SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 11

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 11
30. janúar 2011 11 Því er ekki að neita aðgamla málmhjartað slóörar í vikunni þegarþær mergjuðu fréttir bárust frá Noregi að Dave Mus- taine hefði bjargað þrettán ára gömlum dreng úr gini soltinna úlfa. Gamli flösufeykirinn var að vísu í góðu yfirlæti heima í Kali- forníu meðan hann vann þetta frækilega afrek, en aðkoma hans að málinu var með þeim hætti að pilturinn, sem var einn á ferð í drungalegum skógi, gróf Mus- taine og sveit hans, Megadeth, í örvæntingu sinni upp í farsíma sínum og spilaði á hæstu mögu- legu tíðni fyrir úlfahjörðina. Ekki var að sökum að spyrja, úlfarnir snerust á hæli og dreifðust í allar áttir. Skelfingu lostnir. Fréttin hefur breiðst hratt út um heimsbyggðina og gaman var að heyra fréttamanninn knáa Gissur Sigurðsson herma af þessu í Bítinu á Bylgjunni. Eitt- hvað þarf Gissur þó að lesa málmvísindin sín betur því hann spyrti Megadeth við dauðarokk. Það er vitaskuld misskilningur, Megadeth hefur aldrei leikið annað en þrass. Þeir sem þekkja til Megadeth skilja mætavel angist aumingja úlfanna. Dave Mustaine er ekki beint frýnilegur þegar sá gállinn er á honum. Rymur sig gegn um tónsmíðarnar svo molnar úr veggjum. Mat þeirra ferfættu hefur því verið hárrétt – að taka til fótanna. Ógleymanlegt símtal Svo skemmtilega vill til að ég hringdi einu sinni í Mustaine. Hann var á leið með sveit sína hingað upp á skerið til að þrassa á Nösu og tónleikahaldarinn út- vegaði Morgunblaðinu einka- viðtal gegnum síma. Raunar átti fremsti málmvísindamaður blaðsins, Arnar Eggert Thor- oddsen, að taka viðtalið en hann gekk úr skaftinu á elleftu stundu – fótbrotnaði í kappleik með vinnufélögum. Þar sem sú ógæfa skrifaðist á minn reikning (ég hafði um árabil hvatt hann óspart til að mæta í boltann) sá ég sæng mína upp reidda. Símtal þetta verður mér alla tíð ógleymanlegt. Kappinn var rétt risinn úr rekkju (um há- degi) og brann ekki beint í skinninu að skiptast á orðum við önhvurn misvitran blaða- mann norður í ballarhafi. Eftir vægast sagt erfiða byrjun (þar sem ég velti alvarlega fyrir mér að taka úlfinn á þetta) fór kapp- inn þó á flug og úr varð þokka- legasta spjall. Mustaine skamm- aði mig hins vegar eins og hund (tja, eða úlf) þegar ég færði Met- allica í tal en sem kunnugt er var hann á sínum tíma rekinn úr því sögufræga bandi. Ég held ég eigi ennþá upptök- una af þessu samtali okkar Mus- taines og í ljósi síðustu atburða hef ég hugsað mér að vera fram- vegis með hana á mér. Maður veit aldrei hvenær úlfar skjóta upp kollinum á Kjalarnesinu! Það er ekkert grín að mæta glorsoltnum úlfi. Nema maður sé með Megadeth í fórum sínum. Dave Mustaine rymur fyrir landann á Nösu um árið. Morgunblaðið/Sverrir Málmað á úlfa Heimurinn stóð á öndinni í vikunni þegar fréttist að gamli flösufeykirinn Dave Mustaine hefði bjargað norskum unglingi frá því að enda í úlfskjafti. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Tísku og förðun föstudaginn 18. febrúar 2011. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna vorið 2011 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihlutir auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 14. febrúar. MEÐAL EFNIS: Förðunarvörur. Förðrun. Húðin,krem og meðferð. Snyrting. Neglur. Kventíska. Herratíska. Fylgihlutir. Skartgripir. Það heitasta í tísku fyrir árshátíðirnar. Hvað verður í tísku á vor- mánuðum. Tíska & Förðun sérblað Fyrirtæki leitar að góðu húsnæði til leigu fyrir verslun og verkstæði í miðborginni. Leitað er eftir vönduðu húsnæði á fyrstu hæð fyrir verslunina. Skilvirkum greiðslum heitið. Vinsamlegast sendið upplýsingar um eign og verð á info@ellabyel.com Nánari upplýsingar fást í síma 551 5300. 101 HÚSNÆÐI

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.