SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 6

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 6
6 27. febrúar 2011 Muammar Gaddafi er maður litrík- ur, eins og meðfylgjandi ljósmynd gefur glöggt til kynna. Sé hann ekki í hershöfðingjabúningi, skó- síðum af medalíum, klæðist hann jafnan miklum kufli sem ýmsir öf- unda hann af. Föruneyti Gaddafis er ekki síð- ur skrautlegt í opinberum heim- sóknum. Þeir sem byrja efst á síð- unni þegar þeir lesa blöð vita allt um Amazon-sveitina, sem fylgir leiðtoganum hvert fótmál. Auk þess ferðast hann aldrei án leið- togatjaldsins sem slegið er upp í hótelgörðum, þar sem Gaddafi drepur niður fæti. Gestir á Ritz í París um árið ráku víst upp stór augu. Þá fer Líbíuleiðtogi aldrei að heiman án þess að hafa forláta úlfalda með sér. Mun það vera ævagömul hefð. Engum sögum fer af aðbúnaði úlfaldans núna. Ferðast jafnan með tjald og úlfalda Muammar Gaddafi í opinberri heimsókn á Ítalíu um árið. Fjölmiðlar gerðu því skóna að Silvio Berlusconi hlyti að öfunda leiðtogann af lífvörðunum. H verflyndi, nafn þitt er kona!“ segir Hamlet prins í einni af sínum meitluðu einræðum. Líkast til er Muammar Gadd- afi, leiðtogi Líbíu, ekki vel lesinn í Shake- speare, alltént treystir hann engum betur fyrir lífi sínu en konum. Þær eru fjörutíu talsins í lífverðinum, sagðar hreinar meyjar að ósk leiðtogans, og víkja aldrei frá vinnuveitanda sínum, hvorki dag né dimma nátt. Eins gott enda þrengir að Gaddafi með hverri mínútunni sem líður þessa dagana. Þjóðin vill jafna við hann sakirnar og andstæðingar einræðisherr- ans hafa nú náð flestum borgum og bæj- um í Líbíu á sitt vald. Spranga um í vestrænum klæðum Meðan flestir menn í hans stöðu girða kringum sig með hávöxnum, helmöss- uðum og helköttuðum körlum kýs Gadd- afi spengilegar stúlkur, ekki virðist vera verra séu þær fyrir augað. Þeim er í það minnsta leyft að púðra á sér nefið, lakka á sér neglurnar og spranga um í vestræn- um klæðum sem ekki er alls staðar vel séð í heimi íslams. Búrka er þeim fram- andi hugtak. Oftast sjást þær opinberlega í bláum felubúningum svo sem sjá má á myndunum hér að ofan. Sólgleraugun eru ekki keypt á götumarkaði. Réttindi kvenna eru víða fótum troðin í arabaheiminum og hvað sem annars má segja um Gaddafi er hann langt á undan sinni samtíð í þessum efnum. Ekki er vit- að hvort líbískir karlar hafa hugleitt að stefna kappanum fyrir alþjóðlega dóm- stóla fyrir brot á jafnréttislögum. Gaddafi er svo sem ekkert misrétti í huga, hann treystir konum einfaldlega bara betur en körlum að þessu leyti. Segir þær næmari og skynja aðsteðjandi hættu betur og fyrr en karlar. Nú reynir sem aldrei fyrr á þá kenningu. Oft er flagð undir fögru skinni og enda þótt Amazon-sveitin, eins og lífvarða- sveit Gaddafis kallast, virki kannski sak- laus á yfirborðinu láta konurnar sér ekk- ert fyrir brjósti brenna. Bregða vopnum án þess að blikna – gerist þess þörf. Allar hafa þær heitið almættinu að fórna lífi sínu fyrir leiðtoga sinn – án nokkurra skilyrða. Fórnaði lífi sínu fyrir leiðtogann Raunar hefur það gerst. Árið 1998 féll ein úr sveitinni og sjö aðrar særðust þegar herskáir bókstafstrúarmenn sátu fyrir Gaddafi og bílalest hans. Sú er lést fleygði sér fyrir kúlnahríðina og forðaði hinum bróðurlega leiðtoga frá bráðum bana. Hermt er að stúlkan, Al- isha að nafni, hafi verið í miklum metum hjá Gaddafi og verið honum harmdauði. Konurnar eru stríðþjálfaðar enda hefur Gaddafi alltaf valið þær hæfustu sjálfur úr breiðum hópi umsækjenda. Starfið nýtur mikillar virðingar í Líbíu og er eftirsótt. Amazon-sveitin er að sönnu jafnvíg á Kalashnikov og Gucci. Konur á Vesturlöndum ekki öfundsverðar Gaddafi undrast alltaf spurningar um líf- varðasveit sína jafnmikið. „Það er eðli- legasta mál í heimi að þjálfa konur fyrir bardaga,“ var einhverju sinni haft eftir honum. „Þannig verða þær ekki auðveld bráð fyrir óvini sína. Að mínu viti eru konur á Vesturlöndum ekki öfunds- verðar. Vissulega eru þær komnar út af heimilunum en til hvers? Að keyra trukka eða lestar.“ Má vera að við séum á villigötum? Jafnvígar á Gucci og Kalashnikov Gaddafi treystir aðeins konum fyrir lífi sínu Muammar Gaddafi Líbíuleiðtogi á göngu. Amazon-sveitin vaska víkur aldrei frá honum. Gaddafi á blaðamannafundi í Brussel. AP Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Muammar Abu Minyar al- Gaddafi, eins og hann heitir fullu nafni, er 68 ára gamall. Hann hrifsaði til sín völdin í Líbíu í byltingunni 1969 og hefur setið á valdastóli síð- an. Enginn núlifandi þjóð- arleiðtogi, sem ekki er kon- ungborinn, hefur verið lengur við völd og raunar hef- ur Gaddafi þegar skipað sér á bekk með þaulsætnustu einræðisherrum sögunnar. Eiginkona Gaddafis er Safia Farkash og eiga þau tíu börn, þar af tvö ættleidd. Þaulsætinn einræðisherra www.noatun.is Fermingarveislur Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun. 1990 KR./MANN VERÐ FRÁ AÐEINS

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.