SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 19
30. janúar 2011 19 maganum að leika Pétur Pan. Þegar ég sagði þetta leit Friðrik Friðriksson, sem lék hlutverkið árið 1997, á mig og svaraði eftir nokkurra sekúndna þögn. Það yrði þá að vera ansi flippaður leikstjóri!“ Þórunn segir að leikari þurfi „að læra að dýrka og dá styrkleika sína“ og Jó- hannes Haukur tekur undir það. „Það er ósköp eðlilegt að leikstjóri velji leikara eftir því sem hentar best. Við leikararnir verðum síðan að passa upp á það sjálf að hafa þetta fjölbreytt.“ Þau hlakka bæði til að sýna fyrir fullu húsi af börnum. „Þetta eru uppáhalds- vikurnar mínar í leikhúsinu, svona síð- ustu tvær vikurnar fyrir sýningu þegar allt smellur saman,“ segir Þórunn og fé- lagi hennar tekur við. „Nema þegar mað- ur er í sýningum þar sem allt er í rugli, þá er þetta versti tíminn!“ „En þegar maður finnur árangur erf- iðisins og er bara að uppskera eins og núna, það er uppáhaldið mitt.“ Lærdómurinn og vináttan Sýningin hefur vissulega skemmtanagildi en hver er helsti lærdómur hennar? Jóhannes Haukur verður fyrir svörum. „Að hlusta á hvert annað og gefa hvert öðru gaum þó að við séum ólík. Að öllum líkindum getum við lært eitthvað af hin- um aðilanum. Verkið fjallar ekki síst um vináttu, að standa saman og hjálpa hvert öðru,“ segir hann. En skyldu þau hafa lært af hlutverkum sínum? „Ég er ekkert svo ólík þessari prinsessu. Ég er sjálf svo lífsglöð og finnst gaman að vera til. Þess vegna finnst mér hún kannski svona skemmtileg,“ segir hún og hlær. „Það kemur ekki alltaf fyrir en oft, að maður læri eitthvað af persónunum sem maður er að leika. Það fer eftir því hversu ólík hún er manni sjálfum. Maður er líka alltaf að spá í hvernig persónan sem mað- ur er að leika bregst við í sínum að- stæðum,“ segir Jóhannes Haukur. „Maður verður alltaf pínulítið betri manneskja held ég. Maður hugsar um persónurnar: Mig langar að verða svona eða mig langar alls ekki að vera svona og hugsar: Hvað get ég gert,“ segir Þórunn. Lærdómurinn er ekki síst fenginn frá öðrum leikurum. „Svo er hann Örn Árnason hérna með okkur og hann er með heil þrjátíu ár í bransanum að baki. Það er mikill fengur að hafa hann hér. Hann fleygir í okkur hverjum gullmol- anum á fætur öðrum á sviðinu með alls kyns ábendingar. Hann er mjög gjafmild- ur.“ Þórunn tekur undir þetta. „Og hann er alltaf að segja mér sögur af leikhúsinu í gamla daga, öllum kempunum hér í Þjóð- leikhúsinu.“ Jóhannes Haukur á stelpu sem er að verða tveggja og hálfs árs. „Ég er búinn að vera duglegur að fara með hana í leikhús. Hún hefur bara gott af því, ég ætla að láta hana sjá þetta fjórum fimm sinnum og held hún hafi bara gaman af því. Hún hefur séð mig leika áður en varð bara hrædd við mig. Tók mig ekkert í sátt fyrr en þegar hún var að fara að sofa um kvöldið. Hún þarf að venjast þessu stelp- an. Bara á meðan hún fer ekki að kalla í mig uppi á sviði!“ Er skemmtilegasta frænkan Þórunn á ekki barn en er „skemmtileg- asta frænka í heimi“ en systkini hennar eiga börn. „Það er ekkert skemmtilegra en að koma að gista hjá Tótu frænku. Þau fá öll miða á frumsýninguna. Ég hef líka verið að vinna mikið með krökkum, ver- ið með leiklistarnámskeið og í leikskóla og finnst það mjög skemmtilegt.“ Þórunn segir alltaf gaman að leika og Jóhannes Haukur tekur undir það. „Mað- ur venst því ekkert að vera á sviði og leika fyrir fimm hundruð manns. Það er stór- kostlegt í hvert skipti. Þú ert alltaf með fólk sem er að upplifa þetta í fyrsta sinn og það gefur manni svo mikla orku. Þetta er endalaust skemmtilegt.“ ’ Þetta eru uppáhalds- vikurnar mínar í leikhúsinu, svona síðustu tvær vikurnar fyrir sýningu þegar allt smellur saman. Morgunblaðið/Kristinn

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.