SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Side 36

SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Side 36
36 30. janúar 2011 Hún tekur dæmi um að barn sem hefur fengið að gera allt og er aldrei stoppað mun haga sér nákvæmlega eins þegar það kemur út í umferðina en á þennan hátt eru forvarnir á ýmsum sviðum tengdar. „Ég hef alltaf verið að berjast við vind- myllur. Alltaf á einhverra ára fresti hefur staðið til að leggja verkefnið niður. Það fer svo mikil orka í þetta og það er synd því við erum komin svo langt á Íslandi. Nú langar mig að klára þetta og koma okkur alla leið, þannig að við verðum ekki bara á meðal bestu þjóða heldur besta þjóðin. Ekki vegna þess að þetta sé eitthvert kapphlaup heldur það að þá slasast færri börn,“ segir Herdís, sem tekur ávallt nærri sér þegar hún les um börn sem slas- ast. Skortir úrræði í refsingum Það sem henni finnst ábótavant nú er að það skortir úrræði til að refsa þeim sem fara ekki eftir reglugerðum. „Foreldrar eru orðnir gífurlega meðvitaðir og sömu- leiðis opinberir aðilar. Við erum komin með regluverkið en ef það verður slys og í ljós kemur við rannsókn slyssins að reglu- gerðir hafi verið brotnar þá gerist ekkert í kerfinu. Ástralir eru komnir lengst allra í heiminum í slysavörnum, þangað sem við erum að hugsa um að fara á næstu tuttugu árum. Þeir segja að með fræðslu og marg- víslegum og vel skipulögðum áróðri sem er sniðinn að öllum samfélagshópum sé hægt að ná 60-70% árangri. Þú þarft á sama tíma að taka á öllu umhverfi og það tryggirðu með lögum og reglum. Síðan þarftu að vera með úrræði, því annars nærðu ekki hámarksárangri. Ef það verð- ur slys verður að rannsaka slysið og það þarf að leiða til þess að einhver verði dreg- inn til ábyrgðar. Þarna erum við alveg í botni að mínu mati. Mér finnst þetta áhyggjuefni þegar búið er að hafa mikið fyrir því að fræða fólk og berjast fyrir því að fá lög og reglugerðir settar til að tryggja öryggi borgaranna að það sé hægt að snúa sér við þegar barn stórslasast og sagt sé við foreldrana: „Því miður, þetta var bara slys.“ Það er ekkert sem heitir slys. Þarna þurfum við að taka okkur mikið á,“ segir hún og bendir á að fjöldi auglýsinga frá fyrirtækjum sem auglýsi að þau sérhæfi sig í slysabótum sé til kominn vegna þess að það sé vandræðagangur í kerfinu. Hún segir að líka þurfi að vera hægt að sekta þá sem eru tregir til þess að fara eftir reglugerðum. „Það er allt í lagi að rekstr- araðilar séu beittir fjársektum því það virkar. Ég segi oft að fólki sé illt í budd- unni. Sektin gæti þess vegna runnið til forvarnarstarfs.“ Hún bendir á að foreldrar séu jafnan skynsamar manneskjur og þjóðin ágæt- lega menntuð og því horfi hún björtum augum á framtíð forvarna. „Við þurfum að hugsa upp á nýtt þegar við eignumst barn, það þarf að tryggja öryggi barnsins. Til að undirstrika mikilvægi þessa vil ég benda á að helsta dánarorsök barna og ungs fólks hér á landi er slys en margir halda að það séu sjúkdómar. Fólk er duglegt við að mæta í eftirlit á heilusgæslustöðvar og í bólusetningar sem er auðvitað mikilvægt en slys er mesta ógnin. Og þar er boltinn nánast alfarið í höndum foreldranna.“ Hún ítrekar að það þurfi að samhæfa forvarnir og hugsa til lengri tíma. Sem stendur er hún að skipuleggja verkefni sitt til næstu tíu ára. Hún segir árangur slysa- varna mældan á tíu ára tímabili, sem henti ekki vel inn í kerfi þar sem stjórn- málamenn séu kosnir á fjögurra ára fresti. „Nú vildi ég sjá sett djarfleg markmið um Börnin á leikskólanum Hagaborg undu sér glöð að leik þegar ljósmyndara bar að garði og þakkar blaðið þeim kærlega fyrir fyrirsætustörfin. ’ Ég hef ávallt sagt skoðun mína, aldrei þagað yfir henni en tekið afleiðingunum og hef ekki alltaf verið vel liðin fyrir það. Ég er mikil bar- áttumanneskja og geri hlutina vel eða sleppi þeim. Óhætt er að segja að sýning Karls Lagerfeld hjá Chanel á ný- afstaðinni hátískuviku í París hafi verið mikil ljósasýning. Ekki af því hann hafi beitt svona miklum tæknibrellum heldur frekar vegna þess að hann not- aði ljósa liti og létt efni. Fötin sem mynda hátískulínu kom- andi vors og sumars voru hrein- lega himnesk. Á vefsíðu Style- .com er vísað til þess að vinkona Lagerfeld, Amanda Harlech, hafi líkt viðkvæmnislegum kjól- unum við „morgundögg á kóngulóarvef“. Mikil þekking liggur að baki hátískulínu sem þessari og legg- ur Lagerfeld áherslu á vandað handverk. Útsaumur var mikið notaður í fatnaðinum og voru alls notaðar tíu milljón perlur og ófá handtökin þar að baki. Einnig var nóg af geislandi pallí- ettum í sýningunni og eins og sjá má fékk hönnuðurinn inn- blástur frá ballett. ingarun@mbl.is Ljósasýning hjá Chanel ’ Innblásturinn kemur frá ballett og efnin eru létt og leikandi, viðkvæmnisleg með glitrandi pallíettum og útsaumuðum perlum. Tíska

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.