SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 26
26 30. janúar 2011 Þær birtingarmyndir sem dregnar eru upp í fjöl-miðlum af geðröskunum og fólki með geðrask-anir hafa mikil áhrif, bæði á fólkið sjálft og al-menning. Það skiptir því máli að þekking á geðheilbrigðismálum sé til staðar á fjölmiðlum og að vilji sé til þess að fjalla um þau mál af fagmennsku og hlut- lægni. Erlendar rannsóknir sýna að í gegnum tíðina hef- ur það ekki verið reyndin. Fjölmargir erlendir fræði- menn eru sammála um að umfjöllun fjölmiðla um geðraskanir og fólk með geðraskanir, jafnt í fréttum sem í afþreyingarmiðlum, hafi áhrif á þá fordóma sem þeir upplifa frá samfélaginu og félagslega skömm þar sem fjölmiðlar eru svo stór hluti af félagmótun okkar. Und- irrituð gerði rannsókn á umfjöllun Morgunblaðsins um geðraskanir og fólk með geðraskanir á tímabilinu 1993- 2008. Tekin voru út fjögur ár í gagnasafni Morgunblaðs- ins, 1993, 1998, 2003 og 2008 en alls voru 1636 greinar greindar eftir ákveðnum atriðisorðalista og ákveðnum þáttum með aðferðum innihaldslýsingar. Meginmark- miðið var að skoða þróun umföllunar og hvers konar birtingarmyndir dregnar voru upp, skoða hvers eðlis umfjöllunin var, umfang hennar og sjónarhorn. Sprenging í umfjöllun á milli áranna 1993-1998 Í rannsókninni kom í ljós að umfjöllun um geðraskanir og fólks með geðraskanir fimmfaldast á milli áranna 1993 og 1998, en hana er erfitt að skýra nema í ákveðinni þjóðfélagslegri vitundarvakningu sem verður á þessum árum. Árið 1993 var nær engin umfjöllun um geðrask- anir en árið 1998 fengu allar geðraskanir einhverja um- fjöllun. Árin 1998, 2003 og 2008 var fjallað um nær allar raskanirnar nema áfallaröskun og áráttu- og þráhyggj- uröskun sem fengu enga umfjöllun árið 2003 og 2008, þrátt fyrir að um 2-3% landsmanna séu að jafnaði haldnir þeim síðarnefnda. Sama á við um félagsfælni en um 12% þjóðarinnar eru með hann og um 2% lands- manna með persónuleikaröskun sem einnig fær litla sem enga umfjöllun. Það er því ljóst að mikið misræmi er í hlutfallsskiptingu geðraskana í raunveruleikanum og umfjöllunar á mismunandi tegundum geðraskana í Morgunblaðinu öll árin. Meginumfjöllunin er um þung- lyndi en 12-15% þjóðarinnar eru með þá röskun hverju sinni en það hlutfall er næst raunveruleikanum. Greinar þar sem leitarorðið þunglyndi kom upp í leit- arvél gagnasafns Morgunblaðsins voru mjög fjölbreyttar og fjölluðu um nokkrar tegundir þunglyndis eins og öldrunarþunglyndi og fæðingarþunglyndi. Lögð var áhersla á fræðslu um sjúkdómanna, einkenni og hugs- anlegar lausnir. Oftar var fjallað um þunglyndi sem or- sök eða afleiðingu annarra vandamála sem koma upp í lífi fólks eins og í kynlífi, við skilnað, áfengis- og vímu- efnavanda, í kjölfar kynferðislegrar misnotkunar, ein- eltis og ástarfíknar, við svefn- og svefntruflunum, of- virkni eða fjármálavanda. Þá er fjallað um þunglyndi í tengslum við listsköpun eins og bókmenntir, kvik- myndir og tónlist án þess að það sé þungamiðja umfjöll- unarinnar og sömuleiðis kemur það við sögu þegar rætt er um stefnumótun í heilbrigðisþjónustu, geðheilbrigði, sjálfsvíg og erfðatengsl þunglyndis. Þar sem orðið þunglyndi hefur svo margar birting- armyndir og tengist svo mörgum öðrum sjúkdóms- myndum og lífstíl þá getur það verið ástæðan fyrir því að það komi svo mikið oftar fyrir í orðaleitinni en aðrir sjúkdómar, þó ekki sé verið að fjalla um geðröskunina þunglyndi eingöngu. En séu listir fjarlægðar þá er um- fjöllunin fremur sjúkdómsvædd en um leið kemur í ljós að þunglyndi tengist mjög mörgu í veruleika fólks. Læknar oftast viðmælendur Læknar voru í meirihluta viðmælenda (36%) Morg- unblaðsins á þessu árabili. Þeir voru fyrst og fremst við- mælendur blaðamanna og þá í hlutverki sérfræðingsins, þess sem veit og það sjaldnast gagnrýni á það. Áherslan var á sjúkdóminn og læknirinn sem sérfræðingur svarar spurningum um hugsanlegar orsakir, einkenni, lyfja- notkun eða aðrar mögulegar lausnir. Þrátt fyrir aukna umfjöllun um geðraskanir á milli ár- anna 1993 og 2008 jókst sýnileiki fólk með geðraskanir ekki að sama skapi í Morgunblaðinu. Það er hins vegar þversögn í því að fleira fólk með geðraskanir sendi inn aðsendar greinar með hverju rannsóknarárinu. Heild- arfjöldi viðtala við fólk með geðraskanir og aðsendra greina þeirra öll rannsóknarárin er um 6% af heild- arfjölda greinanna. Séu þessar tölur bornar saman við sýnileika lækna eða heilbrigðisstarfsfólks í greinunum var sá hópur sex sinnum oftar í blaðinu. Það jókst með hverju árinu að fólk með geðraskanir sendi inn greinar til birtingar í blaðinu en í þessum greinum er það að fjalla um einelti, heilabilun, kvíða, skort á umfjöllun um geðheilbrigðismál og óviðunandi aðbúnað í geðheil- brigðiskerfinu svo eitthvað sé nefnt. Aðstandendur var hópur sem Morgunblaðið fjallaði ekki oft um en gerði sig sýnilegan í gegnum aðsendar greinar, rétt eins og fólk með geðraskanir sjálft gerir líka. Um 6% af greinunum, eða um 100 greinar, voru sendar inn af aðstandendum til blaðsins til birtingar á árunum fjórum. Í þeim greinum var oft verið að benda á brotalamir í kerfinu, ósk um betri þjónustu, verið að fræða til að draga úr fordómum í samfélaginu eða hrein- lega kalla á hjálp. Það má segja að þótt Morgunblaðið fjalli ekki mikið sjálft um fólk með geðraskanir og aðstandendur rann- sóknarárin þá hafi síður þess engu að síður staði opnar fyrir þessum tveimur hópum. Orðanotkun breytist og þróast og greinar á innsíðum Eitt sem breytist og þróast á milla ára er orðanotkunin. Öll árin voru orðin geðsjúkdómur eða geðsjúkdómar fá- tíð en svo leysa orðin geðröskun og geðraskanir þau nær alveg af hólmi árin 2003 og 2008, svo tala má um sprengingu, en þau voru notuð í örfáum tilfellum árið 1998. Það virðist þó ekki alveg verða á kostnað orðanna geðsjúkdómur og geðsjúkdómar en þau síðarnefndu voru á síðustu tveimur árunum notuð allt að fjórum sinnum sjaldnar. Notkun orðsins geðveiki breytist lítið og er hlutfallslega sú sama öll árin en orðunum geðsjúkl- ingur og geðsjúklingar fór verulega fækkandi frá árinu 1998. Árið 1993 kom upp eitt tilvik en fór upp í 28 tilvik 1998 og fækkaði svo aftur niður í átta árið 2003 og sex árið 2008. Jákvæð orð eins og geðheilbrigði, geðheilsa og geðrækt virðast ekki koma inn í umræðuna fyrr árið 2003 og þá með verkefninu Geðrækt. Orðið átröskun kom ekki til sögunnar fyrr en 1998 en þangað til er not- ast við erlendu heitin anorexía og bulímía eða/og svo ís- lensku heitin lotugræðgi og lystarstol. Sömuleiðis virðist orðið geðhjúkrunarfræðingur ekki hafa unnið sér sess í málinu 1993, en það er þá tiltölulega nýtt starfsheiti. Umfjöllun um geðraskanir fór sárasjaldan á forsíðu Morgunblaðsins þessi ár og er því samkvæmt fræðunum ekki talin söluvæn. Í þeim tilvikum sem umfjöllun um geðsjúkdóma fór á forsíðu er oftast um að ræða erlent frægt fólk eða fréttir sem tengjast geðröskunum. Annars voru fréttir sem vörðuðu geðraskanir eru svo fáar á for- síðu þessi ár eða ellefu talsins, að það er ekki hægt að greina neitt mynstur í efnistökum. Frétt fer aldrei bak- síðu, nema árið 2003 en þá verður sprenging. Er þá yf- irleitt verið að vísa í frekar umfjöllun inni í blaðinu en þá var uppi mikil umræða um átröskunarsjúkdóma. Annars fara nær allar greinar, fréttir eða viðtöl um geðraskanir eða fólk með geðraskanir fara á innsíður Morgunblaðsins þessi ár. Greinarnar hafa fræðslugildi og eru hlutlægar Greinar voru í meirihluta (66%), fréttir komu þar á eftir (28%) og hrein viðtöl ráku lestina (6%). Fréttirnar voru frekar af pólitískum toga eða fréttir af opinberri stefnu- mótun eða stjórnsýslu en það var þó ekki einhlítt. Það gátu líka verið stuttar fréttatilkynningar, t.d. frá Land- læknisembættinu og hagmunasamtökum. Greinarnar höfðu margar fræðslu- eða forvarnargildi en fjölluðu um Fagleg umfjöllun en fólk með geð- raskanir fjarverandi Í þessari þriðju og síðustu grein um birtingamyndir geðraskana og fólks með geðraskanir í fjölmiðlum, bæði almennt og í Morgunblaðinu á tímabilinu 1993-2008 er fjallað um meginniðurstöður rannsóknar greinarhöfundar og rætt við Styrmi Gunnarsson fyrrv. ritstjóra. Unnur H. Jóhannsdóttir ’ ,,Sýnileiki lækna og heilbrigð- isfólks er sex sinnum meiri en fólks með geðraskanir í um- fjöllun Morgunblaðsins og eru þá að- sendar greinar teknar með sem hífir töluna töluvert upp.“

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.