Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1984, Qupperneq 5

Skólablaðið - 01.03.1984, Qupperneq 5
Rússneskt eftirllt í Cösu. Skólayfirvaldið hefur hert mjög eftir- lit innan veggja skólans, so maður getur ekki lengur á krumpaðan koll klappað í Cösu, þegar líða tekur á daginn. Keðju- hundar (borgaralega klæddir) rektors eru sífellt og stöðugt á vappi þar í kjall- aranum, svífa á mann fyrirvaralaust og yfirheyra mann síðan, spyrja mann ber- an, vegna þess að maður gerist svo ó- forskammaður að vera þarna niðri. Skora ég á skólayfirvaldið að fá bara lögguna margrómuðu til þessa starfs, enda skammast kennaragreyin sín niður í rass og rófu fyrir að leysa þetta starf af hendi. Annars fattar ekki nokkur hræða til hvers skólayfirvöld hafa eftir- lit með mannaferðum í Cösu — skitur- inn og drullan þar niðri ættu að vera fullgóð til þess að halda öllum fjarri. Á ræðukeppni M.R. og M.H. í jan- úar kom fram maður sem margir þekkja, nefnilega Andrés „Jimmy Page???“ Magnússon. Andrés flutti ekki ræðu í þetta skiptið heldur tónlistargjörning ásamt hljómsveit sinni „Zorba the Creep“. Ekki er hægt að segja annað en áhorfendur hafi sýnt viðbrögð (um viðbrögðin hafði Andrés þetta að segja: ÞessirSO/* geta farið til fyrir mér. Þetta eru allt saman tt+c‘2'. Tónleikarnir voru hljóðritaðir og mun sú hljóðritun koma út á plötu áður en langt um líður. Platan mun bera nafnið: „Booed off stage at Háskólabíó“. Ja, Jesús Kristur, er það eina sem ég get sagt, og ég er handviss um að hann er sammála mér að ræðukeppnir fram- tíðarinnar eru eitt það leiðinlegasta uppánauðgunaratriði sem þekkist, klin nauðgun hefði jafnvel verið skárri og er ég þó karlmaður. Þeir sem höfðu haft vit á því að drekka sig út úr heiminum fyrir „skemmtidagskrána" í Gamla Bíói ældu og spúuðu, þegar hinn löngu uppskrapaði, uppþornaði og klígjugjarni ræðukeppnisorðaforði uppstrílaðra pabbadrengja gubbaðist yfir liðið, sem stendur í þeim ofsa djúptæka reginmis- skilningi að þetta sé kúltúr. Samt virt- ust þessar andlega þækluðu ræður kitla hinn heilatognaða húmor sumra M.R.- inga. Engin furða þótt menn dundi sér við sjálfsmorð í frístundum. Hins vegar sendi ég Illuga og grísliðinu þakkir fyr- ir ágætt framtak. í annan stað sendi ég þeim mönnum, sem eru orðnir fer- tugir í hugsun, löngu áður en þeir ná tvítugsaldri, grafalvarlegar kveðjur, sjá- umst brátt á Grund. 5

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.