SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 39

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 39
30. janúar 2011 39 Tyrki nokkur, búsettur í Þýskalandi, leitaði í öngum sínum til lögreglu í vik- unni og bað um vernd frá eiginkonu sinni til átján ára. Ástæðan? Jú, frúin er víst með öllu óseðjandi í rúminu. Þegar ást- leitni eiginkonunnar fór að gerast manninum hvimleið fyrir fjórum árum flutti hann búferlum inn í stofu og hefur sofið á sófanum síðan. Sú ráðstöfun hefur þó reynst skammgóður vermir en frygð konunnar halda engin bönd og hefur hún áfram sótt að honum á öllum mögulegum og ómögulegum tímum. Nú er svo komið að maðurinn er hættur að hvílast og mætir á morgni hverjum örmagna til vinnu. Því leitaði hann til lögreglu. Óseðjandi eiginkona Jack gamli Nicholson er hættur að daðra við konur. Þetta upplýsti leikarinn í samtali við breska götublaðið The Sun. „Ég get ekki reynt við stúlkur opinberlega eins og ég gerði í gamla daga. Ég átti aldrei von á því að nota orðið „óviðeigandi“ um sjálf- an mig en nú er það blákaldur veruleiki. Ég get ekki gert þetta lengur. Það er beinlínis óþægilegt. Ég held raunar að öðrum sé sama hvað ég bralla en mér finnst það sjálfum ekki eiga við lengur,“ seg- ir leikarinn sem orðinn er 73 ára gamall. Nicholsons vegna má fólk þó áfram halda að hann sé kvensamur. „Ég var alltaf „þrjót- urinn“ og væri það enn hefði ég kraftinn og úthaldið.“ Hættur að daðra Jack Nicholson Ef þú ferð inn á vinsæla fréttasíðu í anda til dæmis Huff-ingtonpost.com, þá er ólíklegt að nokkurs staðar sé minnstá bók málfræðingsins Deborah Cameron, The Myth of Marsand Venus, eða vitleysuna sem hún leitast við að hrekja. Ef þú hins vegar slærð inn „Mars Venus“ í leitarvél síðunnar, finnur hún a.m.k. tylft blogga þar sem minnst er á hvernig karlar og konur tala mismunandi tungumál. Sú kredda sem John Gray setti fram í bók sinni „Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus“ er alls staðar og allar líkur eru á að hún nái brátt enn meiri útbreiðslu þar sem Summit En- tertainment hefur keypt kvikmynda- og sjónvarpsréttinn að bók- inni. En af hverju ætti okkur ekki að standa á sama? Af því að samkvæmt Cameron, og vísindalegum rannsóknum, hefur Gray, og öll sú sjálfs- hjálpar/poppsálfræði-bylgja sem hann hratt af stað með útgáfu bók- arinnar, algjörlega rangt fyrir sér varðandi tjáskipti „hans“ og „hennar“. Það eru engar vísindalegar rannsóknir sem styðja fullyrð- ingar Gray en á hinn bóginn hafa þær skaðað sambönd og þá ímynd sem við höfum af kynjunum. Samkvæmt öllum Mars/Venus-heimildum nota karlar og konur tungumálið á ólíkan hátt til að hafa samskipti. Þessi munur er síðan sagður meðfæddur frekar en að hann megi rekja til uppeldis. Mannfólkið sé forritað þannig að konan skari fram úr í samtalshæfileikum, sem á síðan að út- skýra af hverju hún vill tala um tilfinn- ingar, þarfir, hvert sambandið er að fara og af hverju hann nennir ekki að hlusta á hana, alveg þar til það blæðir úr eyrunum á honum. En, eins og Cameron bendir á í bók sinni, þá benda rannsóknir á það hvernig kynin haga samskiptum sínum, til allt annarrar nið- urstöðu. Tökum sem dæmi: Goðsögn: Konur tala meira en karlar. Staðreynd: Í 34 könnunum af 56, komust Deborah James og Janice Drakich að þeirri niðurstöðu, að karlar tala meira en konur og í aðeins 2 þeirra var niðurstaðan sú að konur tali meira en karlar. Í 16 tilfellum var niðurstaðan sú að kynin tala jafn mikið. Í nýlegri könnun sem framkvæmd var við University of Arizona, sem birt var í tímaritinu Science, var niðurstaðan sú að kynin nota næstum því nákvæmlega jafn mörg orð á dag; um 16.000 talsins. Rannsóknir sýna að bæði kynin hafa jafn mikla tungumálahæfi- leika. En samkvæmt þeim kreddum sem rannsóknirnar leitast við að afsanna, eru kynin alltaf að misskilja hvort annað af því að þau eru forrituð þannig genalega. Og þar sem fjölmiðlar hampa þessum Mars/ Venus-útskýringum, þá hefur þessi kenning verið notuð til að út- skýra allt milli himins og jarðar; allt frá því af hverju nauðgarar skilja ekki mótspyrnu fórnarlambsins og til þess af hverju karlar geti ekki bara farið út með ruslið þegar þeir eru beðnir um það. Að lokum bitn- ar þetta á báðum kynjum. Karlar eru sagðir illa máli farnir, agressívir Neanderthalsmenn, til- finningalausir og ónærgætnir. Konur eru gagnrýndar fyrir að vera of eftirlátssamar og fyrir að vera umhyggjusamar dyramottur. Mis- munun af þessu tagi hefur áhrif á það hvernig við hugsum og mótar gjörðir okkar í einkalífi og á vinnumarkaðnum. Þegar kemur að sam- böndum á hann að fá að draga sig til baka þegar erfiðleikar steðja að sambandinu eða eitthvað þarf að gera eða ræða. Hún á að viðhalda sambandinu, með því að laga sig að hans tjáskiptavenjum. Þegar kemur að vinnumarkaðnum eru konur sagðar hæfari í störf sem krefjast samskipta og hluttekningar en karlar eru hæfari í störf þar sem unnið er með flókin kerfi. Hún stendur framar í störfum sem viðkoma kennslu, umönnun og ráðgjöf. Hann er hæfari til að fara með völd og taka ákvarðanir og hefur því forgang í störf sem tengjast verkfræði, bankaumsýslu eða pólitík. Allir upplýstir einstaklingar sem vita eitthvað um karla, konur og sambönd, vita að þetta er vitleysa. Þrátt fyrir það halar Mars/Venus- fyrirbærið inn milljónum. Spurningin er: hvenær ætlum við að leyfa vísindunum að ráða orðræðunni um hann/hún-samskiptin? Goðsögn: Konur tala meira en karlar. „Karlar eru frá Mars og konur frá Venus“-goðsögnin Kynlífs- fræðingurinn Yvonne Kristín Fulbright „Það er mikill djass í þessu fólki, það klappar saman lófunum. Það er skemmtilegt. Ég var glaður að geta gert það hamingjusamt.“ Louis Armstrong kom hingað til lands fyrir tilstuðlan knatt- spyrnudeildar Víkings sem hélt tónleikana til fjáröflunar fyrir starf- semi sína. Undirtektir Íslendinga voru frábærar og halda þurfti ferna tónleika í Háskólabíói svo allir kæmust að sem vildu. Úr ævintýrinu gerðu ýmsir sér svo yrkisefni síðar, til að mynda Ómar Ragnarsson sem brá sér í hlutverk Armstrong og kynnti sem hann fulltrúa BSRB; Bandalags sargara og rámra bassasöngvara. „Mér eru þessir tónleikar alveg ógleymanlegir,“ segir Kristján Sig- urjónsson, fréttamaður á Útvarpinu, sem var meðal þeirra fjölmörgu sem tónleikana sóttu. „Faðir minn Sigurjón Sigurðsson var djass- áhugamaður og átti sína heilögu stund á fimmtudagskvöldum þegar Djassþáttur Jóns Múla Árnasonar var í Útvarpinu. Sveiflan var í eft- irlæti hjá pabba. Armstrong og Benny Goodman voru hans menn og eðlilega fór hann því á tónleikana. Fyrir níu ára strák var mikil upp- lifun að fara með. Tónlistin var einstök og svarta menn hafði ég aldrei séð áður nema í blöðum eða í bíó. Upplifunin af þessum tónleikum var einstök – og nánast ólýsanleg stemning myndaðist þegar blás- arasveit meistarans lék lagið When The Saints Go Marching In og hljóðfæraleikarar marserðu meðal áhorfenda. Mér finnst ég nánast geta upplifað þessa stund aftur, svo sterk er hún í minningunni,“ segir Kristján sem síðar á þessu herrans ári – 1965 – sótti tónleika með Kinks í Austurbæjarbíói og ári síðar Ellu Fitzgerald og segir þá einnig eftirminnilega þó að með öðrum hætti hafi verið. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Nánast ólýs- anleg stemning myndaðist þeg- ar blásarasveit meistarans lék lagið When The Saints Go Marching In Kristján Sigurjónsson Kim Kardashian, sem er ofboðslega fræg enda þótt enginn viti nákvæmlega fyrir hvað, ljóstraði upp göfugu leyndarmáli á dögunum – hún gefur hluta af tekjum sín- um til góðgerðarmála á ári hverju. Kirkjan hennar fær alltaf 10% og ýmis góðgerðarsamtök njóta einnig góðs af gjafmildi stúlkunnar. „Það er mikilvægt að styðja samtök sem standa manni næst,“ sagði Kardashian í spjallþætti Piers Morgans á CNN. „Þetta snýst ekki bara um að gefa, heldur líka að finna eitthvað sem skiptir mann raun- verulega máli. Það er alltaf verið að biðja mann um að leggja fram fé en sumt af því skil ég hreinlega ekki. Málstaðurinn verður að skipta mig máli til að ég láti fé af hendi rakna.“ Stúlkan er greinilega stór í fleiri en einum skilningi. Kardashian gjafmild Frygð er falli næst.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.