Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1984, Síða 36

Skólablaðið - 01.03.1984, Síða 36
En hann hafði starfað lengi að list sinni og unnið markvisst að því að festa sig í sessi. Þetta hafði verið löng og ströng barátta, en hann hafði ætíð tek- ið myndir sínar fram yfir allt annað. Einkalíf hans bar þess einnig merki. Tvö gersamlega misheppnuð hjónabönd voru augljósustu dæmin. Clive hafði oftast verið of önnum kafinn til að mega vera að því að lifa með konum sínum. Þegar hann var að vinna að einhverju, komst ekkert annað að. Hann gerði sér fulla grein fyrir því, að hann hafði vanrækt eiginkonur sínar, en ferill hans sem lista- manns var honum miklu meira virði. Þegar Clive hafði sökkt sér niður í vinnu og hafði ekki áhuga á samræðum, sleppti hann því alveg að tala og sýndi eigin- konunni ótrúlegt fálæti. Þannig liðu oft heilu dagarnir, án þess að eitt ein- asta orð væri sagt á heimilinu. Clive kom aðeins fram til að borða og hvarf síðan aftur inn í vinnustofu sína, vitandi að konu hans mislíkaði tómlæti hans. En hún var horfin úr huga hans eftir nokkur pensilför. Með árunum hafði hann þróað með sér þann eiginleika að geta lokað sig algerlega af fyrir öllum truflandi áhrifum. Clive óttaðist óvið- komandi áhrif á líf sitt, og hann hrædd- ist ekkert meira en að of sterkur per- sónuleiki myndi rugla hugsanagang hans. Veröld hans var byggð upp af ótal smáum hlutum, sem hann virti og veittu honum gleði. Þeir voru flestir tengdir honum sjálfum með einhverjum hætti, og því var hann í rauninni oftast að hugsa um sjálfan sig. Clive dáði eng- an mann, hvorki lífs né liðinn. Hann vissi sem var, að flestir hæfileikamenn eru miklir persónuleikar, og vissi af reynslunni, að ef hann las of mikið um eða eftir t.d. einhvern rithöfund, fóru skoðanir og viðhorf þessa höfundar að hafa áhrif á hann. Clive fannst eins og hann tæki að hegða sér í samræmi við eða til að þóknast lífsskoðunum ein- hvers annars og um leið að efast um eigin viðhorf. Þetta olli honum ólýsan- legri vanlíðan, og eftir því sem hann varð eldri, fór hann að forðast að kynn- ast of náið lífsmynstri listamanna jafnt sem annarra svo mjög, að það jaðraði við ofsóknarbrjálæði. En Clive varð að vera viss um að hann og verk hans væru ólík öllu öðru. Það var vissan um að hann væri einstakur, sem oft hafði verið eina haldreipi hans, þegar þunglyndið helltist yfir hann, því að sorg snillinga hlýtur tilgang og verður falleg, þegar fólk les um hana síðar meir. Þetta nægði til þess að halda sálarskipi hans á floti og knúði hann jafnframt til þess að ná takmarki sínu sem listamaður. Ef hann næði því ekki, yrði allt líf hans hlægilegur eltingarleikur við tálsýn miðlungsgóðs málara. Clive hafði eitt sinn dreymt að hann læsi viðtal við er- lendan myndlistarmann. Eftir því sem hann las lengur, rann það upp fyrir honum, að þessi maður mat hlutina á sífellt líkari hátt og hann sjálfur. Að lokum var svo komið að Clive las spurn- ingar spyrjandans og gat síðan vitað nákvæmlega hvernig svarið yrði. Hann fylltist skelfingu, því að þessi maður var alger tvífari hans í hugsun. Clive sá að nú var hann ekki lengur einstakur og því var allt líf hans og öll verk hans einskis verð. Hann hryllti við þessum skelfilegu örlögum og vaknaði með hræðilegum öskrum. Og hvílíkur fegin- leiki hafði ekki gagntekið hann þegar hann gerði sér grein fyrir því að ótti hans hafði aðeins fengið útrás í draumi. Clive hafði unnið sleitulaust og eftir því sem árin liðu, varð nafn hans meira metið, samtímis því að nöfn jafnaldra hans úr málarastétt hljómuðu sífellt verr. Nú var hann 45 ára gamall, viðurkennd- ur sem sérstæður Iistamaður, sem alltaf færi eigin leiðir. En allt til þessa dags var hann talinn óskiljanlegur af alþýðu manna. Fólk skildi ekki hugarheim hans og gat því ekki fyllilega áttað sig á hverju myndir hans byggðust. En allir þekktu nú nafn hans, og enginn þorði að lýsa yfir opinberlega að honum lík- aði ekki við list Clive Warners, vegna þess hve virtur hann var nú orðinn. Þó vissi Clive, að fáir kunnu að meta hann heils hugar — því bar lítil sala glöggt vitni. Hve oft hafði hann ekki viljað fá tækifæri til þess að koma sjónarmið- um sínum opinberlega á framfæri til að gefa fólki innsýn í flókinn hugarheim sinn? En hann var ófáanlegur til þess að skýra út myndir sínar í stuttum sjón- varpsviðtölum, að þurfa að benda á einhvern hluta myndar og segja hvaða tilfinningar sá blettur ætti að vekja. Clive hafði oft séð aðra listamenn gera þetta, og hann sá hve fáránlegt og nið- urlægjandi það var. Fólk yrði að skilja verk hans út frá honum sjálfum, og þannig yrði persónuleiki og list hans ó- aðskiljanleg. Þegar listunneridur kæmu auga á hin fíngerðu tengsl, sem tengdu þessa tvo þætti saman, myndu þeir upp- götva heim hans, ferskan og ómengað- an af öllu öðru. 36

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.