SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Qupperneq 6
6 30. janúar 2011
Eftir að útdráttur úr bókinni birt-
ist í byrjun mánaðarins hafa öll
spjót staðið á Chua. Hún hefur
fengið líflátshótanir, hundruð
tölvupósta og yfir 5.000 manns
skrifuðu athugasemdir við út-
dráttinn á heimasíðu The Wall
Street Journal, þar sem hann
birtist. Þar fyrir utan eru ótelj-
andi bloggfærslur, fésbókarsíður
og netumræður þar sem Chua er
lýst sem skrímsli og geðsjúkl-
ingi.
Sérstaklega hafa skrif Chua
vakið viðbrögð meðal barna as-
ískra foreldra sem hafa beitt
öfgafullum uppeldisaðferðum.
„Foreldrar eins og Amy Chua eru
ástæða þess að við asíuættaðir
Bandaríkjamenn göngum til sál-
fræðings,“ sagði einn. „Mig hryll-
ir við því að hún hangi enn í þess-
um aðferðum sem flest okkar eru
að reyna að brjótast undan,“
skrifar önnur. Í myndbandi sem
gengur á YouTube er niðurstaðan
sú að Chua sé sama þótt börnin
hennar vaxi úr grasi vansæl og í
uppreisn, svo lengi sem bókin
seljist vel. Þá rifjar ein konan
upp hvernig systir hennar varð að
hinni fullkomnu asísku dóttur,
líkri þeim sem Chua vill ala upp,
aðeins til að falla fyrir eigin hendi
þar sem hún var of óttasleginn til
að láta sína nánustu vita af því
að hún þjáðist af þunglyndi.
Chua sjálf segist hins vegar
hafa haldið að ákveðinn húmor
skini í gegn um frásögn hennar,
að hún hafi átt að vera kaldhæð-
in og full sjálfsgagnrýni. „Þegar
ég sýni inflytjendum og börnum
innflytjenda bókina segja þeir:
„Einmitt, svona er þetta.“ Og
þeim finnst þetta fyndið. Þetta
stuðar þá ekki. Hjá vestrænum
vinum mínum vekur þetta hins
vegar ofsafengin viðbrögð úr öll-
um áttum, jafnvel meðal minna
bestu vina.“
Stuðar þá vestrænu – ekki innflytjendur
Þegar fjögurra ára dóttir hennar ætl-aði að gleðja hana með heimatilbúnuafmæliskorti afþakkaði hún pentmeð þeim orðum að hún vildi ekki
kortið, það væri ekki nógu vel gert. Þegar
dótturinni gekk illa við píanóæfingarnar hljóp
hún út í bíl með dúkkuhúsið hennar og hótaði
að gefa Hjálpræðishernum það ef hún næði
ekki tökum á verkinu sem hún var að æfa. Í
heilt kvöld fékk hún ekki að fara á klósettið af
sömu ástæðum. Yngri systir hennar fékk að
heyra að ef hún stæði sig ekki betur við fiðlu-
æfingarnar myndi mamma brenna öll tusku-
dýrin hennar. Dæturnar fengu aldrei að leika
við vini, horfa á sjónvarp eða vera í tölvu-
leikjum og skyldu ekki voga sér að koma heim
með annað en hæstu einkunnir úr skóla. Við
eitt tækifæri sagði hún dóttur sinni að hún
væri sorp – við annað að hún væri ömurleg.
Amy Chua, lagaprófessor við Yale-háskóla í
Bandaríkjunum, beitti ekki aðeins dætur sínar
slíkum öfgakenndum uppeldisaðferðum held-
ur sá sig knúna til að deila þeirri reynslu með
umheiminum. Um miðjan mánuðinn kom út
bók hennar, Battle Hymn of the Tiger Mother,
þar sem hún segir frá því sem hún kallar
„kínverskar“ aðferðir við uppeldi á börnum
sem hún hefur óspart beitt og ver að mestu
leyti. Þær hafa virkað vel, segir hún, alla vega
fyrir eldri dótturina Sophia, sem er nú á leið í
háskóla. Sú yngri, Louisa sem er 14 ára, gerði
hins vegar uppreisn.
Sjálf var Chua alin upp með svipuðum að-
ferðum af kínverskum foreldrum sem fluttust
til Bandaríkjanna frá Filippseyjum. Hún lýsir
því hversu reið hún var sem barn yfir öllum
þeim aga og reglum sem hún varð að lúta.
„En þegar ég lít til baka gáfu foreldrar mínir
mér grunn til að hafa marga valkosti í lífinu.
Ég gat valið um skóla og um það það hvað og
hver ég vildi verða. Ég trúi því staðfastlega á
þessar aðferðir.“
Hávaðarifrildi á veitingastað
Chua gagnrýnir undanlátssemina sem hún
segir einkenna uppeldi vestrænna foreldra og
hversu litla áherslu þeir leggja á árangur í
námi. Í staðinn séu þeir ofuruppteknir af nær-
ingu barna sinna og að efla sjálfstraust þeirra.
„Eftir á að hyggja voru mínar aðferðir kannski
dálítið ýktar en á hinn bóginn voru þær mjög
áhrifaríkar,“ segir Chua og vísar til þess
hversu mikillar velgengni dætur hennar njóta,
bæði í námi og tónlist. „Ég held að heim-
ilislífið hjá okkur hafi ekki verið ofbeldis-
fullt.“ Í viðtölum segist hún þó hafa „gefið
eftir“ á réttum tíma.
Eftirgjöfin kom ekki af góðu. Smám saman
fóru að sjást tannaför á píanóinu eftir Sophiu,
sem nagaði það þegar hún æfði sig og Louisa
fylltist mótþróa. Hún þrætti við kennara sinn
og móður og kvartaði undan heimilislífinu á
almannafæri. Um það leyti sem hún varð 13
ára gekk hún um, „áhugalaus á svip og sagði
fátt annað en „nei“ og „mér er sama“,“ skrif-
ar Chua. Steininn tók úr þegar unglings-
stúlkan greip skæri og klippti af sér hárið og
sömuleiðis lentu þær mæðgur í hávaðarifrildi
á veitingastað. „Ég er ekki það sem þú vilt –
ég er ekki kínversk!“ hrópaði Louise að móð-
ur sinni. „Ég vil ekki vera kínversk. Hvers
vegna geturðu ekki komið því inn í hausinn á
þér? Ég hata fiðluna. Ég hata líf mitt. Ég hata
þig og þessa fjölskyldu!“
Um svipað leyti greindist systir Chua með
hvítblæði. Þá ákvað hún að stinga niður penna
og á átta vikum rann efni bókarinnar upp úr
henni. „Venjulega er ég mjög örugg með mig
en mér leið virkilega eins og fjölskyldan væri
að brotna saman. Ég velti því fyrir mér hvort
ég hefði gert allt rangt og eyðilagt allt sam-
an?“
Þótt rykið í hennar persónulega lífi hafi sest
að mestu segist hún sjá eftir ýmsu. „Ég er
hrædd um að með því að missa svona oft
stjórn á skapi mínu og með því að vera svona
ströng og æpa svona að þeim þá hafi ég kennt
dætrum mínum að hegða sér eins. Og ég er
stöðugt að biðja þær um að forðast það eins og
heitan eldinn,“ segir hún.
Sömuleiðis má greina ákveðna eftirsjá þegar
hún greinir frá því að bókin segi aðeins frá
erfiðu stundunum og ýktustu uppákomunum,
enda hafi dóttir hennar sagt að fólk myndi
ekki átta sig á því hversu mikið fjölskyldan
hefur skemmt sér saman í gegnum tíðina.
Tígur á
undan-
haldi
Uppeldisað-
ferðir kín-
verskrar móð-
ur vekja reiði
Amy Chua hefur vakið reiði fjölmargra foreldra Vestanhafs.
Ljósmynd/Larry D. Moore
Vikuspegill
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Chua er iðulega fengin til að halda erindi vegna
stöðu sinnar sem lagaprófessor við Yale.
Ásamt dætrunum umtöluðu, Louisu og Sophiu.
Það er kannski kald-
hæðnislegt að um
leið og Chua gagn-
rýnir Vesturlandabúa
í bók sinni þá eru
sjálf bókarskrifin eins
vestræn og hugsast
getur – með þeim hef-
ur hún afhjúpað sig,
ekki síst dökkar hlið-
ar sínar. Hún efast
enda um að Kínverjar
myndu skrifa slíka
bók. „Með henni
óhlýðnaðist ég
mömmu minni,“ segir
hún. Hún sagði mér
að skrifa hana ekki.“
Hlýddi
ekki
mömmu
ódýrt alla daga
36%afsláttur
Verð áður 2898 kr.
Folalda piparsteik
1855kr.kg