SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Qupperneq 18
18 27. febrúar 2011
samningum við OR í árslok síðasta árs,
sem er nú til frekari umfjöllunar hjá OR
og Century Aluminium. Búist er við end-
anlegri niðurstöðu hjá OR innan
skamms, en Morgunblaðið hefur upplýs-
ingar um það, að OR vilji í lengstu lög
losna undan því að þurfa að efna þann
orkusölusamning við Norðurál, sem
gerður hefur verið. Þar, eins og hjá HS
orku, ræður arðsemiskrafan því sjón-
armiði, en stjórnendur OR munu telja að
ef staðið yrði við raforkusölusamning-
inn, yrði arðsemi af sölunni lítil sem
engin.
„Staðan er flókin og mjög tvísýn.
Raunar hallast ég að því að hætt verði við
byggingu álbræðslu í Helguvík. Þetta er
fyrst og fremst spurningin um það hver
mun sitja uppi með Svarta Pétur, þ.e.
hver mun skapa sér skaðabótaskyldu
gagnvart Norðuráli,“ segir viðmælandi
úr orkugeiranum. Hann segir að mörg
mismunandi orkuver þurfi að koma til,
til þess að fullnægja orkuþörf Norðuráls í
Helguvík og það sé bara eitt slíkt í fram-
kvæmd nú, sem sé fimmti áfangi Hellis-
heiðarvirkjunar. Það sé því ljóst, að ál-
bræðsla Norðuráls í Helguvík hefji ekki
starfsemi á næstu árum.
Háar skaðabótakröfur
Fullyrt er að ef OR ætlar að hlaupa frá
þeirri niðurstöðu sem nú er fengin, þá
kalli fyrirtækið yfir sig skaðabótakröfur
upp á tugi milljarða króna. En ekki er
endilega víst, að þróunin verði sú, því
samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins þá gera þeir hjá OR sér vonir um að
annar raforkusali, HS orka, verði sá aðili
sem hverfi frá samningum við Norðurál
og því gæti skaðabótakrafan lent þar, en
ekki hjá OR. Og eigendur HS orku gera
sér vitanlega samskonar vonir um van-
efndir af hálfu OR, þannig að bótakrafan
lenti hjá OR.
Raunar er ekki víst að þessi mál skýrist
fyrr en í sumar, þar sem Norðurál hefur
vísað deilu sinni við HS orku í gerð-
ardóm. Sá gerðardómur kemur saman
hér á Íslandi í lok maí, skipaður einum
fulltrúa frá Norðuráli, einum frá HS orku
og einum sem aðilar koma sér saman um.
Gerðardómurinn mun úrskurða hvort HS
orku beri að standa við orkusölusamning
sem gerður var við Norðurál 2007. Orku-
sölusamningurinn kveður á um sölu á
200 megawöttum á ári til álbræðslu í
Helguvík. Ekki er búist við úrskurði
gerðardómsins fyrr en í sumar.
Bent er á að þegar Magma átti í við-
ræðum við Geysi Green Energy um kaup
á hlut þess félags í HS orku, hafi Norðurál
boðið á móti Magma og þannig hafi verð-
ið fyrir hlutinn hækkað umtalsvert. Því
hafi Magma þurft að greiða mun hærra
verð fyrir hlutinn, en upphaflega var
stefnt að.
Enn er engin niðurstaða fengin í
samningum við HS orku, og eru for-
svarsmenn Norðuráls sagðir vera orðnir
langþreyttir á þeim átökum við nýja eig-
endur að HS orku, Magma Energy, sem
gera mun hærri arðsemiskröfur vegna
orkusölu en fyrri eigendur gerðu. Ross
Beaty lýsti því til dæmis yfir fyrir
skemmstu að Magma ætlaði að leita á
önnur mið vegna þess að arðsemi fjár-
festinga í jarðvarma væri ekki nægileg,
sem er talið nokkuð sérkennilegt í miðju
söluferli á hluta HS Orku. Því er haldið
fram að Magma komi í veg fyrir það að
samningar náist, þannig að hægt væri að
setja framkvæmdir á fullan skrið á ný.
Þeir hjá HS orku benda á hinn bóginn á
að það hafi verið Norðurál sem vísaði
deilunni í gerðardóm og setti málið þar
með í einskonar sjálfheldu.
Áætlað hefur verið að um helmingur
þeirrar raforku sem myndi fást við virkj-
un í neðrihluta Þjórsár, yrði seldur til
Norðuráls í Helguvík, þannig að Lands-
virkjun hefði þá Norðurál sem eins konar
kjölfestufjárfesti að þeim raforku-
kaupum, en myndi svo selja hinn helm-
inginn í smærri skömmtum, til mismun-
andi verkefna og líklega til skemmri
tíma.
Eftir að Hæstiréttur úrskurðaði að
synjun Svandísar Svavarsdóttur um-
1. júní 2006
Viljayfirlýsing
Orkuveitu
Reykjavíkur,
Hitaveitu
Suðurnesja og
Norðuráls vegna
álvers í Helguvík.
23. apríl 2007
Orkusamningur
Norðuráls og
HS orku vegna
Helguvíkur
undirritaður.
21. maí 2007
Gert er ráð fyrir
að framkvæmdir
hefjist fyrir
áramót og fyrstu
ker verði tekin í
gagnið 2010.
4. júní 2007
Stjórn OR samþykkir
orkusölusamning
við Norðurál vegna
fyrirhugaðs álvers
fyrirtækisins í
Helguvík.
6. október 2007
Skipulagsstofnun telur
að fyrirhugað álver
Norðuráls í Helguvík
muni ekki valda
verulegum neikvæðum og
óafturkræfum áhrifum á
umhverfi eða samfélag.
31. október 2007
Stjórn Landverndar krefst
þess að álit Skipulags-
stofnunar varðandi álver í
Helguvík verði ógilt og fram
fari lögformlegt umhverfis-
mat á framkvæmdunum í
heild sinni.
13. nóvember 2007
Aðalfundur Sambands
sveitarfélaga á
Suðurnesjum lýsir yfir
fullum stuðningi við
áform um byggingu
álvers í Helguvík.
7. júní 2008
Fyrstu
skóflustungurnar
að kerskála
álvers Norðuráls
í Helguvík voru
teknar.
18. júní 2008
Umhverfisstofnun auglýsir
tillögu að starfsleyfi fyrir
álver Norðuráls Helguvík sf.
Samkvæmt tillögunni verður
Norðuráli heimilt að framleiða
allt að 250 þúsund tonnum af
áli á ári í Helguvík.
12. september 2008
Íslenskir aðalverktakar
steypa fyrstu
undirstöðurnar að
kerskála álvers
Norðuráls í Helguvík.
13. nóvember 2008
Norðurál vill byggja
stærra álver en 250
þúsund tonn. Vill reisa
360 þúsund tonna álver,
í fjórum áföngum.
3. febrúar 2009
Borgarstjórn
Reykjavíkur samþykkir
orkusölusamning
Orkuveitu Reykjavíkur
og Norðuráls vegna
væntanlegs álvers í
Helguvík.
17. apríl 2009
Ríkisstjórnin klofnar í afstöðu
sinni þegar Alþingi samþykkir
lög sem veita iðnaðarráðherra
heimild til að gera fjárfestingar-
samning fyrir hönd ríkisstjórnar-
innar við Century Aluminum og
Norðurál Helguvík ehf.
18. nóve
Forsvarsm
Aluminum
stefnt sé
framkvæ
Helguvík
ný og að
muni hef
Fyrstu skólfustungurnar að
kerskála álver í Helguvík voru
teknar 7. júní 2008.
Sérfræðingar sem rætt var við, telja að Magma sé fjárhagslega af-
skaplega vanbúið til þess að standa í stórframkvæmdum, eins og jarð-
varmavirkjun á Krísuvíkursvæðinu og því sé skiljanlegt að félagið reyni nú
að selja 16 eða 17 lífeyrissjóðum 20-25% hlut í Magma fyrir 6,5-8 millj-
arða króna.
Bent er á að í síðasta uppgjöri Magma komi fram að félagið eigi 20
milljónir dollara, eða rúmlega 2,3 milljarða króna, sem sé bara smápen-
ingur, þegar um jafnfjárfrekar framkvæmdir er að ræða og virkjanir. Jafn-
framt sé félagið með 20 milljóna dollara lánalínu frá aðaleiganda sínum,
Ross Beaty, á afar háum vöxtum, að því er fullyrt er.
Þegar Magma keypti hlut Geysis Green í HS orku, þá var talið að Magma myndi koma
inn með það fjármagn sem þyrfti til virkjanaframkvæmda. Sú staða er ekki talin vera skýr
núna, þar sem fjármagnskostnaður fyrirtækisins hafi aukist gríðarlega undanfarna átta
mánuði, sem þýði, að fróðra mati, að Magma sé einkum að fjármagna sig á lánsfé.
Þá þykir það ekki hafa hjálpað að bæði fjármálaráðherra og forsætisráðherra hafa op-
inberlega látið að því liggja, að eignarnám ríkisins á eigum Magma komi til greina. „Ísland
er ekki eyland í skilningi alþjóðlegrar fjármögnunar. Það er vitanlega hlustað á það úti í
heimi, þegar ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru að hóta einkafyrirtækjum eignarnámi og
þær hjálpa síður en svo alþjóðlegri fjármögnun svona verkefna,“ segir sérfræðingur sem
rætt var við.
Ekki talið fjárhagslega burðugt
Ross Beaty
Magma Energy