SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Síða 41
30. janúar 2011 41
LÁRÉTT
1. Raggi Bjarna snýst við að syngja um húsnæði
Möggu. (6)
3. Æðislega girndin hjá forviða. (12)
8. Baul speglar að allt sé í lagi aftur. Frelsi svo til
að leiða einstæðingsskap í ljós. (11)
10. Form á fimmtíu og einum inngangi. (7)
13. Jarðsetti sagður að sögn. (9)
14. Fúin innbyrðir lyf íþróttafélags og sýklalyfin.
(9)
15. Vegleg nægi til að verða ógnandi. (10)
16. Það komi í ljós að þú sast um einn óþekktan.
(7)
18. Náð í tengi fyrir danska veislu. (7)
21. Aðall kemur fyrir eiðin á veginum. (10)
23. Kona ein með lengjur sýnir undanbrögð. (11)
25. Fléttaði elskan það sem var óskemmtilegt?
(7)
26. Set tákn að sæti með sölutæki. (10)
27. Baul og dufl leiðir í ljós miðaðan. (8)
28. Mannaflinn hefur líkamshlutann. (7)
29. Æ, ys hjá Valgerði verður að grimmd. (11)
30. Alltaf hreykja sér út af ávexti. (7)
LÓÐRÉTT
1. Hass Dana er meira fyrir Jóa? (9)
2. Skemmtilegt yrði að finna spaug. (9)
3. Þögn seyðir einfaldlega í bendu á fleygiferð. (9)
4. Sort klingi í byggingu. (9)
5. Gáfuleg nær einhvern veginn að spegla krónu.
(8)
6. Tækið sem fer í skólann? (6)
7. Lamdi góðan sið að sögn í undirförult. (8)
9. Hræðum álf enn í gamalli. (9)
11. Bruna frá sóknarbörnum til erlendrar. (7)
12. Ónn er alltaf með sigti á sjúkdómnum. (7)
17. Sætabrauðið á rokki. (9)
19. Flækist okkar lóð af rugluðum. (10)
20. Drykkjarstaup útvarpsstöðvar, Daníels, og
listamanns. (9)
21. Frelsi leðjusvæði með fátækt. (9)
22. Hrösun á milli tveggja óþekktra endar hjá
tærðum. (10)
24. Hreyfi áfram og sé fyrir (8)
25. Gunnu tók og blandaði óþekkt. (8)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta
lausn krossgátunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn ásamt úr-
lausninni í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 30. janúar rennur út 3. febr-
úar. Nafn vinningshafans birtist í
blaðinu 6. febrúar. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í
vinning. Vinningshafi krossgátunnar 23. janúar er Birg-
ir V. Sigurðsson, Hvassaleiti 16, 103 Reykjavík. Hann
hlýtur í verðlaun bókina Pantaljón og sérþjónusta eftir
Mario Vargas Llosa. Bókafélagið Ugla gefur út.
Krossgátuverðlaun
Félagarnir úr ólympíuliði Ís-
lands þeir Björn Þorfinnsson og
Hjörvar Steinn Grétarsson heyja
þessa dagana harða keppni um
sæmdarheitið skákmeistari
Reykjavíkur 2011. Lokaumferð
mótsins fór fram á föstudags-
kvöldið og fyrir þá umferð voru
þeir hnífjafnir að vinningum en
Hjörvar átti að tefla við Sig-
urbjörn Björnsson, sem einnig
gat blandað sér í baráttuna um
titilinn. Björn átti að tefla við
Hrafn Loftsson sem hefur hafið
keppni á skákmótum aftur eftir
nokkurt hlé. Staðan fyrir loka-
umferðina var þessi:
1.-2. Björn Þorfinnsson og
Hjörvar Steinn Grétarsson 7 v.
(af 8) 3. Sigurbjörn Björnsson
6½ v. 4.-5. Hrafn Loftsson og
Ingvar Þ. Jóhannesson 6 v. 6.-9.
Gylfi Þórhallsson, Þór Valtýs-
son, Jón Úlfljótsson og Guð-
mundur Gíslason.
Um árangur einstakra kepp-
enda í mótinu hafa bætt sig mest
að stigum Guðmundur Kristinn
Lee – 37 stig, Emil Sigurðarson –
30 stig og Hallgerður Helga Þor-
steinsdóttir – 29 stig. Þá hefur
verið gaman að fylgjast með til-
þrifum yngstu keppendanna
sem eru sumir í kringum 7 ára
að aldri. Skipulagning mótsins
hjá Taflfélagi Reykjavíkur hefur
verið til fyrirmyndar og er t.d.
hægt fylgjast með baráttunni á
efstu borðum á netinu án þeirra
tæknilegu vandkvæða sem
stundum hafa plagað slíkar út-
sendingar.
Spennandi lokaumferðir
í Wijk aan Zee
Heimsmeistarinn Anand og
Hikaru Nakamura eru efstir á
stórmótinu í Wijk aan Zee í Hol-
landi þegar þrjár umferðir eru
eftir en útlit er fyrir mikla
spennu á lokasprettinum. Staða
efstu manna eftir tíu umferðir:
1.-2. Anand og Nakamura 7 v. (af
10) 3.-4. Aronjan og Kramnik 6½
v. 5-7. Carlsen, Nepomniachtchi
og Vachier 5½ v. Magnús Carlsen
tók góðan sprett eftir slaka byrj-
un en tapaði svo aftur fyrir jafn-
aldra sínum með hvítu; Rússinn
Ian Nepomniachtchi gaf engin
grið í tíundu umferð og verður að
teljast harla ólíklegt að Norð-
maðurinn nái efsta sætinu úr
þessu. Bandaríkjamaðurinn Hik-
aru Nakamura teflir allra manna
skemmtilegast og er mikill bar-
áttujaxl en varð þó að láta í minni
pokann fyrir Magnúsi þegar þeir
mættust í áttundu umferð:
Magnús Carlsen – Hikaru Na-
kamura
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e5 7.
Rb3 Be7 8. Be3 0-0
Eftir skákina taldi 8. … Be6
jafnvel nákvæmara því 9. g4 er
þá svarað með 9. … d5.
9. g4! Be6 10. g5 Rfd7 11. h4
Rb6 12. Dd2 R8d7 13. f4 exf4 14.
Bxf4 Re5 15. 0-0-0 Hc8 16. Kb1
Dc7 17. h5 Hfe8 18. Ka1!?
Merkilegur fyrirbyggjandi
leikur. Magnús vildi leika 18.
Rd4 en gaf það frá sér vegna
18. …Rbc4 19. De1 Db6 20. Bc1
Ra3+ 21. Ka1 Dxd4 og 22. Hxd4
strandar á 22. … Rxc2+ og svart-
ur hefur betur.
18. … Bf8 19. Rd4 Dc5 20. g6!
Rec4
Hvítur vinnur eftir 20. … fxg6
21. hxg6 Rxg6 22. Rxe6 Hxe6 23.
Bg4! o.s.frv.
21. Bxc4 Rxc4 22. Dd3 fxg6 23.
hxg6 h6 24. Dg3! Db6 25. Bc1
Da5 26. Hdf1 Re5 27. Rd5! Bxd5
28. exd5 Dxd5
( STÖÐUMYND )
29. Bxh6! gxh6 30. g7! Be7
Eða 30. … Bxg7 31. Rf5 Hc7 32.
Rxh6+ Kh7 33. Rf7+ Kg8 34. Hh8
mát.
31. 31. Hxh6 Rf7 32. Dg6 Rxh6
33. Dxh6 Bf6 34. Dh8+ Kf7 35. g8
(D)+ Hxg8 36. Dxf6 Ke8 37. He1+
– og Nakamura gafst upp.
Hann verður að bera drottn-
inguna fyrir, 37. … De5 en þá
fellur hrókur til viðbótar: 38.
Hxe5+ dxe5 39. De6+.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Björn og Hjörvar jafnir fyrir loka-
umferð Skákþings Reykjavíkur
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta