SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 44
44 30. janúar 2011 Brock Clarke – An Arsonist’s Guide to Writers’ Homes in New England bbbnn Heitið á þessari bók er í senn fráhrinandi og einkar spennandi; hér hlýtur eitthvað að vera á seyði. Í sem stystu máli þá segir bókin frá ungum manni sem varð á að kveikja í slysni í húsi Emily Dickinson. Ólánið magnast við það að tvennt fórst við brunann og piltur, Sam Pulsifer, því dæmdur til tíu ára fangelsis. Ekki voru þó allir ósáttir við verknaðinn, í fangelsinu barst Pulsifer grúi bréfa þar sem hann var beðinn um að brenna hús annarra framliðinna rithöfunda. Þegar þau taka síðan að brenna hvert af öðru berast böndin eðlilega að Pulsifer sem stendur í ströngu við að sanna sakleysi sitt með tak- mörkuðum árangri. Skemmtileg en nokkuð langdregin. David Nicholls – One Day bbbbm 15. júlí 1988 hittist ungt par í Endinborg, Emma og Dexter, hann spjátrungslegur lífsnautnasegg- ur, hún alvörugefið gáfnaljós. Það gerist ekkert sérstakt á milli þeirra þessa nótt, þau fara hvort í sína áttina, en næstu áratugina slitnar þráðurinn ekki á milli þeirra eins og rakið er þegar Nicholls segir söguna af 15. júlí 1989, 15. júlí 1990 og þar fram eftir götunum. Um leið dregur hann upp mynd af Bretlandi uppsveiflunnar, þar sem allt var mögulegt og allt fáanlegt nema það sem gefið gæti lífinu inntak. Þau Emma og Dexter geta ekki séð hvort af öðru en þau virðast ekki heldur geta náð saman. Gamansöm saga og sorg- leg í senn, með lifandi og trúverðugum persónum. Catherine O’Flynn – The News Where You Are bbmnn Fyrsta skáldsaga Catherine O’Flynn, What Was Lost, var forvitnileg i meira lagi og fékk enda fjölda verðlauna. Í bókinni The News Where You Are er hún enn að skifa um Birmingham en beinir nú sjónum að arkitektúr borgarinnar sem er ekki mikið fyrir augað svo ekki sé meira sagt. Aðalpersóna bókarinnar er útvarpsmaður sem faðir hans var þekktur arkítekt á sinni tíð, en brátt verður búið að rífa öll hús sem hann teikn- aði og hvað verður þá um minningu hans? Bókin veltir einnig fyrir sér því hvernig það sé að verða gamall og til hvers sé lifað yfirleitt. Það er því mikið undir og varla nema von að ekki gangi allt upp, sérstaklega er aðalpersónan lufsuleg, en bókin prýði- leg afþreying engu að síður og sumar persónur eftirminnilegar. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Erlendar bækur Eymundsson 1. Worst Case – James Pat- terson 2. The Leopard – Jo Nesbø 3. Savour the Moment – Nora Roberts 4. The Bourne Objective – Er- ic Van Lustbader & Robert Ludlum 5. The Wedding Girl – Made- laine Wickham (Sophie Kinsella) 6. Breaking Dawn – Steph- enie Meyer 7. Caught – Harlan Coben 8. Altar of Eden – James Roll- ins 9. Run For Your Life – James Patterson 10. The Whisperers – John Connolly New York Times 1. The Inner Circle – Brad Meltzer 2. The Sentry – Robert Crais 3. The Girl Who Kicked The Hornet’s Nest – Stieg Lars- son 4. Dead or Alive – Tom Clancy & Grant Blackwood 5. What The Night Knows – Dean Koontz 6. The Help – Kathryn Stoc- kett 7. The Confession – John Grisham 8. Three Seconds – Anders Roslund & Borge Hellst- rom 9. Cross Fire – James Patter- son 10. Freedom – Jonathan Fran- zen Waterstone’s 1. The Classic FM Hall of Fame – Darren Henley, Sam Jackson & Tim Liho- reau 2. The Return: Midnight – L.J. Smith 3. A Dance with Dragons – George R.R. Martin 5. Sail – James Patterson 6. The Leopard – Jo Nesbo 7. The Twilight Saga – Steph- enie Meyer 8. Land of Painted Caves – Jean M. Auel 9. Awakened – P.C. Cast & Kristin Cast 10. One Day – David Nicholls Bóksölulisti Lesbókbækur Jólabókaflóðinu er ekki fyrr lokið en nýjarbækur koma á markað, alveg eins og á aðvera. JPV útgáfa sendi nýlega frá sér tværþýddar kiljur sem eiga það sameiginlegt að vera fyrsta skáldsaga höfundanna. Sú fyrri er Ut- angarðsbörn eftir hina sænsku Kristina Ohlsson, en bókin er ofarlega á metsölulista Eymundson. Sú seinni er Prjónaklúbburinn eftir hina kanadísku Kate Jacobs sem búsett er í Kaliforníu. Það er engin tilviljun að Utangarðsbörn er nefnd hér á undan Prjónaklúbbnum, því í sam- anburði ber hún af. Spennuþrungið verk Kristina Ohlsson vinnur sem öryggisráðgjafi hjá sænska ríkislögreglustjóraembættinu. Dag einn fékk hún þá hugmynd að skrifa skáldsögu, nánar tiltekið spennusögu. Oft finnst manni að of margir fái þá hugmynd að þeir hafi ýmislegt fram að færa í spennusagnageiranum, án þess að hafa til þess næga innistæðu. En þessi hugmynd Ohlsson var ekki alls ekki galin því Utangarðsbörn, fyrsta skáldsaga hennar, er ágæt spennusaga. Móðir missir af lest sem ung dóttir hennar er í. Dóttirin hverfur úr lestinni. En þetta er ekki eina barns- hvarfið og lögreglan er ráðþrota. Ohlsson tekst vel að skapa spennuþrungið verk, persónusköpun er góð og sagan heldur athygli les- andans allt til enda. Þarna er fjallað um sjúkan hugarheim, ofbeldi og klám á áhrifaríkan hátt án þess að verkinu sé steypt út í eina allsherj- arpredikun. Þetta er lipurlega skrifuð bók. Höf- undurinn má vera ánægður með verk sitt og unn- endur spennusagna sömuleiðis. Í sérstökum kafla þakkar höfundur fjölda manns fyrir aðstoð. Það er reyndar orðið nokkuð algengt að rithöfundar skrifi sérstakan þakk- arkafla með mikilli nafnarunu þeirra sem hafa veitt aðstoð við verkið. Ekki er alveg ljóst hvaða hlutverki þessir þakkarkaflar eiga að gegna öðru en að kitla hégómakennd þeirra sem þar eru nefndir. Þegar Kristina Ohlsson á í hlut grunar mann að það sé ekki að ástæðulausu að hún telji sig eiga mörgum ýmislegt að þakka við samningu bókarinnar. Hún virðist hafa fengið góðan yf- irlestur og strangt aðhald, sem sannarlega skilar sér í góðri spennusögu. Uppskrift að bók Fyrsta skáldsaga Kate Jacobs er Prjónaklúbb- urinn, sem komst í efsta sæti metsölulista New York Times og er nú komin á metsölulista Ey- mundson. Georgia Walker rekur prjónabúð í New York og þar er haldinn prjónaklúbbur einu sinni í viku. Sagan, sem er 379 blaðsíður, segir síðan frá lífi ólíkra kvenna, átökum í einkalífi, sorgum og sigr- um. Allt er þetta sett í fremur þægilegan búning en fyrirsjáanlegan. Þetta er bók sem hefur fengið gríðarlega góða dóma í tímaritum á borð við Glamour og Marie Claire. Sem er vitanlega ánægjulegt fyrir höfundinn en breytir engu um það að Kate Jacobs er ekki mikið skáld. Hún býr til þokkalega sápu sem þjónar sínu hlutverki fyrir lesendur sem vilja þægilega lesningu sem skilur lítið sem ekkert eftir. Fyrir aðra sem gera strangar kröfur um góða persónusköpun og tilþrif í stíl get- ur þessi bók verið ansi þreytandi með klisju- kenndum samtölum og yfirborðskenndri heim- speki. Bókinni lýkur á kökuuppskrift sem er nokkuð lýsandi fyri verkið því uppskriftarleg er bókin öll. Kristina Ohlsson skrifar góða spennusögu. Spenna og uppskrift Utangarðsbörn eftir Krist- ina Ohlsson og Prjóna- klúbburinn eftir Kate Jacobs eru splunkunýjar kiljur frá JPV. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Kate Jacobs skrifar þokkalega sápu.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.