SunnudagsMogginn - 30.01.2011, Qupperneq 45
30. janúar 2011 45
Í skáldsögunni Room eftirEmmu Donoghue segir frálitlum dreng, Jack, sem ernýorðinn fimm ára þegar
bókin hefst, en hann er sögu-
maður hennar. Jack býr með
móður sinni í einu herbergi og
hefur búið þar alla ævi. Það er
sjónvarp í herberginu en hann
gerir sér enga grein fyrir því að
fólkið sem hann sér í sjónvarp-
inu sé raunverulegt, hann hefur
aldrei séð aðra mannveru en
móður sína og svo heyrir hann í
Nick sem kemur á nóttunni að
heimsækja hana.
Eins og lesendur hafa vænt-
anlega áttað sig á segir hér frá
dreng
sem
elst
upp
hjá
móður
sem
haldið
er
fang-
inni af
óþokka, án þess frekar sé farið
út í það hér eða sagan rakin.
Room vakti mikla athygli ytra
á síðasta ári og ekki nema von;
hún er þess lags bók að um leið
og maður hefur lokið henni vill
maður að aðrir lesi hana líka,
vill prófa hana á öðrum, ef svo
má segja, sjá hvort þeir líti hana
sömu augum, en líka deila
ánægjunni sem maður hafði af
að lesa hana með sem flestum.
Það er hængurinn, því bókina
átti ég aðeins á rafrænu sniði –
las hana á Kindle lesaranum
mínum og því illt við að eiga að
lána hana.
Málum er reyndar svo háttað
að hægt er að lána bækur úr ein-
um Kindle í annan, hægt er að
lána í 14 daga. Það kemur ekki
að sök þó að viðtakandinn, sá
sem ég vil lána, eigi ekki Kindle
því til er Kindle-hugbúnaður
fyrir borð- og fartölvur, farsíma
og fleiri tæki. Málið er ekki þó
svo einfalt – þetta á bara við um
sumar bækur, útgefandinn ræð-
ur því hvort lána megi bók eða
ekki. Annað sem skapar vanda
er að ekki er hægt að lána bækur
nema sá sem lánar og lánþegi
séu búsettir í Bandaríkjunum.
Í sjálfu sér ekki stórmál, en
mál samt og aðeins ein leið fær:
Ég fór og keypti eintak af bók-
inni á pappír og hún er þegar
komin í útlán.
Raf-
rænt
lán
Orðanna
hljóðan
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
’
Room er
þess lags
bók að
um leið og
maður hefur
lokið henni vill
maður að aðrir
lesi hana líka.
Rétt rúmt ár er síðan bandaríski
rithöfundurinn J.D. Salinger
lést, rúmlega níræður. Hann
hafði þá verið nánast í felum í
áratugi, en þrátt fyrir það, eða
kannski vegna þess, hefur æv-
inlega verið talsvert fjallað um
hann og dregur ekki úr nú þegar
fimmtíu bréf hans og fjögur
póstkort eru til sýnis.
Bréfin sendi Salinger kaup-
sýslumanni í Lundúnum, Do-
nald Hartog, sem hann kynntist
er þeir voru báðir við þýskunám
í Vínarborg 1937. Í bréfunum
birtist nokkuð önnur mynd en
menn hafa gert sér af Salinger,
en sumir hafa gengið svo lagt að
lýsa honum sem geðtrufluðum
furðufugli.
Í bréfunum kemur meðal
annars fram að Salinger var til-
tölulega víðförull á þeim árum
sem allir töldu hann fara huldu
höfði og fór m.a. í skemmtiferð-
ir til Nantucket, Niagara-fossa
og Miklagljúfurs.
Hann lætur vel af því að vera
svo vel haldinn að hann þurfi
ekki að skrifa nema fyrir sjálfan
sig, skemmtir sér við að horfa á
tennis, bregður sér í helg-
arferðir til Lundúna, finnst fátt
skemmtilegra en að dunda sér
við garðvinnu og tekur Burger
King hamborgara fram yfir aðra
slíka.
Ný mynd af Salinger
J.D. Salinger um það leyti sem
hann dró sig í hlé.
Meðal helstu bókmenntaverð-
launa Bretlands eru svonefnd
Costa-verðlaun, en þau hétu
Whitbread-verðlaunin hér áður
fyrr. Costa-verðlaunin fyrir bók
ársins 2010 voru afhent á mið-
vikudag og vakti mikla athygli
að verðlaunin fóru annað en all-
ir höfðu spáð.
Breskir veðbankar og bóka-
fróðir spámenn höfðu nefnilega
gert því skóna að fjölskyldusaga
Edmund de Waal, Hérinn með
rafaugun, The Hare with Am-
ber Eyes, myndi hljóta verð-
launin og svo mikið um hana
rætt reyndar að flestir voru
búnir að gleyma því að það
hefðu aðrar bækur verið til-
nefndar. Það kom því mjög á
óvart þegar dómnefnd verð-
launanna kaus ljóðabókina Af
breytileika, Of Mutability, eftir
Jo Shapcott, en ljóðin í bókinni
segja meðal annars frá baráttu
hennar við brjóstakrabbamein.
Sjálf segir Shapcott ljóðin frekar
vangaveltur
um dauðann
en frásögn af
sjúkrahúsvist
og hún hefur
sagt þau til-
finningalega
ævisöguleg.
Of Mutabi-
lity er tíunda
ljóðabók Shap-
cott, sú fyrsta kom út 1988.
Costa-verðlaunin eru ekki fyrsti
heiður sem Shapcott hefur verið
sýndur; hún hefur sigrað í
ljóðasamkeppni Bretlands og
hlotið Samveldisverðlaunin,
Forward ljóðaverðlaun og Chol-
mondeley verðlaunin. Hún var
sæmd heiðursorðu breska rík-
isins 2002, en neitaði að vera
viðstödd afhendingu orðunnar.
Shapcott hefur lengt af starfað
við kennslu, er nú fastráðin hjá
Háskólanum í Lundúnum, en
hefur einnig kennt við Oxford-
háskóla og fleiri skóla.
Shapscott verðlaunuð
Jo
Shapcott
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
KARL KVARAN 17.11. 2010 - 13.2. 2011
ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012
KALL TÍMANS - Sunnudagsleiðsögn kl. 14
Rakel Pétursdóttir fer um sýningar safnsins.
ÞAÐ BLÆÐIR Á MORGUNSÁRINU 22.1. - 13.2. 2011
Jónas E. Svafár
Safnbúð - Lagersala til 30. janúar
Listaverkabækur og veggspjöld á allt að 70% afslætti.
MARENGS veitingastaður á 2. hæð.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“. Sýning um æsku og
lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd
Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs
fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009.
Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
AUGASTAÐIR-BEHIND MY EYES
Ný verk eftir Óla G.
Byggðasafn Reykjanesbæjar:
Völlurinn
Bátasafn Gríms Karlssonar:
100 bátalíkön
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Síðasta sýningarhelgi
„SIGGA HEIMIS“
11.9.2010 - 30.1. 2011
„Samkeppnistillögur um húsgögn í
Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi“
14.1. - 6.3. 2011
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-17.
Verslunin Kraum í anddyri
og kaffiveitingar.
Garðatorgi 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Listasafn Kópavogs
Gerðarsafn
Ásýnd landsins: Vatnið,
jörðin, hafið og himinninn
Daði Guðbjörnsson, Gunnlaugur Ó.
Scheving, Jóhannes S. Kjarval,
Rúrí, Vilhjálmur Þ. Bergsson
Sýningarstjóri: Guðbergur Bergsson
Sýningin stendur til 20.02.2011
Aðgangur 500 kr.
Ókeypis á miðvikudögum
Safnið er opið kl. 11-17
alla daga nema mánudaga
www.gerdasafn.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ASÍ
15. janúar til 6. febrúar 2011
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Erkitýpur
og
HILDIGUNNUR BIRGISDÓTTIR
Það verður þeim að list
sem hann leikur
Safnið er opið 13-17
alla daga nema mánudaga.
Aðgangur ókeypis.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Ljósmyndari Mývetninga
Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar
Stoppað í fat
Viðgerðir hlutir úr safneign
Útskornir kistlar
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
Þjóðleg fagurfræði
12 listamenn – tvennra tíma
Leiðsögn sunnudag kl. 15
Kaffistofa
leskró - leikkró
OPIÐ: fi.-su. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
8. janúar – 6. febrúar 2011
Brot úr náttúrunni – Eiríkur Smith
1957-1963
8. janúar – 21. febrúar 2011
Kjarvalar – Stefán Jónsson
Leiðsögn um sýninguna
Brot úr náttúrunni
sunnudag 30. janúar kl. 15
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is sími 585 5790
Aðgangur ókeypis