SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 12
12 30. janúar 2011 Miðvikudagur Hildur Rún Björns- dóttir tók Reyni Pét- ur á þetta í dag … 14 km með vagninn ;o) Sæl með roða í kinn- um … Gylfi Þór Þorsteinsson segir að á vinnustað sínum sé ótrúlega skemmtilegt fólk. Mér finnst gam- an að mæta í vinnuna á hverjum degi. Valur Benedikt Jónatansson spil- aði golf í Sandgerði í dag – 7 stiga hiti, léttskýjað og smágola. Það er víst janúar, bara frábært. Fimmtudagur Arnór Gísli Ólafsson segir að það sé vor í lofti. Sótti mótorfák- inn og tók dásam- legan rúnt í bænum í gær. Mér finnst að Trygg- ingastofnun eigi að niðurgreiða mótorhjól eins og önnur geðlyf. Föstudagur Sigurður Bogi Sæv- arsson sá par að kyssast í heita pott- inum í Laugardals- lauginni í gærkvöldi. Voðalega voru þau ástfangin og hamingjusöm! Má gera ráð fyrir að fjör færist í leikinn þegar heim er komið! Fésbók vikunnar flett Í slendingar virðast hafa unun afþví að skipta sér upp í tvær and-stæðar fylkingar og þessi spurn-ing er tilvalin til þess. Sumir munu svara játandi á meðan aðrir, ég þar á meðal, svörum nei, súrmaturinn er ekkert lostæti og hvað þá ómissandi. Auðvitað skilur maður forfeður okk- ar sem urðu að nýta þær aðferðir sem tiltækar voru til að geyma matvæli yfir vetrarmánuðina. Lambafita í súr sam- ræmist kannski ekki hugmyndum samtímans um æskilegt mataræði en þessi hitaeiningaríka fæða hélt lífinu í landanum í skammdeginu. Og vissu- lega er hægt að hafa skilning á því að menn vilji halda í gamlar hefðir, sem oft hafa gengið í arf kynslóð frá kyn- slóð. Þetta er í sjálfu sér ekkert sér- íslenskt. Á flestum menningarsvæðum eru til fornar matarhefðir sem aðrir en innvígðir eiga erfitt með að tileinka sér. Svíar eiga sinn surströmming, í suðurhluta Evrópu eru til ostar sem minna meira á lifandi verur en matvæli og í Alaska eru þorskhausar grafnir í jörð og síðan geymdir í fötum þar til þeir standa undir nafninu „stink heads“. Allt ómissandi lostæti í hugum hóps heimamanna. Súrmatur, kæst skata og hákarl sóma sér vel í þessum félagsskap og smell- passa inn í þennan afkima mat- armenningarinnar. Okkur sem ekki erum alin upp við súrmat (sem er líklega eina leiðin til að venjast þessu) finnst það vissulega broslegt hvað áhangendur þorramatar þurfa alltaf að dásama þetta fæði og vera með yfirlýsingar um hvað það sé mikið lostæti. Ef sú væri raunin ætti auðvitað að hafa þetta á boðstólum ár- ið um kring og jafnvel hefði maður búist við því að hér hefðu sprottið upp skyndibitastaðir til að anna hinni miklu eftirspurn, þar sem hægt væri að fá punga með frönskum eða þá að há- karlabitar væru bornir fram í staðinn fyrir hnetur á kokkteilbörum. Sú er hins vegar ekki raunin. Utan þessa eina mánaðar eru þessar afurðir fyrst og fremst notaðar til að hrekkja grunlausa ferðamenn, sem fölna og kúgast á meðan heimamenn veltast um af hlátri. MÓTI Steingrímur Sigurgeirsson, ritstjóri vefsins vinotek.is Það er engin spurning í mínumhuga, og hefur aldrei verið, aðsúrmaturinn er ómissandi áþorranum. Ekkert getur komið í staðinn fyrir þær aldagömlu hefðir sem eru í heiðri hafðar á þessum árstíma. Þorramaturinn er, og á að vera, í aðal- hlutverki í þessar fimm vikur og á meðan á fólk að leggja frá sér pasta, pítsur og annað slíkt. Ég er vanur súrmat úr barnæsku og það er margsannað að þetta er hollur matur. Pabbi byrjaði með þorramat strax og hann stofnaði fyrirtækið, fyrir 48 ár- um, fimm árum eftir að Naustið byrjaði með þetta. Við höfum því verið lengst allra í þessu. Við lögum allan okkar súrmat sjálf hér í Múlakaffi og hlustum ekki á neitt kjaft- æði um að hann sé óhollur vegna fitu eða annars. Mér hefur alltaf fundist pungarnir langbestir, alveg hreint magnaðir, og þeir eru langvinsælastir. En það eru tískubylgjur í þessu eins og öðru hjá þessari þjóð; fólk borðar orðið lítið af bringukollum og lundaböggum, líka hefur dregið úr því að fólk borði lifr- arpylsu og blóðmör, en að sama skapi er mjög aukin ásókn í pungana og sviða- sultuna. Það hefur reyndar dregið töluvert úr því að fólk borði súrmat í gegnum árin og í sumum veislum er lítið um hann en þeim mun meira um saltkjöt, hangikjöt, harðfisk, sviðakjamma og fleira slíkt. Fjölbreytnin er alltaf að aukast. En hvort sem menn eru hrifnir af súr- matnum sjálfum eða ekki verð ég mikið var við að fólki finnst það nauðsynlegur hluti af lífinu á þessum tíma árs að fá sér þorramat; það vill lyfta sér upp í skammdeginu og finnst skemmtilegt að gera sér dagamun með þessum hætti. Mörg þúsund manns borða þorramat frá okkur árlega; í heimahúsum, fyr- irtækjum, hesthúsum og sum- arbústöðum, svo ég nefni dæmi, og stemningin er alltaf mikil. Hjá okkur eykst salan á hverju ári og það segir sína sögu að aldurshópurinn er mjög breiður. Við erum með mötuneytið í Háskólanum í Reykjavík, og það vakti gríðarlega lukku hjá nemendum þegar við vorum með þorrablót þar í hádeginu fyrir stuttu. MEÐ Jóhannes Stefánsson, veitingamaður í Múlakaffi Er súrmatur ómissandi lostæti á þorranun? Mér hefur alltaf fundist pungarnir langbestir, alveg hreint magnaðir, og þeir eru langvinsælastir. Utan þessa eina mánaðar eru þessar afurðir fyrst og fremst notaðar til að hrekkja grunlausa ferðamenn.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.