Morgunblaðið - 30.01.2010, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.01.2010, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Fréttir bárustaf því ífyrradag að tveir af þremur talsmönnum stjórnarandstöð- unnar hefðu þegið hraðferð með Steingrími Sigfússyni til að tala við bresk og hollensk stjórnvöld. Þetta átti að vera leyniferð, eins og allt sem nú- verandi ríkisstjórn kemur ná- lægt, en lak út. Viðbrögðin voru mjög athyglisverð. Hringt var í stórum stíl í fjölmiðla og spurt hvort ríkisstjórnin væri sprungin. Fólk tók eftir því að Samfylkingin var hvergi sjáan- leg. Og eins hinu að einn stjórnarandstöðuflokkurinn var ekki hafður með. Vitað er að Jóhanna Sigurð- ardóttir hefur ekki sett sig neitt inn í þetta mál og flytur um það sömu ræðuna, hvenær sem henni er gefið orðið. Auk þess forðast hún eins og heitan eldinn að eiga samskipti við út- lendinga, sem er dálítið snúið í þessu máli. Þetta hefur lengi verið vitað en það vekur samt undrun að enginn annar sam- fylkingarmaður skuli finnast sem geti látið þetta stóra mál til sín taka. Samfylkingin hefur frá upphafi talið að hér sé verið að fjalla um aðgöngumiða að ESB en ekki skuldaklafa á Ís- lendinga og það sé eðlilegt að það samband hafi sjálfdæmi um verð á miðanum. Það skýrir en afsakar ekki áhugaleysi þeirra í málinu. Á hinn bóginn er mjög óvið- eigandi að skilja þingmenn Hreyf- ingarinnar eftir og gefa þeim ekki kost á að vera með í för fyrst menn ákváðu að fara á annað borð. Þeir þing- menn skipa lögformlegan þing- flokk, sem Þráinn Bertelsson gerir til að mynda ekki, og hafa sett sig mjög vel inn í Icesave- málið og þekkja það út í æsar. Hafa þau sinnt þingmanns- skyldum sínum að því leyti mun betur en flestir þingmenn Sam- fylkingar. Formenn stjórnarandstöðu- flokkanna áttu ekki að taka þátt í þeim leik Steingríms að skilja talsmann Hreyfingar frá. Þeir eru búnir að ganga auð- mjúkir hvað eftir annað á fund Þráins Bertelssonar í stjórnar- ráðinu, en gæta ekki að hags- munum þriðja flokksins í stjórnarandstöðu, sem hefur starfað að málum af heilindum og á eigin forsendum. Stein- grímur J. Sigfússon hefur á hinn bóginn ekki sýnt stjórn- arandstöðunni neinn trúnað, fremur en öðru fólki í landinu. Hann hefur margoft haldið því fram að málstaður Íslands nyti einskis stuðnings. Eftir að lög- unum hans hafði verið synjað kom á daginn að þetta voru hrein ósannindi. Vandamálið sem kom í ljós var að málstað Íslands hafði ekki verið haldið á lofti af þeim sem báru ríkustu skyldu til þess. Steingrími er því ekki treystandi í þessu mikla máli. Vonandi kemur í ljós að eitthvert vit sé í þessu ferðalagi} Óvissuferð Ráðstefnan íKaupmanna- höfn um loftslags- mál í árslok 2009 átti að marka tíma- mót í baráttu gegn hlýnun jarðar af mannavöldum. Margur hefur barið sér á brjóst vegna þess málstaðar og þeir sem hafa talið að hlutfall full- yrðinga og sannana hafi verið sönnunum mjög óhagstætt hafa verið fordæmdir. Hefur stóri fordæmingarstimpillinn oft verið notaður. Og stjórn- málamenn, ekki síst sérstakrar gerðar, hafa hlaupið til og á tíma leit út fyrir að þeir hefðu náð að treysta tiltekinn póli- tískan rétttrúnað svo í sessi að þeir sem leyfðu sér að andmæla væru dauðans matur í pólitísku tilliti. Sífellt berast nú fleiri upplýs- ingar um að grundvallar- upplýsingar hafa verið úr lagi færðar. Hugdettur vísinda- manna verið úrskurðaðar óvé- fengjanlegar stað- reyndir og það sem verst er, gögn bein- línis fölsuð til að þjóna undir rétt- trúnaðinn. Svo ger- ir náttúran mönn- um þann grikk að láta vera að hitna í heilan ára- tug þvert á allar spár. En sumir sitja þó uppi sem milljarðamæringar, eins og Al Gore fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og mikill fjöldi vísindamanna, sem baðað hafa sig í hræðsluáróðrinum. Allt er þetta heldur dapur- legt. En síst gefur það þó tilefni til þess að menn dragi úr bar- áttu sinni gegn mengun, sóun og illri umgengni um náttúr- unnar gæði. Við skulum gleyma lukkuriddurunum sem reyndu að upphefja sjálfa sig í nafni loftslagsmálanna. Sumir slíkra eru býsna nærri okkur. En við skulum ekki gleyma skyldum okkar við móður jörð og við- kvæma náttúru hennar. Varfærin nálgun við náttúruna og bar- átta gegn mengun er jafn mikilvæg og fyrr} Margur loftslagsprédikarinn reyndist falsspámaður Ó trúlegir hæfileikar einkenna landsliðsmennina okkar í hand- bolta, sem þjóðin elskar og dáir, að ekki sé talað um dugnaðinn, kraftinn, útsjónarsemina og sjálfstraustið. En eiginleikarnir eru fleiri og ekki síður mikilvægir. „Strákarnir okkar“ sem Jón Hjaltalín Magnússon, þáverandi formaður HSÍ, nefndi svo á sínum tíma hafa veitt okkur eyjar- skeggjum óteljandi gleðistundir. Forfeður mínir muna eftir Ingólfi, Gunnlaugi og Bigga Björns, ég las um Geir, Axel og Björgvin (og sá pínulítið til þeirra í svart-hvítu) en upplifði svo með eigin augum snillingana sem í það kjölfar fylgdu; Alfreð, Kristján Ara, Þorgils Óttar og alla þá góðu drengi sem urðu í sjötta sæti á Ól- ympíuleikunum í Los Angeles 1984 og í sama sæti á heimsmeistaramótinu í Sviss tveimur árum síðar. Þetta var liðið sem klikkaði á ÓL í Suður-Kóreu 1988 en hlaut uppreisn æru strax í ársbyrjun 1989 með sigri í B- keppninni í Frakklandi, sællar minningar. Íslendingar héldu þá sumir hverjir að strákarnir okkar hefðu orðið heimsmeistarar en þótt sú hafi ekki verið raunin var liðið frábært í þeirri keppni og úrslitaleikurinn gegn Pólverjum stórbrotinn. Ógleymanlegur flestum sem staddir voru í Bercy höllinni í París þann dag. Ekki var síður gaman að fylgjast með landsliðinu á Ól- ympíuleikunum í Barcelona 1992 þar sem það komst í fyrsta skipti í seilingarfjarlægð frá verðlaunapeningum. Ís- lendingar léku við Frakka um bronsverðlaun en áttu því miður aldrei möguleika, en fjórða sætið var samt sem áður besti árangur íslensks lands- liðs frá upphafi vega. Stórt skref þrátt fyrir allt. Nokkrum árum síðar fór þjóðin aftur á annan endann þegar landsliðið varð í fimmta sæti á heimsmeistaramótinu í Japan, 1997, og fimm ár- um eftir það urðu strákarnir í fjórða sæti á EM í Svíþjóð. Vart þarf að nefna annað sætið á Ólympíu- leikunum í Kína í hitteðfyrra. Í Kumamoto í Jap- an vannst síðasti leikur mótsins og Íslendingar urðu því í fimmta sæti en ekki því sjötta. Í Barcelona og Peking urðu strákarnir hins vegar að sætta sig við tap í lokin og það voru vonbrigði – en þau breyttust á svipstundu í stolt, þjóðar- stolt, eftir afrekið í Kína. Þjáð þjóð stendur sem sagt í mikilli þakkarskuld við landsliðið nú og ekki í fyrsta skipti. Leikmennirnir allir, Guðmundur þjálfari og aðrir að- standendur liðsins eiga hrós skilið og ekki bara fyrir góðan handbolta heldur framgöngu alla, hvernig sem síðustu leik- irnir fara um helgina. Fjögur bestu lið heimsins eru svo jöfn að getu að ómögulegt er að spá um úrslit. En hvernig sem fer um helgina skyldi þjóðin hafa í huga þá eiginleika sem enn eru ónefndir; samtakamáttinn sem er svo áberandi innan vallar og auðmýktina sem kemur berlega í ljós í viðtölum við hetjurnar. Þessir þættir geta skipt sköpum, ekki bara inni á handboltavelli heldur í lífi þjóðar. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Auðmýkt og samtakamáttur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Loðnuvertíðin gæti gefið átta milljarða FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is H afrannsóknastofnun lagði í gær til að leyfðar yrðu veiðar á 130 þúsund tonnum af loðnu í vetur. Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, ákvað í framhaldinu að heimila veið- ar á því magni, en þar af koma rúm 90 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa samkvæmt ákvæðum samninga við önnur lönd um nýtingu stofnsins. Í tilkynningu frá ráðuneytinu seg- ir að umrætt magn geti svarað til um 10 milljarða króna verðmæta í út- flutningi. Þar segir ennfremur að ráðherra leggi áherslu á að veiðum og fullvinnslu þessa afla verði hagað með þeim hætti, að sem mestur þjóðhagslegur ábati skapist. Fyrsta loðnuskipið, Vilhelm Þor- steinsson, er þegar komið á miðin og aðrir gætu hafið veiðar næstu daga. Útgerðarmenn munu fylgjast náið með hrognafyllingu loðnunnar og reyni að veiða hana þegar hún er verðmætust. Þeir sem rætt var við í gær fögnuðu úthlutuðum kvóta og sögðust bjartsýnir á að meira fynd- ist af loðnu. Þeir bentu á að sum árin hefði loðna ekki fundist fyrr en undir lok febrúar. Loðnuvertíð hefur oft staðið fram yfir miðjan mars. Útgerðarmenn giskuðu á að út- flutningsverðmæti þeirra 90 þúsund tonna sem koma í hlut Íslendinga yrði yfir 8 milljörðum króna. Verð á loðnuafurðum er hátt um þessar mundir og gengið hagstætt útflutn- ingsgreinum. Norðmenn munu væntanlega bæði frysta loðnuhrogn og loðnu fyrir Japan í vetur og með auknu framboði muni verðin frá því í fyrravetur lækka. Þá var lítið fram- boð og verð í hæstu hæðum. Fær- eyingar og Grænlendingar landa sínum afla líklega hér. Áfram verður fylgst með hegðun og göngum loðnunnar og fylgist Árni Friðriksson næstu daga með göngunni djúpt út af Suðaustur- landi. Fyrsta gangan gæti á næst- unni þétt sig og komið upp á grunn- ið. Metið verður eftir helgi hvort Súlan verður send til leitar á ný. Loðna á stóru svæði Rannsóknaskipið Árni Friðriks- son hefur verið við mælingar á stærð loðnustofnsins frá því 5. janúar sl. og aðstoðaði Bjarni Sæmundsson við mælingarnar dagana 5.-12. janúar. Áætluð stærð hrygningarstofns loðnu samkvæmt þeirri mælingu var 355 þús. tonn. Ekki náðist þó að kanna allt fyrirhugað leitarsvæði sökum íss sem var fyrir vestanverðu Norðurlandi. Því þótti mikilvægt að endurtaka mælingar. Dagana 22.-29. janúar var Árni Friðriksson við mælingar á stærð stofnsins úti fyrir Austur- og Norð- urlandi, ásamt Súlunni EA sem ver- ið hefur til aðstoðar við kortlagningu loðnu á svæðinu. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd fannst loðna allt frá svæðinu út af Austfjörðum, norð- ur um, allt að 18°V. Alls mældust 348 þús. tonn af hrygningarloðnu á þessu svæði. Að teknu tilliti til þessara mæl- inga er hrygningarstofn loðnu áætl- aður um 530 þúsund tonn, en gild- andi aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar, segir í frétt frá Haf- rannsóknastofnun. Mælingar á stærð loðnustofnsins Ísland Súlan EA Rs. Árni Friðriksson Dagana 22.-29. janúar 2010 Loðnuvertíð skiptir marga miklu máli og því var 130 þúsund tonna loðnukvóta fagnað víða í gær. Þau 90 þúsund tonn sem koma í hlut Íslendinga gætu fært þjóð- arbúinu yfir átta milljarða króna. Af úthlutuðum loðnukvóta koma rúmlega 90 þúsund tonn í hlut ís- lenskra veiðiskipa. Tæp 40 þúsund tonn koma í hlut Norðmanna, Grænlendinga og Færeyinga á grundvelli fyrirliggjandi samn- inga. Föst skipting er samkvæmt loðnusamningi milli Grænlands, Ís- lands og Noregs og koma 11% í hlut Grænlendinga, 8% í hlut Norð- manna og Íslendingar fá 81% af heildaraflamarki. Á grundvelli tví- hliða samnings milli Íslands og Færeyja fá Færeyingar 5% afla- marksins. Í sérstökum Smugu- samningi eða Barentshafssamn- ingi, sem er sérstakur þríhliða samningur Íslands, Noregs og Rússlands, er kveðið á um þorsk- veiðar Íslendinga í norskri lögsögu í Barentshafi gegn loðnu í íslenskri lögsögu. Gagngjaldið fyrir þorsk í Barentshafi í fyrra er 18.031 tonn af loðnu í íslenskri lögsögu.  Íslendingar 90.779 tonn.  Norðmenn fá 28.431 tonn.  Færeyingar fá 6.500 tonn  Grænlendingar 4.290 tonn (Hluti afla Grænlendinga kemur aftur í hlut Íslands með tvíhliða samningi við ESB.) ÁKVEÐIN SKIPTING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.