SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Qupperneq 15

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Qupperneq 15
27. febrúar 2011 15 hefur hann verið í gerólíkum hlutverkum í Gauragangi, Ofviðrinu og Fólkinu í kjall- aranum og hlutverk fjölskylduföðurins Joes Kellers í Öllum sonum mínum er af enn öðrum toga. „Hann rekur verksmiðju sem framleiðir vélarhluti í flugvélar fyrir herinn. Á sínum tíma var framleiðslan mikil og þegar umgangur af gölluðum hlutum kom úr verksmiðjunni var tekin ákvörðun um að fela gallann. Svo fóru 120 flugvélar í loftið og 20 fóru niður. Þetta snýst öðrum þræði um sekt og sakleysi. Arthur Miller sagði sjálfur að hann hugs- aði fyrst og fremst um rétt og rangt þegar hann settist niður til að skrifa leikrit. Það er einmitt meginviðfangsefnið í þessu verki, sem er uppfullt af gríðarlega flott- um persónum og boðskap, auk þess sem fléttan í því er frábær.“ Mitt á milli leikarans og áhorfenda Jóhann segir erfitt að kveða upp úr með hvað geri hlutverk spennandi í hans huga. „Maður er alltaf að vinna með sjálfan sig og út frá sínum eigin poka – maður þarf alltaf að nota alla eiginleikana sem maður býr yfir sem manneskja. Maður sækir í þann sjóð og veit orðið býsna vel hvað maður getur og hvað maður kann. Svo er alltaf ögrandi að þurfa að leita að ein- hverju nýju sem maður hefur aldrei feng- ist við áður, fara í rannsóknarleiðangur og veiða upp eiginleika sem maður þarf að leggja persónunni til. Verkin eru vissulega misjöfn – sum eru andlega og tilfinn- ingalega krefjandi meðan önnur eru krefj- andi líkamlega. Undanfarin ár hefur leik- húsið verið mjög fjölbreytt í sýningum og framsetningu og það hefur verið ótrúlega gaman að ganga inn í þann leik. Að sama skapi hef ég verið afskaplega heppinn því ég fengið tækifæri til að gera þetta allt í bland. Þannig verður ákveðin endurnýjun og ferskleiki í stað þess að maður þurfi alltaf að fara í sömu kápuna aftur.“ Síðasta athugasemdin vekur spurningar um hvort það geti ekki einmitt verið dá- lítið erfitt þegar menn neyðast til að fara ítrekað í sömu kápuna – þegar verkin ganga vel og menn þurfa að stíga aftur og aftur á svið í sama gervinu. Er t.d. ekkert erfitt að fara á svið í 80 skipti í sama hlut- verkinu? „Kannski ekki í 80. skiptið, sér- staklega ekki ef það er síðasta sýningin,“ svarar Jóhann hlæjandi. „Hins vegar getur verið erfitt að fara á svið í 35 skipti, að ég tali nú ekki um ef þetta er sýning númer tvö þann daginn. En það er ekkert annað í boði. Það eru 500 manns í salnum sem hafa aldrei séð leikritið og það er ekki hægt að bjóða þeim upp á annað en að gera þetta eins vel og maður getur. Annars skila þeir bara miðanum.“ Og vissulega skipta viðbrögð áhorfenda öllu máli en þau geta verið misjöfn frá kvöldi til kvölds. „Sumir salir eru daufari en aðrir en það er gífurlega gott þegar kemur mikill kraftur frá salnum því þá mætast þeir á miðri leið, leikararnir á sviðinu og áhorfendurnir hins vegar. Enda hefur verið sagt að leiklistin sé ekki á sviðinu og ekki heldur úti í sal, heldur þarna mitt á milli.“ Inntur eftir því hvort einhver hlutverk standi upp úr á þrjátíu ára ferli svarar Jó- hann hiklaust játandi. „Það eru mörg hlutverk sem standa upp úr. Mér þykir óskaplega vænt um fyrsta hlutverkið mitt, Jóa, og sömuleiðis Erik Larsen sem ég lék í Abel Snorko býr einn. Það var líka mjög eftirminnilegt þegar ég söng Fiðlarann á þakinu, Tevje, og eins þegar ég söng lög- regluforingjann í Vesalingunum. Af þessu nýrra þá er hægt að nefna Fólkið í kjall- aranum og Ofviðrið og svo er frábært að fá núna að vinna aftur með Stefáni Bald- urssyni sem leikstýrir Öllum sonum mín- um, ekki síst þar sem þetta er búið að vera eitt af mínum draumahlutverkum í mörg ár.“ Nýlega lauk tökum á sjónvarpsþátt- unum Tíma nornarinnar sem Friðrik Þór Friðriksson leikstýrir og gerðir eru eftir samnefndri sögu Árna Þórarinssonar en í þeim fer Jóhann með hlutverk Ólafs Gísla, yfirmanns lögreglunnar á Norðurlandi. Þá lék hann í haust í kvikmyndinni Eldfjall- inu eftir Rúnar Rúnarsson sem væntanleg er á þessu ári. Jóhann kom líka við sögu í kvikmyndunum Roklandi, Sumarlandinu og Brúðgumanum svo eitthvað sé nefnt. „Það er mjög gaman að spreyta sig fyrir framan kvikmyndavélarnar,“ segir hann. „Það er miklu hófstilltari leikur og gerólík vinna. Hverja senu tekur af á einni eða tveimur mínútum og svo þarf að bíða og taka hana aftur upp frá annarri hlið eða stilla upp í næstu senu. Þarna þarf maður að treysta alfarið á leikstjórann því hann er búinn að sjá fyrir sér hvernig senan á að vera og hvernig hún verður klippt. Maður veit ekki einu sinni hvað verður með í myndinni á endanum og hvað ekki.“ Í söngnámi á Ítalíu Athyglin sem beinist að leikurum hverfur ekki um leið og þeir ganga af sviðinu en aðspurður segir Jóhann það ekki trufla sig þótt fólk kannist við hann úti á götu. „Það eru engin óþægindi sem fylgja því,“ bætir hann við. Hann hefur þó upplifað hvernig Morgunblaðið/Ómar Eiginkonan Guðrún Sesselja Arnardóttir hæstaréttarlögmaður ásamt drengjunum Jóhanni Ólafi og Erni Gauta þegar þeir voru pjakkar en þeir eru núna orðnir stálpaðir unglingar. Ásamt veiðifélögum, þeim Halli Leópoldssyni og Sigurði Sigurjónssyni. ’ Söngurinn hefur því ávallt átt stóran part í Jóhanni sem viður- kennir að það hafi stundum hvarflað að sér að skipta yfir í tónlistina. „En svona hefur þetta þróast og ég er ekki ósáttur...“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.