SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 42

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 42
42 30. janúar 2011 Yfir hvaða fyrirbæri á íslensktunga flest orð? Þessar spurn-ingu varpa ég stundum framþegar tilefni gefst til og fáir eiga kollgátuna. Fólk nefnir fyrirbæri eins og snjó, haf og vind og vissulega er til fjöl- breyttur orðaforði yfir þau náttúruöfl sem þjóðin hefur þurft að kljást við frá öndverðu, til að mynda húsbóndann í neðra en hann hægt er að ávarpa með margvíslegum hætti. En ef fjölbreytni orðanna endurspeglast í baráttunni þjóð- arinnar við hvimleið öfl hlýtur heimska að vera versta ólukka okkar Íslendinga því að orðið heimskingi á sér fleiri sam- heiti en nokkurt annað í málinu. Sá sem flettir upp í Íslenskri sam- heitaorðabók til að finna viðeigandi orð yfir heimskingja fyllist trúlega valkvíða því að þar hefur hann hvorki fleiri né færri orðum úr að spila en 75. Sum þeirra virðast fremur meinleysisleg, svo sem fífl, flón og kjáni en önnur eru öllu bragðmeiri, svo sem afglapi, beinasni, skynskiptingur og þöngulhaus. En svo er ýmislegt þar á milli sem heyrist sjaldan, svo sem flautakollur, gláni og kusi. Að- eins tvö samheitanna hafa krosstákn sem merkir að þau séu úrelt, þ.e. áni og trefill en a.m.k. tvö orð af erlendum uppruna hafa greinilega öðlast þegnrétt í þessum fjölbreytta íslenska munnsöfnuði, þ.e. imbi og idjót. Hugtakið heimska telur öllu færri sam- heiti eða rúmlega 50, en þar gefur rit- stjóri orðabókarinnar upp andheitið skynsemi. Hins vegar er ekkert andheiti gefið upp um heimskingja og því þarf maður að geta sér til um það. Þá kemur upp í hugann orðið gáfumaður og sé flett upp á því kemur í ljós að þar er ekki um að ræða eins marga jafningja og í tilviki heimskingjans því að hann er aðeins einn og nefnist vitmaður. Um það er engum öðrum blöðum að fletta. Gamalreyndur kennari sagði eitt sinn að foreldrar þyldu að heyra hvaðeina um börn sín annað en að þau væru heimsk eða illa gefin, þá væri skömminni skárra að kalla þau þjófótt, undirförul og níðlöt. Fæst viljum við heldur láta segja upp í opið geðið á okkur að við séum afglapar, beinasnar eða erkifífl. En hvernig stend- ur þá á þessu hrapallega ójafnræði milli gáfumannsins og heimskingjans í sam- heitaorðabókinni? Því verður tæplega svarað á þá lund að á Íslandi séu bara tveir gáfumenn á móti 76 heimskingjum. Ætli skýringin sé ekki frekar sú að við metum andlegt atgervi svo mikils að okkur sómi illa að jaska það út með merkingarsnauðu orðagjálfri. Að sama skapi er fátt áhrifaríkara til að láta í ljósi vanþóknun á öðrum en að fara niðr- andi orðum um gáfnafar þeirra. Þess vegna hefur orðabelgurinn um heimska manninn líklega þanist út eins og púkinn í fjósi Sæmundar fróða þótt sá hafi raunar þrifist á annars konar munnsöfnuði sam- kvæmt skemmtilegri þjóðsögu. Munnsöfnuður ’ Ef fjölbreytni orðanna endurspegl- ast í baráttunni þjóð- arinnar við hvimleið öfl hlýtur heimska að vera versta ólukka okkar Íslend- inga því að orðið heimsk- ingi á sér fleiri samheiti en nokkurt annað í málinu. El ín Es th er Þú ert nú meiri dárinn! „Dári“? Það er heimskulegt orð. Já, einmitt! Ha? Málið Tungutak Guðrún Egilson gudrun@verslo.is Á einni ljósmyndinni birtistsjálfur Fjalla-Bensi, BenediktSigurjónsson, og er ekki einn áferð heldur er þarna komin hin ógleymanlega þrenning úr Aðventu Gunnars Gunnarssonar: Bensi, hund- urinn Leó og forystuhrúturinn Eitill. Á bak við þá eru Mývatnsöræfin með Herðubreið í allri sinni dýrð – reyndar máluð leiktjöld á smíðaverkstæði Bárðar Sigurðssonar heima í Höfða í Mývatns- sveit, eins og hefilbekkurinn í horninu vitnar um. Í öðrum myndum á sýningunni stíg- um við inn í baðstofur á norðlenskum sveitabæjum, fáum þar kaffi, lendum í jólaboði eða hlýðum á húslestur meðan börnin leika sér með leggi á gólfinu. Í verkum Bárðar, sem kallaður hefur verið ljósmyndari Mývetninga, upplifa áhorfendur heim þingeyskra bænda og búaliðs fyrir um einni öld. Í formála bók- ar, sem kemur út um Bárð og verk hans um leið og sýningin verður opnuð, segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður að „enginn ljósmyndari annar hér á landi hafi komist nær íslenskri sveitamenn- ingu“. Ástæðan er sú að Bárður er einn af sveitungunum; hann er að skrásettja sitt nánasta umhverfi. Þjóðminjasafn Íslands, Minjasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöð Þing- eyinga taka höndum saman og efna sam- eiginlega til sýningarinnar; eftir að henni lýkur í Reykjavík verður hún opnuð í báðum söfnunum fyrir norðan. Bárður Sigurðsson var Þingeyingur, fæddist í Reykjadal árið 1872 en fluttist 14 ára að Hjalla í Reykjadal þar sem foreldrar hans voru í húsmennsku en hann var elstur sjö barna þeirra. Báður varð snemma vinnumaður á bæjum þar í sveit og urðu smíðar eitt af hans megin- störfum. Eftir að hafa fengið grunn- leiðsögn hjá ljósmyndara í Reykjavík varð ljósmyndun hlutastarf hjá honum og urðu næstu ár þar á eftir blómatími hans sem ljósmyndari. Hann myndaði í ein fimm- tán ár, fram undir 1920, og bera myndir hans sterkan keim þess afmarkaða tíma- bils. Aldargamall heimur opnast í myndum Sýning á ljósmyndum eftir Bárð Sigurðsson (1872-1937) verður opnuð í Þjóðminjasafninu í dag klukkan 15. Myndheimur Bárðar er að mörgu leyti einstakur en í myndunum birtist persónuleg sýn á bændasamfélagið sem hann hrærðist í. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is ’ Í verkum Bárðar, sem kallaður hefur verið ljósmyndari Mývetninga, upplifa áhorf- endur heim þingeyskra bænda og búaliðs fyrir um einni öld. Lesbók Á síðasta ári seldi vefbókaverslunin Amazon í fyrsta sinn fleiri rafbækur en innbundnar bæk- ur sem þótti eðlilega talsverð tíðindi. Enn vex rafbókum fiskur um hrygg því fyrirtækið sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að nú selur það fleiri rafbækur en kiljur. Í yfirlýsingunni sagði að frá síðustu áramótum hefði fyrirtækið selt 117 rafbækur fyrir hverjar 100 kiljur. Munurinn á rafbókum og innbundnum bókum er síðan kominn upp í það að þrjár rafbækur seljast fyrir hverja innbundna. Af yfirlýsingunni má ráða að enn seljist fleiri bækur prentaðar á pappír en rafrænar, um 120 á móti hverjum 100. Eins og tekið er fram í yfirlýsingunni er enn nokkuð af bókum ekki fáanlegt í rafrænni útgáfu og gera má því skóna að munurinn myndi minnka umtalsvert eða hverfa ef málum væri ekki svo háttað. Amazon hefur ekki gefið upp hve marga Kindle-lesara fyrirtækið hefur selt en fróðir hafa giskað á að það séu um átta milljón tæki, aukinheldur sem hægt er að fá Kindle-hugbúnað fyrir far- og borðtölvur og ýmsar gerðir farsíma. Rafrænar bækur á siglingu Árni Grétar Finnsson, sem lést11. október 2009, á 76. ald-ursári, var áberandi í hafn-firsku mannlífi í áraraðir, áhrifamaður í bæjarpólitíkinni, rak eigin lögfræðiskrifstofu, var umboðsmaður Sjóvátryggingafélags Íslands og Sjóvár- Almennra, varabæjarfulltrúi og bæj- arfulltrúi, sat í bæjarráði og var forseti bæjarstjórnar. Hann var einnig formað- ur fræðsluráðs Hafnarfjarðar, sat í stjórn Landsvirkjunar, Sparisjóðs Hafnar- fjarðar, St. Jósefsspítala, markaðs- skrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar, í stjórn Íslenskra að- alverktaka, Bláa lónsins, Heilsufélags Bláa lónsins, var formaður Taflfélags Hafnarfjarðar og skákmeistari Tafl- félagsins, aukinheldur sem hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í héraði og á landsvísu. Meðfram þessari iðju allri orti Árni Grétar ljóð og gaf út ljóða- bækur; Leikur að orðum kom út 1982, Skiptir það máli 1990, Septemberrós 1997 og Fiðluleikarinn 2007. Fyrir síðustu jól kom svo út bókin Lífsþor þar sem bók- unum er safnað saman í eina. Að útgáfu Lífsþors standa börn Árna Grétars, Lovísa, Finnur og Ingibjörg. Lovísa segir að í Lífsþori séu engin ljóð sem ekki hafi komið út áður, en elstu ljóðin í bókinni eru frá árinu 1966 og 1967. Í inngangi bókarinnar kemur fram að nokkur ljóðanna séu samin á árunum 1974-76 og að Árni Grétar hafi byrjað að yrkja af meiri dugnaði, eins og hann orðaði það, á árunum 1979-82. „Hann var mjög upptekinn af höfuðstöfum og stuðlum og lagði mikla áherslu á að allt væri rétt gert. Hann hafði því lengi ætlað sér að fara yfir gömlu bækurnar og lagfæra það Lífsþor Árna Grétars á bók Lovísa Árnadóttir

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.