SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Page 13
Birgitta Jónsdóttir, þingmaðurHreyfingarinnar, komst íheimsfréttirnar þegar sam-skiptavefurinn Twitter greindi
frá því að bandarísk yfirvöld hefðu farið
fram á að upplýsingar um samskipti
hennar á vefnum í sambandi við rann-
sókn þeirra á starfsemi uppljóstr-
unarsamtakanna WikiLeaks yrðu látnar af
hendi.
„Þetta er tímamótamál,“ segir Birgitta.
„Ég hef fengið til liðs við mig bandaríska
lögfræðinga, sem taka málið að sér án
endurgjalds og hafa látið mig fá nýja trú á
lögmannastéttinni. Þetta mál verður
einnig tekið fyrir hjá alþjóðaþingmanna-
sambandinu, sem er að vinna skýrslu um
málið því að þetta er ný hlið á réttinum til
friðhelgi einkalífsins á Facebook, Google,
Twitter og í tölvupóstinum þínum. Twit-
ter er minnsta málið, þeir börðust, en ég
hef ekkert heyrt frá hinum þar sem hægt
er að sjá mitt tengslanet, hvort ég styðji
Bradley Manning eða frelsisbaráttu Tíbet
svo dæmi sé tekið. Síðan er allur einka-
pósturinn minn á Gmail.“
Twitter fékk bréf 14. desember frá
dómstóli í Virginíu þar sem farið var fram
á að gögn Birgittu og fjögurra annarra,
Bradleys Manning, sem situr í fangelsi
grunaður um að hafa lekið ógrynni upp-
lýsinga til WikiLeaks, Julians Assange,
forustumanns WikiLeaks, og tveggja for-
ritara, Rops Gonggrijp og Jacobs Appel-
baum, yrðu látin af hendi.
„Þar var farið fram á að þessi gögn yrðu
afhent innan þriggja daga án þess að við
vissum af því,“ segir Birgitta. „Þessi fyr-
irskipun var lokuð, en Twitter krafðist
þess að leyndinni yrði aflétt. Þegar það
tókst sendi Twitter okkur tölvupóst og
vakti athygli á málinu ásamt beiðninni.
Þeir sögðu mér hvað ég hefði langan tíma
til að bregðast við og bentu mér á að ég
gæti leitað til samtakanna EFF [Electronic
Frontier Foundation] og ACLU [American
Civil Liberties Union].“
Hryðjuverkavæðing WikiLeaks
Svo vildi til að Birgitta hafði kynnst John
Perry Barlow, einum stofnenda EFF, í
tengslum við hugmyndina um fjöl-
miðlafríríki á Íslandi , og samtökin útveg-
uðu henni sinn fremsta lögfræðing sér til
aðstoðar.
„Á miðvikudagsmorgun skiluðu þeir
inn málsvörn minni, en slík leynd hvílir
yfir þessu máli að það má ekki birta hana
og mér finnst það mjög óþægilegt,“ segir
hún. „Á hinn bóginn er ég ánægð með að
farið var gegn mér því að þá fæ ég tæki-
færi til að vekja athygli fólks á að öryggi
þess á samskiptavefjum, sem eru hýstir í
Bandaríkjunum, er ekki neitt, því að bæði
eru upplýsingarnar seldar til fyrirtækja og
síðan hefur ríkisstjórn Bandaríkjanna
beint aðgengi að þeim. Um leið og eitt-
hvað fer af stað sem yfirvöld setja undir
hið víðfema hryðjuverkahugtak eru þeim
allar leiðir opnar - og nú er búið að
hryðjuverkavæða WikiLeaks og kalla þá
að nethryðjuverkamenn. Ég treysti mér
ekki til að ferðast til Bandaríkjanna eins
og stendur eftir eindregin fyrirmæli frá
mínum lögfræðingum vegna hættunnar á
að ég verði sett í varðhald eða þurfi að
sæta óþægilegum yfirheyrslum.“
Til marks um að þetta séu engir órar
bendir Birgitta á að Applebaum hafi verið
handtekinn og færður til yfirheyrslu þeg-
ar hann kom til Bandaríkjanna.
„Hann er reyndar svo mikill prakkari
að hann var með dulkóðað skjal með sér,“
segir hún. „Þegar þeir opnuðu skjalið
reyndist þar vera fyrsta viðbótargreinin
við bandarísku stjórnarskrána þar sem
bann er lagt við setningu hvers kyns laga
sem hefta málfrelsi og fjölmiðlafrelsi.“
Birgitta segir að hún hafi hvergi komið
nálægt lekanum sjálfum til WikiLeaks,
þótt hún hafi átt þátt í að koma á framfæri
við almenning myndbandinu, sem sýndi
árás bandarískra hermanna á óbreytta
borgara í Bagdad.
„WikiLeaks virkar þannig að þeir taka á
móti brúna umslaginu með upplýsing-
unum,“ segir hún. „Þess vegna er fráleitt
að aðeins skuli ráðist á þá, en ástæðan er
að það er auðvelt. Áður fyrr tóku blöðin
við brúna umslaginu beint eða óbeint og
reyndu að átta sig á hvort gögnin væru
ekta eða fölsuð. Nú beinast spjótin að
WikiLeaks, en eru blöðin næst?“
Uppljóstrarar gæti sín
Birgitta segir einnig að þetta mál sýni að
þeir, sem vilja fara í hlutverk uppljóstr-
arans, þurfi að gæta sín.
„Nú gerist það í ríkara mæli að fjöl-
miðlar fá til sín rafræn gögn og það er
auðvelt að rekja þau til upprunans ef þau
eru ekki afhent með öruggum hætti,“
segir Birgitta. „Ef fólk er með mikilvægar
upplýsingar vara ég það við því að senda
þær í tölvupósti og alls ekki í gegnum Go-
ogle. Það er eins og að senda póstkort og
fólk verður að hafa í huga að þessi gögn
eru geymd í sjö ár vegna markaðs-
rannsókna og afhent yfirvöldum án þess
að fólk sé látið vita.“
Tengsl Birgittu við WikiLeaks urðu til
þess að nafn hennar var nefnt eftir að
greint var frá því nú í janúar að í febrúar í
fyrra hefði fundist grunsamleg tölva í
skrifstofu í húsakynnum Alþingis, sem
líkast til hefði verið notuð til að hlaða nið-
ur gögnum úr tölvukerfi þingsins. Hún er
Gerum hlutina saman
Birgitta Jónsdóttir hef-
ur verið í eldlínunni
vegna óskar banda-
rískra stjórnvalda um
að fá upplýsingar um
samskipti hennar á
vefnum Twitter og að-
dróttana vegna ein-
kennalausrar tölvu
sem fannst fyrir ári í
húsakynnum Alþingis.
Hún gagnrýnir sam-
skiptahætti í íslenskri
pólitík og hvetur
stjórnmálamenn til að
leggjast saman á ár-
arnar.
Texti: Karl Blöndal kbl@mbl.is
Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson „Þó að maður geti fengið eitthvað út úr því að komast vel að orði í ræðustól og koma höggi á einhvern snýst starfið ekki um það.“
’
Það truflar mig að við
– eða ég – höfum legið
undir grun í 11 mán-
uði án þess að talað væri við
mig. Allan þennan tíma
fylgist fólk með mér og horf-
ir á mig tortryggnum augum
án þess að ég fái tækifæri til
að bera þetta af mér.