Morgunblaðið - 30.01.2010, Page 27
Daglegt líf 27ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010
Stúlknakórinn Hekla hefur nú um 10
ára skeið yljað áheyrendum sínum
um hjartarætur með ljúfum söng.
Kórinn hefur undanfarin ár haldið
jólatónleika og boðið héraðsbúum til
þeirra endurgjaldslaust. Núna fyrir
jólin söng kórinn fyrir fullu húsi í
íþróttahúsinu í Þykkvabæ við undir-
leik fjögurra manna hljómsveitar. Í
tilefni af 10 ára starfsafmæli kórsins
komu margir fyrrverandi meðlimir
hans fram á tónleikunum, sem tókust
einstaklega vel.
Nína María Moravek sem er organisti
kirknanna í Odda og Þykkvabæ hef-
ur stýrt stúlknakórnum allan þennan
tíma og innt af hendi fórnfúst starf í
þágu tónlistar og ungra stúlkna á
svæðinu. Um 70 stúlkur á aldrinum
12 – 17 ára hafa verið í kórnum sam-
anlagt frá upphafi og núna eru 28
stúlkur í honum. Stúlkurnar hafa
verið duglegar við að afla fjár, t.d. til
ferðalaga og hefur kórinn farið þrisv-
ar sinnum í tónleikaferðir til útlanda.
Nína heldur líka utan um og stjórnar
barnakór 7 – 11 ára barna á svæðinu.
Nokkur umræða um framboð til
sveitarstjórnar í vor er komin af stað
í Rangárþingi ytra. Til upprifjunar
má nefna hér að í síðustu kosningum
voru boðnir fram þrír listar, D-listi
Sjálfstæðisflokks, B-listi Fram-
sóknar og óháðra og K-listi Al-
mennra íbúa. 873 kusu og voru auðir
og ógildir seðlar 22. D-listinn hlaut
428 atkvæði og 4 menn kosna, B-
listinn hlaut 357 atkvæði og 3 menn
kosna og K-listinn 66 atkvæði og eng-
an mann. D-listinn hefur því verið
með meirihluta í sveitarstjórn þetta
kjörtímabil.
Enn hafa engar ákvarðanir verið
teknar um framboðslista í vor, en D-
listi verður örugglega á dagskrá og
líklegt að B-listi verði það líka. „Nýtt
og óháð framboð“ er að þreifa fyrir
sér með áhuga fyrir lista, aðallega
með kynningu á Facebook-síðu sinni.
Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun
um prófkjör hjá sjálfstæðisfélög-
unum, en líklegt er að það fari fram
ef nógu margir eru áhugasamir um
að komast á listann.
Við þetta má bæta að nú í janúar var
lokaafgreiðsla fjárhagsáætlunar
Rangárþings ytra á dagskrá á fundi
sveitarstjórnar. Samkvæmt fund-
argerð var hún samþykkt af fjórum
fulltrúum D-listans og einum fulltrúa
B-listans, oddvita listans sem skipar
fyrsta sæti hans. Hinir tveir fulltrúar
B-listans sátu hjá við afgreiðsluna og
settu fram bókun í mörgum liðum um
ýmis atriði áætlunarinnar. Virðist því
sem svo að fulltrúar B-listans hafi
klofnað í afstöðu sinni til mála á þess-
um fundi og varla telst það góð byrj-
un á kosningabaráttu fyrir vorið.
Fyrirhugað er að hefja rekstur með-
ferðarheimilis fyrir unglinga að nýju
á Geldingalæk á Rangárvöllum, en
starfsemin þar hefur legið niðri und-
anfarin ár. Meðferðin er ætluð ung-
lingum sem glíma við alvarlegan
hegðunarvanda þegar önnur stuðn-
ingsúrræði samkvæmt ákvæðum
barnaverndarlaga hafa ekki skilað
árangri eða eru talin ófullnægjandi.
Áhersla verður lögð á þátttöku for-
eldra og fjölskyldu í meðferðinni,
þjálfun í félagsfærni og sjálfsstjórn,
nám og starfshæfni, sem og und-
irbúning fyrir heimkomu að lokinni
vistun. Um þessar mundir er Barna-
verndarstofa að auglýsa eftir for-
stöðumanni fyrir heimilið og rennur
umsóknarfrestur út þann 13. febrúar
nk.
Íbúðalánasjóður mun hafa sótt um
niðurfellingu fasteignagjalda á íbúð-
um á Hellu sem standa auðar og eru í
eigu sjóðsins, en þær munu vera hátt
í 10 talsins. Þeirri beiðni hefur verið
hafnað. Það eru einkennilegar reglur
ef Íbúðalánasjóður má ekki leigja frá
sér húsnæði sem stendur autt, en sú
mun vera raunin. Það hlýtur að mega
sveigja reglur sjóðsins að nútíman-
um, þar sem aðstæður eru þannig í
dag að sjóðurinn hefur eignast fjölda
íbúða eftir hrun. Í tengslum við þetta
vaknar sú spurning af hverju sveitar-
félagið virðist vera á fullu í gatna-
gerðarframkvæmdum við nýjar lóðir,
en nú þegar eru um það bil 30 lóðir
tilbúnar til afhendingar og engin
eftirspurn.
HELLA
Óli Már Aronsson
Morgunblaðið/Óli Már Aronsso
Nína María Moravek er organisti
kirknanna í Odda og Þykkvabæ.
Framtíðin Kvöldklæðnaður sem er í
anda vísindaskáldskapar.
Hugmyndaauðgi og
sköpunargleði voru að
venju í hávegum höfð
hjá fatahönnuðunum
John Galliano og
Jean-Paul Gaultier,
sem sýndu hátískulínur
sínar í París nú í vik-
unni. Ekki þótti
laust við að andi
vísindaskáldsögu-
myndarinnar
Avatar svifi yfir
vötnum hjá
Gaultier en
Galliano leit-
aði á vit for-
tíðar.
Fortíð og
framtíð í
hátískunni
Oddhvasst Minnir á
brjóstahaldara Gaul-
tier fyrir Madonnu.
Galliano
Pífur og
blúndur
gefa kven-
legan svip.
R
eu
te
rs
Ferðaáætlun FÍ 2010
er komin út!
www.fi.is Ferðafélag ÍslandsSKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT!