SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 10
10 30. janúar 2011
Þau undur og stórmerki gerðust á Alþingi á fimmtu-dag, þar sem stjórnlagaþingsklúðrið var til umræðu,að tveir stjórnarþingmenn báðust afsökunar áklúðrinu. Þetta voru þingmennirnir Róbert Mars-
hall, sem er formaður allsherjarnefndar Alþingis og þingmað-
ur Samfylkingarinnar, og Árni Þór Sigurðsson, starfandi
þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs.
Ég er þeirrar skoðunar að þingmennirnir hafi með afsök-
unarbeiðni sinni til íslensku þjóðarinnar verið menn að meiri
og ólíkt meiri mannsbragur hafi verið á málflutningi þeirra en
málflutningi þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra
og Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra.
Forsætisráðherra sparaði
ekki gífuryrðin í málflutn-
ingi sínum og sagði m.a. að
„íhaldið“ væri „skíthrætt“
við að sett yrði inn í stjórn-
arskrá ákvæði um að auð-
lindirnar yrðu í þjóðareign.
Er svona málflutningur
samboðinn forsætisráð-
herra? Forsætisráðherra er
eðli málsins í forsæti rík-
isstjórnarinnar og ber
ábyrgð á stjórnsýslunni.
Hefði nú ekki verið vitinu
nær hjá Jóhönnu að beina
augum að því sem úrskeiðis
fór við kosninguna til
stjórnlagaþings og skoða
vel ígrundaðan rökstuðn-
ing Hæstaréttar fyrir ógild-
ingu kosninganna? Svo
skoraði ráðherrann á þingheim að koma sér saman og færa
þjóðinni það stjórnlagaþing sem hún hefði kallað eftir.
Ja hérna hér! Ekki hef ég orðið þess vör að þjóðin hafi kallað
eftir einu eða neinu í þessum efnum. Þetta hefur frá upphafi
verið sérstakt gæluverkefni Jóhönnu Sigurðardóttur og ekk-
ert hefur breyst í þeim efnum. Búið er að kosta til mörg
hundruðum milljóna króna við undirbúning og kosningu, en
samt sem áður ætlar enginn ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu að
axla ábyrgð á klúðrinu. Slík meðferð á almannafé myndi kalla
á afsagnir í öðrum löndum, sem við, á hátíðis- og tyllidögum
berum okkur saman við.
Innanríkisráðherrann var ekki mikið skárri í munnlegri
skýrslu sinni sem hann flutti þingheimi á fimmtudag, því
hann tiltók í fyrsta lagi að Hæstiréttur væri ekki hafinn yfir
gagnrýni, í öðru lagi þyrfti að beina sjónum að löggjafanum,
Alþingi, sem bæri ábyrgð á lagasetningunni. Í þriðja lagi taldi
ráðherrann að væri í lagi að líta til þeirra sem framkvæmdu
lögin, þ.e. dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins og
landskjörstjórnar.
Hefði ekki verið réttara og sanngjarnara af innanrík-
isráðherranum, miðað við ákvörðun Hæstaréttar, sem byggir
ógildingu sína á löglausri framkvæmd kosninganna, að hefja
upptalninguna á innanríkisráðuneytinu, sem bar höf-
uðábyrgð á framkvæmd kosninganna.
Ekki veit ég hvernig ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn á
Alþingi ætla að reyna að greiða úr þeirri flækju og klúðri sem
þau standa nú frammi fyrir að verða að gera, en um hitt er ég
sannfærð að það mun kosta okkur skattgreiðendur þessa
lands a.m.k. aðrar 300 milljónir króna. En það eru vitanlega
smápeningar, þegar slíkt þjóðþrifamál á í hlut, sem a.m.k.
tveimur þriðju hlutum þjóðarinnar er skítsama um! Það verð-
ur bara skorið enn meira niður í heilbrigðiskerfinu, öldr-
unarþjónustunni, menntakerfinu og öðrum velferðarsviðum
samfélagsins, til þess að fjármagna nýtt stjórnlagaþings-
klúður. Allir vita hver kosningaþátttakan var, þegar kosið var
til stjórnlagaþings í nóvember sl. og mér býður í grun, að
þátttakan í nýjum kosningum, verði þær knúnar í gegn af Jó-
hönnu og co., verði mjög fjarri því að ná þriðjungi kosn-
ingabærra manna í kjörklefana því nú liggur fyrir að það
verða að vera klefar, ekki skilrúm og þá verður biðtíminn á
kjörstað lengri en hann var þegar skilrúmin og númeruðu
kjörseðlarnir voru fullnægjandi að mati innanríkisráðherr-
ans.
Voru menn
að meiri
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Árni Þór
Sigurðsson
Róbert
Marshall
’
Slík meðferð á
almannafé
myndi kalla á
afsagnir í öðrum
löndum, sem við, á
hátíðis- og tyllidög-
um berum okkur
saman við.
8:49 Ekki seinna en átján
mínútum eftir framúrstig er ég
mættur á svæðið, eða sá karakt-
er sem þykist vera ég í þessu til-
tekna lífi. Karakterinn er ekki
alltaf velkominn, bæði þar sem
hann talar mikið í hausnum á
mér og kemur með ýmiss konar
áhyggjur og verkefni. Maður vill
helst ekki vera þessi karakter.
Hljómar ruglingslega, en maður
veit varla hver maður er, hvað
þá aðrir. Rétt áður en hristarinn
lýkur við matseld skýst sú hugs-
un í gegn að það væri líklega
ekkert til lífsbóta þó að einhver
vissi það. Held að þarna sé kom-
in þema fyrir daginn.
11:07 Skoppað um í ræktinni
með Elmu, sem kvelur skottið á
mér fram og til baka, á milli
rembinga hugsa ég um vinnuna,
að ég þurfi að pússa stikluna fyr-
ir myndina KURTEIST FÓLK
(rak mig í hástafatakkann), sem
verður frumsýnd 30. MARS (há-
stafatakkinn aftur eitthvað að
stríða mér). Man alls ekki hver
ég er á meðan æfingu stendur
enda er Elmu alveg sama.
12:07 Einn af hápunktum
dagsins, að spila fótbolta með
skemmtilegum fýrum í mýrinni.
Læri mjög mikið á þessum
stundum, auðmýktin mikil að fá
að læra knatttækni af þessum
snillingum. Þeir virðast heldur
ekki vita hver maðurinn er,
a.m.k. ekki þegar manni er hent
í gólfið, tæklaður hægri til
vinstri, allt til að minna mig á
smæð mína í alheiminum.
13:34 Stjórnarfundur með
Kristínu Andreu framleiðanda í
höfuðstöðvum Poppoli-
kvikmyndafélags á Hallveig-
arstíg. Fundur settur og farið yf-
ir markaðssetningu á kvik-
myndinni KURTEISU FÓLKI
(þarf að fara með lyklaborðið í
viðgerð, þessir hástafir virka
engan veginn rétt). Hérna virð-
ist Kristín Andrea vita hver ég
er, eða hún setur upp gott leikrit
til að sannfæra mig um að svo sé.
Ég geng brattur út af fundi,
kankvís á hæl, í slagtogi við lítið
„aha, kannski fékk ég þarna vís-
bendingu um hver ég sé“.
14:30 Upptökur á kynning-
arefni fyrir KURTEIST FÓLK,
viðtöl við helstu stjörnur mynd-
arinnar (eru þessir leikarar
stjörnur? Ég meina, eru þeir
eitthvað meira en ég? Hefði
kannski átt að vera leikari, þá
kannski vissi ég, eða aðrir hver
ég er, reyni að fela biturleika
eftir megni). Bjarni Felix töku-
maður lýsir og tekur, Guðni Páll
setur í spurningar og umsjónar.
Stefán Karl stígur í stól, setur
upp Skype fyrir okkur frá Los
Angeles og tekur upp viðtalið,
Eggert Þorleifsson mætir
strangsvipaður enda atvinnu-
maður fram í góma. Benni Er-
lings og Hilmir Snær negla þetta
og Ágústa Eva (ég er ekki að
name-droppa hérna) spilar sig
áfram á sínu óútreiknanlega
augnaráði. Halldóra Geirharðs
(Okei, núna viðurkenni ég
name-dropp) man ekkert eftir
sínum karakter, ber því við að
langt sé liðið frá upptökum á
myndinni. Ég tek kast því hún
veit augjóslega ekkert hver ég
er. Halldóru tekst að róa mig
með sögum frá Afríku.
16:00 Gunnhildur Þórð-
ardóttir kemur í heimsókn á
skrifstofuna með Nikulás Hrafn,
sem ég giska á að sé nokkurra
mánaða. Ég fæ að halda á hon-
um, rembist við að ná augn-
sambandi í von um svar. Í sam-
starfi við móður finn ég æviferil
fyrir pilt, gæti verið ýmist rokk-
stjarnan (fallin stjarna þ.e.),
skífuþeytirinn eða arkítektinn
Nikky Raven, sem yrði hans
„nom de guerre“. Ég og Nikky
förum í langferð um skrifstof-
una, hægt, í laumi þefa ég af
honum, nokkrir huldir eggja-
stokkar ná júdóbragði á tilfinn-
ingum sem hafa setið í aftursæt-
inu vegna vinnufíknar. Sleppi
þó að íþyngja barninu með þeirri
áþján, hann á eftir að fá sínar
saltöldur.
16:41 Fer á Kaffismiðjuna,
sit með kaffi og ætla mér að
hugsa einbeitt um heim-
spekilega hluti. Eftir að hafa
rembst við það í þónokkurn
tíma ákveð ég að hætta að reyna
og drekk bara kaffið. Píri samt
augun svo aðrir haldi að eitthvað
sé í gangi.
18:00 Hugleiðsla, leiðinlegar
þrjátíu mínútur, fylgst með
andardrætti. Það má víst ekki
tala mikið um það.
18:47 Matur, hent í eggja-
köku með grænmeti, farið á Fa-
cebook á meðan og beðið eftir
því hvort einhver spjalli við mig
á chattinu. Ekkert gerist. Beðið.
Íhuga alvarlega að senda nokkur
„hæ“ yfir á chattinu, en hætti
við á síðustu stundu. Lífið verð-
ur varla meira spennandi.
Eggjakakan étin.
19:40 Te með sjálfum mér.
Farið yfir klippur og fínpúss á
fólkinu kurteisa fyrir hljóð-
vinnslu og leitað að mexíkósk-
um lagahöfundi á netinu, við-
komandi gerði lag sem ég vil
nota í, jú, mikið rétt, KURTEIST
FÓLK. Þar syngur ekkja nokkur
um týnda syni sína.
21:12 Fótbolti, í þetta skipt-
ið í tölvu með Benna litla bróð-
ur, mikill þroski bræðranna
kemur í veg fyrir samkeppnis-
andrúmsloft.
22:48 Róað fyrir svefn, kíkt á
kvikmyndina „Three Days of
the Condor“ með Bobba Red-
ford. Max von Sydow í formi.
Fatta nokkra hluti úr myndinni
sem ég ætla skammarlaust að
stela.
00:17 Rólega gefst ég upp og
fer frá sjálfum mér, reyni að
skilja bitur- og eftirsjálaust við
daginn, tekst það þrátt fyrir að
færanýting hefði mátt vera betri
í fótboltanum. Sé fyrir mér
nokkra takta sem skal beitt
næst, Nikky Raven útskýrir fyrir
mér nýstárlega tækni sem hann
ætlar að nota sem arkítekt …
ZZZZZ
Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður sötrar te með sjálfum sér.
Dagur í lífi Ólafs Jóhannessonar kvikmyndagerðarmanns
Smæðin í alheiminum
Morgunblaðið/Kristinn