SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Side 8
8 30. janúar 2011
Andy Gray og Richard Keys brá
sannarlega í brún þegar þeir sáu
Sian Massey taka sér stöðu á
hliðarlínunni í leik Úlfanna og Liv-
erpool. Eftir að hafa náð áttum
skiptust þeir á eftirfarandi orðum:
Richard Keys: „Einhver þarf að
drífa sig niður og útskýra rang-
stöðuna fyrir henni.“
Andy Gray: „Einmitt. Trúirðu
þessu? Kvenkyns línuvörður! Akk-
úrat það sem ég var að segja. Þær
vita sennilega ekki út á hvað
rangstaða gengur.“
Keys: „Auðvitað ekki.“
Gray: „Hvers vegna erum við
með kvenkyns línuvörð? Einhver
hefur hlaupið rækilega á sig.“
Keys: „Ég lofa þér að eitthvað
fer í handaskolum í dag. Kenny
[Dalglish] tapar sér. Þetta er ekki
í fyrsta skipti. Höfum við ekki haft
aðra?“
Gray: „Jú.“
Keys: „Wendy Toms?“
Gray: „Wendy Toms, eitthvað á
þá leið. Hún var kolómöguleg
líka.“
Keys: Andvarpar.
Gray: Orðaskil heyrast ekki.
Keys: „Nei, nei, það verður að
gera þetta. Það er besta mál.
Leikurinn er genginn af göflunum.
Sástu hina hrífandi Karren Brady
[varaformann West Ham] kvarta
undan kynjamisrétti í morgun?
Gerðu mér greiða, elskan!“
Leikurinn er genginn af göflunum!
Andy Gray og Richard Keys í myndveri Sky Sports meðan allt lék í lyndi.
Þegar Sian Massey, 25 ára gömul kennslu-kona frá Coventry, mætti til að sinna að-stoðardómgæslu (áður línuvörslu) á leikWolverhampton Wanderers og Liver-
pool á Molineux í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu um liðna helgi renndi hún ekki grun í að
leikurinn ætti eftir að breyta lífi hennar – og
þriggja ókunnugra manna að auki. Þvílík hefur
umfjöllunin og ágangurinn verið síðan að enska
knattspyrnusambandinu þótti affarasælast að hún
yrði ekki á línunni á leik Crewe Alexandra og
Bradford City á þriðjudag. Þá hefur aumingja Mas-
sey þurft að gista hjá vinafólki í vikunni vegna
tjaldbúða fjölmiðla við heimili hennar.
Ekki svo að skilja að Massey hafi staðið sig svona
illa í þessum öðrum leik sem hún tekur þátt í að
dæma í úrvalsdeildinni, hún þótti þvert á móti
skila sínu hnökralaust. Á hinn bóginn hafa um-
mæli sem þrír sjónvarpsmenn hjá Sky Sports-
stöðinni létu falla um hana og lekið var í fjölmiðla
farið eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Þykja
téð ummæli bera vott um karlrembu á lokastigi. Á
upptökunni heyrast þáttarstjórnandinn Richard
Keys, lýsandinn Andy Burton og sparkskýrandinn
Andy Gray tala niður til Massey. Ummælin heyrð-
ust ekki í beinni útsendingu en voru hljóðrituð og
svo virðist sem einhverjum starfsmanni stöðv-
arinnar hafi misboðið þau með fyrrgreindum af-
leiðingum. Þremenningarnir heyrast meðal ann-
ars velta fyrir sér aðdráttarafli Massey og gera því
skóna að hún sé ekki starfi sínu vaxin þar sem
konur skilji ekki rangstöðuregluna.
Uppákoman hefur sannarlega dregið dilk á eftir
sér, sjónvarpsstöðin spjaldaði þríeykið þegar í stað
og á þriðjudaginn leysti hún Gray undan samningi
sínum. Kornið sem fyllti mælinn var raunar annað
nýlegt atvik, þar sem Gray þótti hafa óviðeigandi
tilburði í frammi gagnvart samstýru sinni, Char-
lotte Jackson, áður en þáttur þeirra á Sky Sports
fór í loftið fyrir jólin. Aftur stóðu upptökuvélar
Gray að verki. Jackson leiddi látbragð hans raunar
hjá sér en téðum Richard Keys var skemmt.
Andy Gray iðraðist gjörða sinna í yfirlýsingu á
miðvikudag. Kvaðst vera miður sín yfir þróun
mála. „Mér þykir afskaplega miður að ákveðin
ummæli sem ég lét falla hafi valdið þessum usla.
Þau voru viðhöfð við vinnufélaga meðan við vor-
um ekki í útsendingu og áttu aldrei að fara í loftið.
Knattspyrna er líf mitt og ég er miður mín yfir því
að hafa misst starfið sem var mér svo kært. Ég
harma líka að fleira fólk hafi dregist inn í málið og
bið fjölmiðla að virða einkalíf þess svo það geti
haldið áfram að sinna sínum skyldum.“
Hermt er að Gray hafi fengið 1,7 milljónir sterl-
ingspunda í árslaun hjá Sky en það jafngildir 313
milljónum íslenskra króna.
Keys sagði starfi sínu lausu
Keys og Burton hafa líka beðist opinberlega afsök-
unar á ummælum sínum og sá fyrrnefndi hringdi
meira að segja í Massey. Eftir brottrekstur Grays sá
hann hins vegar sæng sína upp reidda og sagði
starfi sínu lausu.
„Ég harma ummæli mín og leiðindin sem þau
hafa valdið; þau voru óverjandi og áttu aldrei að
falla. Ég hef velt málinu vandlega fyrir mér og
komist að þeirri niðurstöðu að best sé að róa á ný
mið. Það hefði verið nær óhugsandi að halda
áfram án Andys,“ sagði Keys í yfirlýsingu.
Framkvæmdastjóri Sky Sports, Barney Francis,
samþykkti uppsagnarbeiðni Keys en lét þess getið
að skemmtilegra hefði verið að hann hefði hætt
undir öðrum kringumstæðum. Eigi að síður þakk-
aði Francis Keys vel unnin störf gegnum árin og
þátt hans í því að gera Sky Sport að því sjónvarpi
sem það er í dag.
Brotthvarf Andys Grays og Richards Keys
markar tímamót hjá Sky Sports en þeir hafa öðr-
um fremur verið andlit stöðvarinnar allar götur
frá því hún hóf beinar útsendingar frá ensku úr-
valsdeildinni árið 1992, ásamt erkilýsandanum
Martin Tyler. Segið svo að konur geti ekki haft af-
gerandi áhrif á gang mála í ensku úrvalsdeildinni –
þær þurfa bara að mæta á völlinn.
Gray Andy
Helsta sparkskýranda Sky
Sports-stöðvarinnar sagt upp
fyrir að tala niður til kvenna
Sian Massey á línunni á Molineux. Hún velti aldeilis þungu hlassi.
Reuters
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Andy Gray, sem er 55 ára
gamall, var einn skæðasti
miðherjinn í ensku knatt-
spyrnunni á árum áður, meðal
annars með Aston Villa, Úlf-
unum og Everton. Seint verð-
ur sagt að hann sé við eina
fjölina felldur í kvennamálum
en Gray á fimm börn með fjór-
um konum. Hann mun vera á
lausu um þessar mundir.
Marksækinn
og kvenhollur
ÞORRINN 2
011
Þorrahlaðborð
– fyrir 10 eða fleiri –
1.990
kr. á mann
www.noatun.is