SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Page 9

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Page 9
27. febrúar 2011 9 E kki get ég sagt að óánægja og reiði foreldra í Reykjavík, hvort sem er foreldra leikskólabarna, grunnskólabarna eða tónlistarnemenda, sem brotist hefur út með áber- andi hætti að undanförnu, hafi komið mér á óvart. Reiðin beinist að borgarstjórnarmeirihlutanum í Reykjavík, þar sem oddvitar Besta flokksins, Jón Gnarr, og Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, tróna á toppnum, og hugðust leggja til at- lögu við þá þjónustu sem börnunum stendur til boða í leik-, grunn- og tónlistarskólum borgarinnar. Skera átti niður kennslumagn, skerða gæslu á skólatíma, auka ruslfæði skóla- barna á kostnað heilsufæðis, allt í þágu hagræðingar og sparnað- ar, því eins og borgarstjórinn sjálfur, Jón Gnarr, lýsti í sjónvarps- viðtali á dögunum, þá felast svo fjölmörg tækifæri í þeirri hagræðingu sem hann ætlar að beita sér fyrir. Ekki sé hægt að hagræða frekar í yfirstjórn borg- arinnar, það væri eins og að „höggva af sér fótinn, ef maður vildi losna við eitt kíló“. Afar gáfuleg ummæli úr þeim munni, eins og endranær! Ekki satt? Vitanlega bera foreldrar hag barna sinna, menntun þeirra og velferð fyrir brjósti, alla daga. Þannig er það og þannig á það að vera. En ég velti því fyrir mér, hversu stór hluti hinna öskureiðu foreldra, sem hafa mætt á hitafundi og mót- mælt af lífs og sálar kröftum fyrirhuguðum niðurskurði og atlögu að menntun og velferð barnanna, kaus Besta flokkinn í fyrra. Það hlýtur að vera umtalsverður hluti hinna reiðu foreldra sem kaus ósköpin yfir sig, væntanlega með það í huga að hér væri á ferðinni góður brandari, sem þeir vildu gjarnan taka þátt í að gera að veruleika. Miðað við útkomu Besta flokksins í borg- arstjórnarkosningunum snemma í júní í fyrra, 34,7% atkvæða, er ekki ólíklegt að þriðjungur hinna óánægðu foreldra leik- og grunnskólabarna í Reykjavík hafi einmitt kosið Besta flokkinn og Jón Gnarr. Nú er svo komið að borgarstjórn nýtur trausts 16% borgarbúa. Þótt svo stór hluti Reykvíkinga sem kusu í borgarstjórnar- kosningunum í fyrra hafi litið á kosninguna sem þátttöku í brandara, þá eru kosningar alls enginn brandari, heldur graf- alvarlegt mál. Við, með atkvæðisrétti okkar, höfum tækifæri til þess að hafa áhrif á það, hvers konar fulltrúa við veljum til þess að treysta fyrir fjármunum okkar, skipulagi, velferð, menntun, heilbrigðismálum, hverju sem er, sem á annað borð kemur til kasta sveitar- eða ríkisstjórna. Það má því segja, að þeir sem kusu yfir sig þessa samsuðu Besta flokksins og Samfylkingarinnar eigi ekki betra skilið en það sem borgarstjórn Reykjavíkur býður upp á um þessar mundir. Það skánaði satt best að segja fátt við það að menntaráð hætti við að skerða kennslumagnið á næsta skólaári og gafst að því leyti upp fyrir mótmælunum. Það eru einfaldlega allir kjósendur í Reykja- vík sem fá að finna fyrir því eina ferðina enn, að meirihluti borg- arstjórnar hefur engin önnur úrræði en að hækka gjöld okkar og álögur, því nú ætlar meirihlutinn að hækka útsvarið. Alveg er ég viss um það, að ef gerð yrði skoðanakönnun nú, þar sem spurt yrði hvaða flokk Reykvíkingar myndu kjósa ef gengið yrði til borgarstjórnarkosninga nú, þá hlyti Besti flokk- urinn afar lélega útkomu og hinn málhalti, fókuslausi og ófyndni borgarstjóri kæmist vart á blað. Ég er jafnsannfærð um að meirihluti þeirra sem kusu Besta flokkinn í fyrra myndi freistast til þess að segja ósatt til um hvað kosið var, væri slík spurning borin fram. Það hlýtur einfaldlega að vera of vandræðalegt að viðurkenna að atkvæðisréttinum hafi verið kastað á glæ Gnarrsins, til þess að taka þátt í lélegum og af- ar kostnaðarsömum brandara, sem snerist upp í andhverfu sína, okkur öllum til ama. Kastað á glæ Gnarrsins Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Jón GnarrDagur B. ’ Það hlýtur að vera umtals- verður hluti hinna reiðu foreldra sem kaus ósköpin yfir sig, væntanlega með það í huga að hér væri á ferðinni góður brandari 6.50 Klukkan hringir. Fer niður í eldhús og set hafragraut- inn yfir. Fer í sturtu, klæði mig, snyrti og hlusta á sjöfréttirnar á meðan. Við hjónin fáum okkur hafragraut með epli, rúsínum, kanil (ekki kanilsykri) og kalk- bættri hrísgrjónamjólk. Síðan ristað brauð með kotasælu og apríkósumauki með lútsterku kaffi. Mikilvægasta máltíð dags- ins. 7.55 Býð skólariturunum góðan dag og þá byrjar vinnu- dagurinn. 8.30 Reglulegur fundur með verkefnastjóra Olweusar- áætlunarinnar gegn einelti. Hann og eineltisteymið eru að útbúa eyðublöð fyrir kennara í viðtölum vegna eineltismála og gátlista sem gefur kennara yf- irsýn yfir stöðu máls. Á fund- inum fórum við yfir þessi drög og þau verða lögð fyrir skóla- starfsmennina seinna í dag á sí- menntunartíma. 9.00 Átti gott símtal við for- mann stjórnar foreldrafélagsins, þar innanborðs eru mjög áhuga- samir foreldrar um skólamálin. Fór og hlustaði á nemendur í unglingadeild flytja verkefni sín í hátíðarsal skólans. Í síðustu viku var vika uppbrots og við- fangsefni allra nemenda skólans var VATN í sinni margbreytilegu mynd. Þemað snerti t.d. lista- verk, tilraunir, hringrás vatns, fræðslu um slysavarnir við bryggjur og á bátum, jökla, orku, virkjanir, mengun, kapp- róður í Nauthólsvík og vett- vangsferðir. Allir nemendur í unglingadeild kynntu afrakstur hópavinnunnar á sviði og dóm- nefnd gaf umsögn. Efnistök voru ólík þó að rannsókn- arspurningarnar væru svipaðar. Nemendum fór þetta vel úr hendi. 10.30 Hitt og þetta. Náms- og starfsráðgjafinn kom og ræddi um fyrirlögn Skólapúlsins sem lagður er mánaðarlega fyrir úrtak nemenda í 6.-10. bekk. Niðurstöðurnar eiga að bæta skólastarfið. Formaður stjórnar nemendafélagsins og einn með- stjórnandinn stoppuðu mig á ganginum og spurðu hvort ég væri búin að bera undir tvo skólastjóra í hverfinu að hafa á næstunni sameiginlegan dans- leik í Hólabrekkuskóla. Það er gaman að vinna með stjórn nemendafélagsins og unglinga- deildinni. Öll samskipti við nemendur í 10. bekk hafa verið sérlega gefandi og ég hef sagt þeim að ég ætli ekki að útskrifa árganginn í vor. Þau skapa svo góðan skólabrag að mig langar til að halda í þau lengur. 11.30 Tölvupósturinn yf- irfarinn og samþykktir nokkrir reikningar til greiðslu. 12.30 Hádegismatur. Góð soðin ýsa með kartöflum, græn- meti og rúgbrauðssneið. Við matarborðið voru m.a. umræð- ur um hreyfingu. Hólabrekku- skóli sem vinnustaður tekur þátt í Lífshlaupinu – lands- keppni í hreyfingu. Mikill metnaður meðal starfsmanna og hóparnir innanhúss bera grimmt saman bækur sínar. Einnig voru umræður um sam- svörun á milli sveitasímans gamla og fésbókarinnar í sam- tímanum. 13.00 Vann í fjárhagsáætl- uninni, út frá nýjum forsendum sem samþykktar voru í borg- arráði 14.40 Símenntunartími stafsmanna.Verkefnastjóri Ol- weusar-áætlunarinnar sá um fræðsluna. Á sama tíma var kennarahópur á kynningu um byrjendalæsi sem náms- og kennslustjóri skipulagði. 16.00 Undirbjó fund með deildarstjóra unglingadeildar. Spurningalið skólans ásamt kennara kom í dyragættina og hlakkaði til keppninnar í kvöld. 16.30 Var með þróunarstjóra í stærðfræði að undirbúa opnun stærðfræðivers á morgun er fyrir alla árganga. Stærðfræðiverið er skipulegt sem námssvæði með fjölbreyttum og aðgengilegum náms- og kennslugögnum. 18.15 Vikulegur Rótarýf- undur á Grand hóteli hjá Rót- arýklúbbnum Reykjavík – Breiðholt. Alltaf ánægjulegt að hitta félagana og ég er sammála Vigdísi Finnbogadóttur þegar hún sagði að Rótarý væri eins og opinn háskóli. Fræðsluerindi kvöldsins flutti Þorsteinn Hjart- arson, framkvæmdarstjóri Þjón- ustumiðstöðvar Breiðholts. 19.45 Kem heim og spjalla við mömmu og eiginmanninn. Spurði þau hvað væri helst í fréttum og ræddum Icesave, ekki í fyrsta sinn. Renndi síðan yfir bæði dagblöðin. 20.30 Við hjónin fáum okk- ur kvöldgöngu sem við gerum einstaka sinnum. Förum hefð- bundinn hring og göngum í 40 mín. 21.30 Fór í tölvuna, fór yfir tölvupóstinn og náði að svara nokkrum póstum. Endaði á að skoða heimasíðu Norðfirðinga- félagsins, alltaf gaman að fylgj- ast með því góða átthagafélagi. 22.45 Tók til fötin fyrir morgundaginn, undirbjó svefn- inn, leit í bók á náttborðinu las bara örfáar blaðsíður. Slökkti ljósið og þakkaði fyrir daginn. Dagur í lífi Hólmfríðar G. Guðjónsdóttur, skólastjóra Hólabrekkuskóla „Öll samskipti við nemendur í 10. bekk hafa verið sérlega gefandi og ég hef sagt þeim að ég ætli ekki að út- skrifa árganginn í vor. Þau skapa svo góðan skólabrag að mig langar til að halda í þau lengur,“ segir Hólmfríður. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Samsvörun sveita- símans og fésbókar

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.