SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Blaðsíða 35
tímabili frá ’83-’94 létust 13 börn, 35 til viðbótar voru næstum því drukknuð og þrjú þeirra varanlega sköðuð.“ Hún fór með gögnin til ráðherra bara til að komast að því að það þýðir ekkert að sýna ráðamönnum tölfræði. „Það er betra að taka þá á persónulegu nótunum og tala máli eins einstaklings. Þeir eru svo vanir að skoða tölfræði.“ Hún lét þennan mótvind í upphafi ekki á sig fá. „Ég er þannig gerð að ég læri af öllu sem ég geri. Ég geri fullt af mistökum en læri af þeim og byggi mig sjálfa upp. Þetta kenndi mér mikið og styrkti mig sem manneskju. Ég fékk þetta í gegn á endanum, það var sett reglugerð um ör- yggi á sundstöðum sem mætti þvílíkri andstöðu. Þeir sem æptu hæst voru rekstraraðilar sundstaðanna. Í dag fagna þeir einmitt þessum reglum varðandi ör- yggi,“ segir hún en það er ástæða fyrir því að hún tekur þetta dæmi þegar litið er til baka, því það hefur skilað miklum ár- angri. „Í dag hefur þessi vinna skilað því að við erum með lægstu tíðni drukknana í hinum vestræna heimi. Það horfa lönd hingað og spyrja hvað gerðuð þið til að ná þessum árangri,“ segir hún og nú síðast fékk hún fyrirspurn frá spænska heil- brigðisráðuneytinu og er að aðstoða það við að bæta úr þessum málum þarlendis. „Drukknanir heyra nánast fortíðinni til hér og þetta hefur lækkað dánartíðni barna alveg óskaplega mikið á Íslandi,“ segir Herdís sem leggur samt áherslu á að hún geri ekki neitt ein. „Ég er bara lítill hlekkur í stórri keðju, ef ég fæ ekki aðra með mér þá gerist ekki nokkur skapaður hlutur.“ Slysavarnir eru stöðug vinna, það þarf alltaf að breyta og bæta og aðlaga nýjum aðstæðum. „Við getum alltaf gert betur og þurfum að horfa gagnrýnum augum á okkar starf,“ segir hún en í gegnum tíðina hefur mikið af hennar starfi farið í það að gæta þess að það sé tekið tillit til barna í reglugerðum. Henni finnst þurfa viðhorfsbreytingu á ýmsum sviðum. Hún er líka þreytt á því að talað sé um slys eins og eitthvert lög- mál. „Orðið slys er svo mikið notað að það eru allir búnir að gleyma því hvað orðið þýðir. Staðreyndin er sú að slys er ekki tilviljun. Það er hægt að fyrirbyggja 98% allra slysa. Við eigum ekki að sætta okkur við slysin heldur horfa á þessa núllsýni. Við getum aldrei tekið smotteríisslysin í burtu, að börn fái skeinur og skrámur. Það er hluti af lífinu.“ Viðhorf til uppeldis Líka þarf að horfa til uppeldisins. „Gamla uppeldiskenningin að börn þurfi að læra á umhverfið gengur ekki. Það þarf að átta sig á því að börn geta ekki lært af um- hverfinu fyrr en þau eru átta ára gömul.“ Hún tekur dæmi. „Fjögurra ára gamalt barn er eitt úti að leika sér í garðinum og það er pollur á lóðinni. Þarna erum við með barn sem hefur ekki þroska, aldur eða getu til að sjá hættuna í pollinum. Pollurinn hefur hinsvegar aðdráttarafl fyrir barnið. Þarna ertu komin með tvo þætti, hættuna í umhverfinu og barn sem skortir þroska. Þriðji þátturinn er að það er ekkert eftirlit með barninu og þar með hækka verulega prósentulíkurnar á því að barnið drukkni. Ef þú vilt að barnið sé eitt úti í garðinum á þessum aldri þarftu að sjá til þess að það sé ekki pollur þar en af því að pollurinn er þar þarftu að vera úti með barninu. Þetta er ég að reyna að leggja áherslu á í mínu starfi.“ Herdís sér fyrir sér tækifæri til þess núna að endurskoða forvarnir, byrja fyrr og að fólk á mismunandi sviðum lýðheilsu vinni saman hvort sem rætt er um mann- eldi, reykingar, slys eða fíkniefni. „Það er tækifæri til þessa núna. Þjóðfélagið er í naflaskoðun, við þurfum að grípa tæki- færið, fara í endurskoðun og horfa jákvætt fram á veg. Börnin eru framtíðin,“ segir hún en eftir samtal við Herdísi verður þessi setning sem svo oft er farið með ein- hvern veginn sannari. Alltaf að slökkva elda „Það býr mikill auður í börnum og við eigum að styðja foreldrana betur. Við er- um alltaf að slökkva elda í áfengis- og vímuvörnum. Við eigum að styrkja grunninn sem er fjölskyldan. Það er ekki meðfætt að ala upp barn.“ Hún hefur tekið á móti mörgum ný- bökuðum foreldrum á forvarnanámskeið og er nú svo komið að kynjaskiptingin er orðin nokkurn veginn jöfn. „Öryggis- málin á heimilinu voru kvennamál. Núna er miklu meira um það að karlmenn hringi með fyrirspurnir. Þetta hefur breyst mikið á síðustu fjórum eða fimm árum. Karlmenn taka hlutverki sínu sem feður mjög alvarlega.“ Eitt af því sem Herdís gerir er að svara fyrirspurnum frá foreldrum um öryggis- mál og fyrirspurnirnar eru margar, bæði í gegnum síma og tölvupóst. Þegar blaða- maður heimsótti hana snemma morguns höfðu henni borist átta fyrirspurnir frá foreldrum, og það var aðeins frá því hún kíkti á tölvupóstinn sinn síðast klukkan tíu kvöldið áður. Herdís lærði ennfremur kennslu- og uppeldisfræði í Danmörku en þar var lögð áhersla á gagnrýna hugsun. „Börnin voru til dæmis búin að mynda sér skoðun á endurvinnslu. Ég kom líka einu sinni inn í bekk þar sem verið var að kenna sex ára börnum að horfa gagnrýnum augum á auglýsingar. Þetta finnst mér skorta í uppeldinu hérna,“ segir hún en er ekki aðeins að skora á menntakerfið. „Þetta er alltaf samstarf milli heimilis og skóla. Ég ber ábyrgð á mínu barni, að það fari eftir settum reglum og hagi sér.“ 30. janúar 2011 35 Starf Herdísar tekur ekki bara til yngstu barnanna heldur líka þeirra eldri. „Áhættuhegðun er í tísku meðal unglinga. Kannski vegna þess að það er búið að taka sköpunargleðina frá börnunum og allt kemur upp í hend- urnar á þeim? Að minnsta kosti er hluti af þessu að börnunum leiðist og í kjöl- farið fylgir áhættuhegðun,“ segir hún og bætir við að hún hafi heyrt frábær- an fyrirlestur frá kollega sínum um þetta mál fyrir tveimur árum, sem gengur út á það að ekki dugi að banna unglingunum að gera eitthvað heldur frekar fræða þau um áhættuna. „Þessi kona kennir börnunum að taka yfirvegaða ákvörðun og reikna út áhættuna,“ segir hún og útskýrir nán- ar. „Það er orðið þannig að áhættu- hegðun er eitthvað sem krakkar gera og stunda. Það er ekki hægt að segja þeim að gera þetta ekki því þau eru bú- in að ákveða sig. Tökum dæmi af 12 ára stráki á fjallahjóli sem er búinn að vera að horfa á aðra stráka stökkva í sjónvarpinu. Hann á sjálfur ekki sér- stakt hjól til að stökkva á eins og þarf. Síðan þarf líka að læra að nota þessi hjól, læra að detta án þess að meiða sig og líka nota réttan öryggibúnað. Það að kenna börnum að vega og meta áhættuna áður en þau taka hana skilar miklum árangri. Barnið hættir við, því það hefur vitsmunaþroska til að reikna út áhættuna. Þetta skilar sér líka í betri bílstjórum þegar þessir sömu krakkar taka síðan bílpróf.“ Hún tekur dæmi um að eitt sumarið hafi börn mikið verið að hoppa á hjól- um, dottið og fengið stýrið í magann. „Oft er þetta á lokuðum svæðum langt frá mannabyggðum. Þegar börn hafa sett líffæri í sundur getur þetta verið spurning um tíu mínútur. Það er betra að fara þessa leið, að kenna þeim að reikna út áhættuna. Það þarf að endur- skoða forvarnir. Það er ekki bara hægt að banna. Maður verður að fá börnin í lið með sér. Öll athyglin í mínu starfi hefur fyrst og fremst beinst að for- eldrum hingað til, því ég hef bara ekki komist yfir meira.“ Áhættuhegðun unglinga í tísku

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.