SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 21

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 21
og Bjarkar í tilefni af Medúllu-plötu tón- listarkonunnar, þar sem m.a. voru not- aðir blómsveigar úr mannshári og hest- hári, búnir til eftir ævagamalli hefð af Ástu Friðbertsdóttur hjá Hárverki. „Myndlist getur virkað á ýmsan hátt, bæði á vegg en einnig á líkama, svo ég taki dæmi,“ segir hún og vísar þar til samstarfs við fatahönnuði í New York, m.a. Eddu Guðmundsdóttur. Athygli vakti fyrir nokkrum misserum þegar verk Hrafnhildar var sett upp í Museum of Modern Art, MoMa, í New York. „Það var samsarfsverkefni með brasilískum fjöllistahópi. Fólk frá MoMa kom á sýn- ingu hjá okkur og óskaði eftir hugmynd að verki í glugga sem verið er að nota í fyrsta skipti.“ Fulltrúar MoMa féllu fyrir tillögu þeirra Hrafnhildar, listaverk úr hári og neon- ljósum, sem hún vann síðan ásamt tveimur úr fjöllistahópnum a.v.a.f. „Það gekk glimrandi vel og í stað þess að verk- ið væri til sýnis í sex mánuði eins og gert var ráð fyrir var það haft uppi í eitt og hálft ár.Verkið var hressandi í skamm- deginu og virkaði eins og heilavítamín á mjög marga!“ www.shoplifter.us Hrafnhildur Arnardóttir á sýningu sem hún hélt í i8-galleríi fyrir tveimur árum. Úr skúlptúraröðinni Ímyndaðir Vinir 2010. Söngkonan Björk á Medúllu plötunni. 30. janúar 2011 21

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.