SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Page 35

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Page 35
27. febrúar 2011 35 E itt af markmiðum styrkt- arfélagsins Lífs er að nútíma- væða kvennadeildina þannig að hægt verði að bjóða konum sem nýta þurfa þjónustu kvennadeild- arinnar að hafa maka sinn eða nánasta aðstandanda sem mest hjá sér. Þetta skiptir nýbakaða foreldra miklu máli en hingað til hafa feður í fæstum tilvikum fengið tækifæri til að vera með mæðr- um, sem þurfa að dvelja á sængurgangi, yfir nótt. Hjónin Helga Ósk Hann- esdóttir og Þórhallur Hinriksson eign- uðust dótturina Unu Maríu, sem er þriðja barn þeirra, daginn áður en Sunnudagsmogginn heimsótti deildina. Una María kom í heiminn með keis- araskurði. Foreldarnir voru heppnir og fengu sérherbergi en stefna deildarinnar er að leyfa pöbbunum að gista ef að- stæður á deild leyfa og í þetta skiptið gekk það. „Ég var að koma úr erfiðum keisara og var með mikla verki. Það munaði öllu að geta haft hann hjá mér,“ segir Helga Ósk en þau hafa sam- anburðinn því fyrir tæpum tíu árum kom í heiminn frumburðurinn Orri. „Þá þurfi Þórhallur að fara heim milli níu og tíu um kvöldið. Það er ekki hægt að líkja þessu saman,“ segir Helga Ósk, sem þá var með fleiri konum í herbergi. Miðju- barnið, dóttirin Anna Karen, sem er sex ára, kom síðan í heiminn í Bandaríkj- unum og voru aðstæður þar góðar. Þórhallur er líka glaður með að hafa getað dvalið á deildinni með konu sinni og finnst það allt önn- ur upplifun. „Það er svo af- slappað og gott andrúms- loft hérna,“ segir hann. Þau stefndu á að fara heim um kvöldið en eldri systkinin gátu ekki beðið eftir að vera með litlu systur og fá síðan þjón- ustu ljósmóður heim. Hjónin Helga Ósk Hannesdóttir og Þórhallur Hinriksson með glænýju dótturina Unu Maríu en hún er þriðja barn þeirra. Þau voru glöð yfir því að geta verið saman eftir fæðinguna. Una María var 16 merkur og 52 sentimetrar við fæðingu. Helga Ólöf Eiríksdóttir ljósmóðir tekur blóðþrýsting nýbökuðu móðurinnar Helgu Óskar. Nöfnunum kemur vel saman. Una María lætur í sér heyra þegar Helga Ólöf skiptir á henni. Ljósmóðirin var viðstödd keisaraskurðinn og sinnti fjölskyldunni eftir að litla stúlkan kom í heiminn. „Munaði öllu að geta haft hann hjá mér“ Feðgin í friði og ró. Þórhallur með Unu Maríu á öxlinni. Rannveig Rúnarsdóttir, deildarstjóri meðgöngu- og sængurkvennadeildar 22A, notast hér við hlaupahjól til að ferðast um langan ganginn. ’ Á kvenna- deildinni fara fram um 70% fæðinga á landinu auk ann- arra kvenlækn- inga, eins og lækninga vegna krabbameins í legi og brjóstum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.