SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 10

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 10
10 27. febrúar 2011 Miðvikudagur Örn Úlfar Sævarsson Ná launahækkanir dómara ekki örugglega til Gettu betur? Stefán Friðrik Stef- ánsson Steingrímur J. mars ’03: „Treystum við ekki þjóðinni? Ekki get- ur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræð- issinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn. Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri.“ Fimmtudagur Árni Snævarr The Eag- les eru auðvirðilegasta popphljómsveit sög- unnar. Myndi frekar fara á tónleika með Geir Ólafs en þeim. (Hotel California var kannski ok...) Föstudagur Sindri Freysson Ég er einlægur aðdáandi ís- lenska hersins. Fésbók vikunnar flett H vernig getur það verið rangt að endurútgefa fallegar bæk- ur? Skólaljóð er falleg bók, sem stuðlar að því að vel sé með hana farið og það eitt er ekki svo lít- ils virði. Stundum eru gefin út söfn sem eru svo léleg að þau detta fljótt í sundur. Að ég tali ekki um ljósritafarganið í skól- um, sem kuðlast í töskum þannig að fólk sýnir textanum enga virðingu. Ég er svo gamall að ekki var búið að gefa Skólaljóðin út þegar ég var í barna- skóla en ég rak mig á það að nemendur mínir komu oft með bókina í tíma þegar ég kenndi í Menntaskólanum á Akureyri; þetta var eina ljóðabókin sem sumir höfðu aðgang og krökkunum þótti vænt um hana. Skólaljóðin eru sýnishorn frá tveimur öldum áður en hún kom út og val í slíka bók verður alltaf persónulegt. Það verður aldrei samkomulag um hvað á að standa í bókum; í þessari er verið að endurspegla ákveðinn tíma og engin bók getur verið verri fyrir það. Og það væri að falsa bók- menntasöguna ef til dæmis væru jafn- mörg ljóð eftir konur og karla frá þessu tímabili (eins og einhver hefur nefnt) því miklu færri konur voru sýnilegri þó að auðvitað hafi þær ort líka. Menn verða sem sagt að athuga að hér er verið að gefa út bók sem sýnir ákveðinn tíma; það er ekki verið að gefa út einhverja aðra bók! Og engum tilgangi þjónar að deila um val í sýnisbækur. Ekki er mjög langt síðan út kom bókmenntasaga og allt varð vit- laust vegna þess að menn söknuðu ein- hverra nafna, en slíkar bækur byggjast á þróun, ekki nöfnum. Alltaf má deila um innihaldið og sum ljóðin í Skólaljóðunum myndi ég aldrei velja í svona bók og þekki mörg sem ég myndi gjarnan vilja hafa þar frekar, en fyrst og fremst skiptir máli að þar sé eitt- hvað sem þjóðin skilur. Við verðum að þekkja ákveðinn grunn til að skilja hvert annað. Ég tel því að fengur sé að bókinni, ekki síst vegna þess að ýmsum þótti vænt um hana og fá nú tækifæri til að eignast hana aftur. Það gæti skilað sér með því að fólk beri aukna virðingu fyrir bókum og tungumálinu. Ef einhverjum finnst rangt að gefa bókina út aftur finnst mér það lýsa for- dómum og þröngsýni. MÓTI Erlingur Sigurðarson fyrrv. mennta- skólakennari V ið útgáfu bóka á borð við Skólaljóð fer fram ákveðin sögusköpun – borinn er á borð réttur og sagt: „Hér er nokkuð sem heiminum hefur þótt mik- ilvægt fram til þessa, njóttu vel.“ Þetta á við um allar bækur en á einna helst við um safnrit og enn frekar þegar safnritið er ætlað börnum sem hafa ekki sögulega yfirsýn til þess að leggja (nokkurt) mat á valið. Þetta átti við þegar Skólaljóð voru gefin út árið 1964 – smekkfull af vísnakveðskap á miðri atómöld, í miðri atómstyrjöld – og þetta á við í dag þegar hún er endur- útgefin, þótt sögupólitísk merking hennar sé önnur. Skólaljóðin flytja okkur sýn á horfinn ljóðheim – mikil- væga sýn á söng og hljóð í ljóðum, sýn sem hvarf þegar Íslendingar sneru sér (seint og um síðir) að nútímaljóðinu. Það er hins vegar undarlegt hversu fjarlæg sú hugmynd virðist vera að þessa sýn megi eða eigi að endurskoða. Líklega væru það einhvers konar helgi- spjöll í augum þeirra sem ólust upp við að læra þessa taugaveikluðu drott- insmærð, þetta viðstöðulausa blómahjal og þennan sífrandi þjóðrembugrát að menningararfurinn yrði endurskoð- aður. Já, endurskoðaður. Því rétt eins og hann var sköpunarverk þegar hann var búinn til, þá er hann sköpunarverk þegar við höldum honum við, end- urtökum hann og endurútgefum. Ég á ekki við að „yngri skáldum“ verði komið að – enda væri hálfri öld of seint í rassinn gripið með að troða Sigfúsi Daðasyni inn á milli Gunnarshólma og Sofðu unga ástin mín, hann er kanón- íseraður í öðrum bókum. En það mætti t.d. rétta skarðan hlut kvenna, draga úr trúarljóðum, þjóðernisrómantík og kvæðum um fjöll og veðrabrigði. Ég trúi einfaldlega ekki að þetta sé allt og sumt í íslenskri kvæðagerð frá 17. öld til okkar daga. Menningararfurinn á ekki að vera óbreytanleg stærð heldur und- irorpinn sífelldri sköpun þeirra sem skoða hann, þeirra sem ætla að leyfa honum að móta sig og fólkið í kringum sig. Annars þjónar hann ekki öðrum tilgangi en að tigna fortíðina og færir samtímanum – að ónefndri framtíðinni – ekki annað en dauðastjarfa, nostalgíu og kits. MEÐ Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur Var rangt að gefa Skóla- ljóð út á ný óbreytt? ’ Ég trúi einfaldlega ekki að þetta sé allt og sumt í íslenskri kvæðagerð frá 17. öld til okkar daga. Námsgagnastofnun gaf bókina út á ný í tilefni af því að í haust voru 30 ár liðin síðan stofnunin tók formlega til starfa. Skólaljóð hafa verið ófáanleg í rúma tvo áratugi. ’ Ég tel að fengur sé að bókinni, ekki síst vegna þess að ýmsum þótti vænt um hana og fá nú tækifæri til að eignast hana aftur.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.