SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 14

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Side 14
14 27. febrúar 2011 Þ að er stund milli stríða – eða öllu heldur stífra æfinga – hjá Jó- hanni Sigurðarsyni leikara þegar við setjumst niður á kaffihúsi til að spjalla. Ekki svo að skilja að menn sitji aðgerðalausir þegar frí gefst frá æfing- unum; leikarar þurfa víst að fara með skrjóðinn í viðgerð og sinna unglingum í vetrarfríi eins og annað fólk. En þegar slíkum hversdagsönnum er lokið er upp- lagt að spjalla við blaðamenn. Við höfum ekki setið lengi þegar leik- ritið ber á góma enda á það allan hug leik- arans. „Allir synir mínir er eitt af bestu leikritum 20. aldarinnar,“ segir hann með áherslu. „Það er hefðbundið í framsetn- ingu – við erum ekkert að róla okkur eða neitt slíkt – en alveg svakalega vel skrifað. Það passar mjög vel inn í okkar samfélag því það vekur áleitnar spurningar um sekt og sakleysi sem eru svo áberandi í ís- lenskri umræðu núna.“ En áður en ég hleypi Jóhanni á flug varðandi leikritið bið ég hann að spóla að- eins til baka. „Ég fæddist í Borgarfirð- inum, á Hamraendum í Stafholtstungum á því herrans ári 1956. Pabbi og mamma voru þar með bú, en þegar þau skildu fór pabbi, Sigurður Sigurðarson, til sjós. Mamma, Guðrún Birna Hannesdóttir, fór hins vegar í bæinn með okkur krakkana og kenndi þar á píanó enda menntaður tónlistarkennari.“ Jóhann var um fimm ára þegar hann flutti í bæinn og bjó þar á Laugarnesinu í drjúgan tíma. „Mamma var nú ein með okkur þannig að það var svolítill flæk- ingur á okkur. Við vorum t.a.m. fyrir norðan á tímabili þegar hún var kennari á Löngumýri í Skagafirði en við systkinin gengum þar í sveitaskóla.“ Árið 1977 lá leið Jóhanns síðan í Leik- listarskóla Íslands. „Það hafði blundað í mér í svolítinn tíma,“ segir hann en neitar því aðspurður að hafa mikið troðið upp fyrir þann tíma. „Ekki nema í partíum meðal vina og kunningja. Þeir bentu mér á að athuga þetta með leiklistina og að lok- um kýldi ég á að sækja um skólann og komst inn.“ Þannig vildi það til að Jóhann var í fyrsta árganginum sem gekk í ríkisrekinn leiklistarskóla á Íslandi en með honum í bekk voru leiklistarkempur á borð við Karl Ágúst Úlfsson, Guðjón Pedersen og Sigrúnu Eddu Björnsdóttur auk fleira góðs fólks. „Fyrsta stóra hlutverkið sem ég glímdi við í Nemendaleikhúsinu var í Ís- landsklukkunni þar sem ég lék accessor Arnas Arnæus. Svo skrifaði Kjartan Ragn- arsson fyrir okkur leikrit sem hét Peysu- fatadagurinn þar sem við vorum látin glíma dálítið við músík. Allir í bekknum voru mjög músíkalskir og margir voru lið- tækir á hljóðfæri. Síðasta verkið okkar var svo Marat/Sade sem er um uppfærslu vistmanna Charenton-geðveikrahælisins á leikriti undir forystu og stjórn Sades markgreifa.“ Aðspurður staðfestir Jóhann að námið í leiklistarskólanum hafi verið mikið æv- intýri. „Þetta var gjörbreyting á lífi okkar allra enda komumst við loksins í tæri við það sem við vildum fara að gera. Skólinn er mjög skemmtilegur en krefjandi og erf- iður; dagarnir voru langir og við vorum látin glíma við snúin viðfangsefni, s.s. grísku harmleikina og leikrit eftir Shake- speare og Tjekov. Á sama tíma var verið að kenna okkur leiktúlkun, söng og að bera okkur rétt á sviðinu – í raun var verið að umpóla okkur meira og minna. Þetta var mjög ævintýralegur tími og skemmti- legur. Þarna eignaðist maður líka félaga og vini fyrir lífstíð.“ Ákveðið lífsmark í óvissunni Strax að lokinni útskrift 1981 var Jóhann ráðinn til Leikfélags Reykjavíkur þar sem hann debúteraði í Iðnó í aðalhlutverki í Jóa, verki Kjartans Ragnarssonar, en það er um þroskaheftan dreng, sem rætt er um hvort eigi að vera inni á heimilinu hjá fjölskyldu sinni eða á stofnun. Verkið gekk mjög vel og var sýnt í um 150 skipti. „Fyrstu 10-15 árin var brjálað að gera því ég lék í 150-200 sýningum á ári, fyrir utan allt annað. Ég var fastráðinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur í fjögur ár og lausráðinn eftir það en fór svo yfir til Þjóðleikhússins 1986 og fékk þar fastan samning ári síðar. Þar var ég svo í 20 ár, eða til ársins 2007. Þá fannst mér kominn tími til að breyta til og fór yfir til Borgarleikhússins en losaði mig í samráði við leikfélagið til að leika Joe Keller í Allir synir mínir.“ Hann segir vissulega geta verið snúið að púsla saman verkefnum á milli leikhúsa, ekki síst þegar verk gengur það vel í einu leikhúsinu að það er enn á fjölunum þegar frumsýnt er í hinu. Hins vegar hafi iðulega lukkast að láta púslið ganga upp. Fyrir leikarana geti þetta hins vegar þýtt meiri fjölbreytni og meira krefjandi verkefni og Jóhann gefur lítið fyrir þá óvissu sem fylgi því að vera leikari. „Óvissan hefur alltaf fylgt þessu starfi og maður verður bara að lifa við hana. Ég þrífst vel á hóflegri óvissu – það er ákveðið lífsmark í henni og spenna.“ Ekki getur Jóhann kvartað undan fjöl- breytninni í verkefnunum. Síðasta árið Á heimavelli Tíminn flýgur. Þetta veit Jóhann Sigurðarson leikari manna best en heil 30 ár hafa liðið frá því hann steig fyrst á svið í atvinnuleikhúsi. Síðan hefur hver frumsýningin á fætur annarri runnið upp og í næstu viku er komið að enn einni, þar sem Jóhann glímir við gamalt draumahlutverk í verki Arthurs Millers, Allir synir mínir. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is „Undanfarin ár hefur leikhúsið verið mjög fjölbreytt í sýningum og framsetningu og það hef- ur verið ótrúlega gaman að ganga inn í þann leik,“ segir Jóhann Sigurðarson. Með systkinunum, f.v. Jóhann, Ólöf læknir, Sigrún hómópati og Þorsteinn Gauti píanisti. Bekkurinn úr Leiklistarskólanum. F.v. Jóhann, Sigrún Edda Björnsdóttir, Júlíus Hjörleifsson , Karl Ágúst Úlfsson, Guðmundur Ólafsson, Guðbjörg Thoroddsen og Guðjón Pedersen.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.