SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Blaðsíða 13
27. febrúar 2011 13 FRJÓTT – L IFANDI – GAGNRÝNIÐ Nýtt Tímarit Máls og menningar samræðuhefti um íslenska menningu · l j ó ð · a r k i t e k t ú r · p ó l i t í k · s a g n f r æ ð i · b ó k m e n n t i r · l e i k l i s t . . . skapast hætta á að við tökum vinnuna með okkur heim, gleymum okkur í að ræða um þetta atriði eða hitt. En á einhverjum tímapunkti ákváðum við að skilja slíkar um- ræður eftir á vinnustaðnum. Þetta gengur því allt eins og í sögu.“ Steve hefur fengist við fleira um dagana en dans; hann er lærður íþróttakennari og keppti árum saman í karate. „Ég var níu ár í karate, byrjaði ellefu ára gamall og er ná- lægt því að fá svarta beltið. Þjálfarinn vildi að ég tæki við skólanum, svo ég fór að kenna karate og þetta var það sem ég ætlaði að leggja fyrir mig í lífinu. Þess vegna fór ég í nám sem íþróttakennari. En þar var líka kenndur dans og smám saman tók hann yfir. Í lok námsins varð ég að gera upp hug minn, og ég hugsaði með mér að maður gæti bara verið í dansi ungur, þannig að ég ákvað að spreyta mig fyrst.“ Steve var sextán ára þegar hann byrjaði í dansnámi. „Það er mjög algengt um stráka, þeir byrja venjulega um 16 til 17 ára aldur en stelpurnar mun fyrr. Auðvitað eru til dansarar sem byrja þriggja eða fjögurra ára en þetta starf reynir mikið á líkamann þannig að ég held að það sé ekkert endilega betra. Það þarf líka að halda áhuganum lifandi, alltaf að vera skapandi og ögra sjálfum sér, svo það myndist ekki leiði.“ – Það er ekki nóg að kunna bara nokkur trikk? „Nei, og það á sérstaklega við á Íslandi, þar sem það eru alltaf sömu áhorfendurnir, þannig að ef maður gerir sama trikkið þrisvar fjórum sinnum segja allir: „Ó, þetta aftur!“ Fólk vill sjá eitthvað nýtt.“ Enn fordómar Hann segir að það geti verið vandi að fá stráka til að æfa dans. „Við erum enn að glíma við fordóma, að strákar sem dansa hljóti að vera gay. Það er leiðinlegt því við er- um með námskeið fyrir stráka, förum í skóla og kennum nokkur spor og þar eru sumir með mikla hæfileika en þora ekki að byrja að æfa því það þykir stelpulegt. Og þetta er ekki einu sinni ballett, langt í frá, heldur dans! Mér finnst líka brýnt að segja fólki frá dansi, hvað það er og hvað felst í því að vera dansari. Stundum er ég spurður hvað ég vinni við á daginn og fólk verður undr- andi að heyra að dansinn sé vinna frá morgni til kvölds. Þetta er nokkuð sem við þurfum að breyta.“ Og fólk þarf líka að nálgast dansinn með opnum huga. „Við erum með marga dansunnendur sem elska að koma á sýningar,“ segir Steve. „En ég held að leikrit séu vin- sælli því þar er skýr söguþráður á meðan fólk þarf stund- um að spyrja sig hvað dansverkið fjalli um, leita að merkingunni. En ég hugsa alltaf með mér að ef fólk horfir á Ólymp- íuleikana spyr það ekkert af hverju íþróttamennirnir hlaupa eða synda. Það horfir bara á og finnst stórkostlegt hversu hátt þeir stökkva eða hratt þeir hlaupa. Af ein- hverri ástæðu spyr fólk sig hinsvegar hvað er um að vera í dansi, í stað þess að horfa á hreyfingarnar og líkams- tjáninguna – og hugsa með sér: „Vá, þetta er virkilega flott.“ Eins og í umferðinni sem við lýsum í verkinu næsta föstudag, þar sem tónlistin ýtir undir stemninguna, einn gengur hægt og annar hraðar. Dans er ekki alltaf saga, stundum er hann flæði og orka, mjúkir tónar og sterkir tónar – það skiptir líka máli. Og stundum snýst hann um stemningu og andrúm. En það er mikið lagt upp úr því hjá Íslenska dans- flokknum að vekja áhuga fólks, gleðja það líka með danssögum, svo það sé ekki algjörlega týnt ef það er að mæta í fyrsta sinn. Við reynum að gera sýningarnar að- gengilegar en höldum í listrænu hliðina því það verður líka að hreyfa við dönsurunum.“ Það fljúga neistar á dansgólfinu þegar kærustuparið dansar, enda hafa bæði starfa af því. ’ Mér leið eins og í bíómynd. Sjónin var óskýr, rödd- in farin og mamma stóð við hlið mér, hafði komið frá Þýskalandi. Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að vera draumur, þetta gæti ekki verið, en smám saman áttaði ég mig á því að eitthvað alvar- legt hafði gerst.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.