Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1984, Síða 44

Skólablaðið - 01.03.1984, Síða 44
Um ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur Ingibjörg Haraldsdóttir heitir skáld, ungt skáld (fædd árið 1942) og ekki mjög þekkt, varla heimsfræg á íslandi, hvað þá annars staðar. En það er sem betur fer ekki mælikvarði á skáldskap. Ég veit satt að segja ekki hvað Ingi- björg á sameiginlegt með hvaða skáldum af sinni kynslóð né undir áhrifum frá hverjum hún er og annað sem tíðkast að tína til um skáld, og þó að ég geti e.t.v. séð upp úr hvaða „félagslega raun- veruleika“ ljóð hennar eru sprottin, skiptir það ekki mestu máli hér, ljóðin hennar eru falleg, þau eru sérkennilega opin og einlæg, og þau sýnast ekki, held- ur eru. Ingibjörg hefur gefið út tvær bækur: Þangað vil ég fljúga, sem kom út árið 1974, og Orðspor daganna, árið 1983, en hér verður einkum fjallað um ljóð úr seinni bókinni. Báðar bækurnar má lesa sem ævisögu höfundar í ljóðum. Ingjbjörg hóf reyndar feril sinn í Skóla- blaði MR, en héðan brautskráðist hún 1962. Eftir það lærði hún kvikmynda- leikstjórn í Moskvu í nokkur ár og flutt- ist þaðan til Kúbu, en hefur verið búsett hér á landi síðan 1975. Það er táknrænt, að fyrsta ljóð fyrri bókarinnar nefnist Upphaf og er svona: Ég fœddist í gráu húsi í bláhvítu landi viðysta haf einn októberdag fyrir löngu. ílandinu því var skógur mikill og forn og dimmur og draugar riðu þar hjá. Á kvöldin kom fuglinn ífjörunni og söng mér ódáinsljóð meðan öldur brotnuðu á klettum. Um húsið fórgustur af sögum og lygasagan um heiminn og mig hófst þar einn októberdag... Og síðan hefur lygasagan haldið á- fram og tekið á sig ýmsar myndir. Hún tekur á sig myndir úr lífi barns á fimmta áratugnum í Reykjavík, barns, sem býr í kjallara á Snorrabrautinni og á sér þar mömmu, pabba og lítinn, slefandi bróður og vill fá að vita hvað verkfall er. Seinna er barnið orðið útlendingur i framandi landi, kona í undarlegum heimi. Fyrri bókin, Þangað vil ég fljúga, má segja að sé fullt af heimþrá, enda hafði höfundur verið lengi búsett utanlands þegar bókin kom út. En þar er að finna ljóð sem er eins konar stefnuskrá þrátt fyrir fánýti og einmanaleika, stefnuskrá um líf og ljóð: EFTIRMÆLI Minn síðasti dagur mun líða að kvöldi sem aðrir dagar. Sólin mun setjast og fólk mun ganga til svefns og kannski verður einhverjum einhvers staðar að orði: Hún Inga dó í dag og annar mun spyrja: Hver var hún, hvað gerði hún? Og mœtti ég ráða svörum þann dag myndi ég segja: Þótt dagar hennar yrðu stundum hver öðrum líkur þessi sama brennandi sól í hvirfilpunkti á hádegi og kvöldin með jasmínangan úr garðináungans og annarra manna börn að leikjum á götunni og einveran köld og stingandi angistarfull heimþrá. Þrátt fyrir þetta gat hún glaðst yfir litlu eins og barn sem skilur allt. 44

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.