað 8. janúar. Meðal þeirra sem tóku til máls í umræðunum í gær var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokks. Morgunblaðið/Heiddi ÞINGIÐ Í GANG Á NÝ EFTIR JÓLALEYFI ÞINGFUNDUR hefst kl. 15 á mánu- dag með óundirbúnum fyrirspurna- tíma en níu þingmál eru á dagskrá. Iðnaðarnefnd fundar fyrir hádegi og fjallar um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ. Níu þingmál eru á dagskrá Áhöfnin á TF-SIF, Fokker-vél Landhelgisgæslunnar, hefur haft í nógu að snúast í vikunni í leit að ísbjörnum á Langanesi og við að skyggnast eftir hafís norður af land- inu. Farið var í könnunarflug yfir Hornstrandir í gær og þar sást ekki til neinna bjarndýra. Hafísinn hefur haldið sig á svipuðum slóðum og lítið færst nær landi. LEITAÐ AÐ HAFÍS OG ÍSBJÖRNUM Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.