SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 28
28 30. janúar 2011 Mér skilst að hann sé í endurskoðun og vonandi bera menn gæfu til að setja saman raunhæft plagg í þetta skiptið. Stjórnendur RÚV hafa alltof lengi verið í þeim fasa að líta á kvikmyndagerðarmenn sem enn einn þrýstihópinn sem þarf að díla við, jafnvel af illri nauðsyn. Það er auðvitað mikill misskilningur, það er ekkert „þeir gegn okkur“-dæmi í gangi, við til- heyrum öll sama hópnum, fólkinu sem býr til dag- skrá fyrir íslenskt sjónvarp. Sum okkar vinna inn- anhúss, önnur utanhúss en þetta er sama mengið.“ Gerum það samt Þú hefur verið kvikmyndagerðarmaður í fjölmörg ár. Er auðvelt að gera íslenska kvikmynd í fullri lengd í dag? „Ja, nú hef ég ekki gert slíka mynd sjálfur en mér skilst á kollegum mínum að það hafi aldrei verið auðvelt, oftast bölvað vesen, og þá skipti meint góðæristímabil litlu máli. Þegar hrunið kom hugs- aði maður: Já, nú eru allir Íslendingar orðnir blankir og komnir á sama stað og kvikmyndagerð- armenn sem hafa alltaf þurft að berjast í bökkum. kerfið og menntamálaráðherra hefur reyndar tekið vel í þær hugmyndir.“ RÚV er ekki fréttastöð Kvikmyndagerðarmenn hafa verið afar gagn- rýnir á Ríkissjónvarpið og sagt að það standi ekki vörð um íslenska menningu. Er þetta ekki of hörð gagnrýni? „Þetta er í rauninni sárgrætilegt upp á að horfa því ég vil veg Sjónvarpsins sem mestan. Eitt af helstu vandamálum þess, og það er eins og það hafi ágerst með árunum, er að fréttir eru þar upphaf og endir alls. Fréttamenn hafa til dæmis hertekið inn- lenda dagskrárdeild. Hvers vegna, með allri virð- ingu fyrir því ágæta fólki? Fréttir birta okkur aðeins takmarkaða sýn á samfélagið, þó að fréttamenn og pólitíkusar virðist stundum halda annað. Núverandi útvarpsstjóri, sem gat sér góðan orðs- tír sem fréttamaður, virðist leggja sig fram við að gleyma því að erindi RÚV, samkvæmt lögum, er ekki aðeins fólgið í því að sinna fréttaflutningi. RÚV er ekki fréttastöð. RÚV hefur einnig skil- greindar menningarlegar skyldur. Það er annað jafnmikilvægt erindi. Ég sé hins vegar fá merki um að þeim skyldum sé sinnt af einhverri sannfæringu í Sjónvarpinu. Hvar er metnaðarfull áætlun um uppbyggingu leikinnar dagskrárgerðar? Hvar er samskonar plan um sýningar á vel unnum heim- ildamyndum sem taka á samfélagi okkar og sögu með einhvers konar markvissum hætti? Það er hlutverk stjórnenda RÚV að hafa á þessu skoðanir og taka frumkvæði. Leggja fram sínar áætlanir þannig að hægt sé að fylgjast með og skapa umræð- ur og aðhald. Hvar er dagskrárstefna Sjónvarpsins, sem þeim er uppálagt að leggja fram samkvæmt þjónustu- samningi? Mér skilst að þeir hafi sagt ráðuneytinu að dagskrárstefnan birtist á skjánum á hverjum degi og það væri nóg. Það er auðvitað ekki nóg. Bæði er framkvæmdinni afar ábótavant og annað er að án gegnsærrar markmiðasetningar endar öll umræða um dagskrá Sjónvarpsins í einhverjum þrætum og hnútukasti, yfirsýn skortir og þá er stutt í fjas um aukaatriði. Ég reyndi að spyrja Pál út í þetta á málfundi um RÚV um daginn. Hann sagð- ist ekki skilja spurninguna. Og talandi um þjónustusamninginn. Samkvæmt honum átti að auka hlutfall innlends efnis úr 44% í 65% á fimm árum. Og þar sem tekið var fram að ekki ætti að auka við hlut frétta var í rauninni verið að tala um 150% aukningu á því sem við köllum innlenda dagskrárgerð. Vissulega metnaðarfullt og þarft plan, en samningurinn er auðvitað rústir ein- ar núna og hefur verið það í raun mestallan tímann. Kvikmyndaáhugamenn fengu góða við-bót þegar Bíó Paradís við Hverfisgötutók til starfa en þar eru sýndar gamlarog nýjar gæðakvikmyndir. Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðarmaður er dagskrár- stjóri kvikmyndahússins. Hann segir starfsemina ganga vel. „Við erum í uppbyggingarferli og lítum á þetta sem langhlaup. Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur stutt okkur með ráðum og dáð, borgaryfirvöld hafa sýnt stuðning sinn í verki frá upphafi og nú höfum við einnig fengið afar góðan stuðning frá ríkinu. Þetta eru afar þakklát framlög og þau gera þessa til- raun mögulega en dekka aðeins hluta kostnaðarins. Þess vegna erum við að miklu leyti upp á náð ís- lenskra bíógesta komin, en það er bara ágætis hlut- skipti. Þetta er fyrir þá gert. Okkar spurning er hvort nægilega margir séu þarna úti sem vilja fara aðrar leiðir, prófa nýja hluti.“ Hver er sérstaða Bíós Paradísar? „Bíóið hefur mjög skýrt erindi: að efla fjölbreytni í framboði kvikmynda á Íslandi. Það eru kvik- myndagerðarmenn sem standa að þessum rekstri ásamt Alþjóðlegri kvikmyndahátíð og grasrót- arsamtökum kvikmyndaunnenda og það er vegna þess að okkur rennur blóðið til skyldunnar. Á end- anum er þetta spurning um kvikmyndamenningu í landinu. Að almenningur hafi reglulegt aðgengi að fjölbreyttu úrvali kvikmynda og hafi tækifæri til að kynnast margs konar frásagnaraðferðum og and- rúmslofti sem er í mörgum tilfellum ólíkt því sem býðst innan meginstraumsins frá Hollywood. Við leggjum áherslu á að sýna það sem önnur kvik- myndahús hafa ekki verið að sýna nema að tak- mörkuðu leyti. Ég vil hins vegar taka skýrt fram að við stillum okkur ekki upp gegn hinum kvik- myndahúsunum heldur lítum við á okkur sem við- bót. Við eigum í mjög góðu samstarfi við þau, enda eru þau einnig dreifingaraðilar og við fáum margar myndir frá þeim Kvikmyndamenning okkar er fátækleg. Við Ís- lendingar förum þjóða mest í bíó, en við vitum ekki mikið um kvikmyndir, annað en Hollywoodfram- leiðsluna. Á Íslandi er ennþá verið að deila um hvort kvikmynd sé listform. Meira að segja innan stjórnkerfisins finnum við kvikmyndagerðarmenn að þetta er dregið í efa. Þetta er afleiðing af áratuga vanrækslu og sinnuleysi gagnvart möguleikum kvikmyndarinnar. Hún er miklu meira en bara popp og kók, þótt það geti verið ágætt stundum. Samfara því að stofna þetta bíó komum við líka með hugmyndir um að nota bíóið til að stunda markvissa kvikmyndakennslu fyrir börnin og ung- linga. Við viljum koma þessari kennslu inn í skóla- Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@ mbl.is Meira en bara popp og kók Tólf ára gamall var Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerð- armaður orðinn kvikmyndagagnrýnandi og þrettán ára gerði hann fyrstu mynd sína. Líf hans hefur snúist um kvikmyndir. Í viðtali ræðir hann meðal annars um kvik- myndagerð og menningarlegar skyldur RÚV. ’ Þegar hrunið kom hugsaði maður: Já, nú eru allir Íslendingar orðnir blankir og komnir á sama stað og kvikmynda- gerðarmenn sem hafa alltaf þurft að berjast í bökkum. Kalt mat er að í raun sé ekki hægt að gera bíómyndir á Íslandi. Við bara gerum það samt.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.