SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Síða 37
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Bókasöfn íslenskra heimila verða í öndvegi á bókastefn-
unni í Frankfurt í haust. Ljósmyndir sem Íslendingar
senda inn munu prýða veggi sýningarskálans sem Ísland
fær til umráða sem heiðursgestur sýningarinnar.
Tildrögin eru þau, að snemma á þessu ári ákváðu stjórn-
endur verkefnisins, sem á íslensku hefur hlotið nafnið
Sögueyjan Ísland, að bjóða almenningi að vera með í
sýningarskálanum með því að senda inn myndir af
heimilisbókasöfnum.
„Viðbrögð hafa verið mikil, mörg hundruð myndir hafa borist,“ segir Halldór Guðmundsson,
verkefnastjóri Sögueyjunnar Íslands.
Hann segir að sem flestar ljósmyndir verði sýndar í skálanum og að sýnd verði myndbönd með
um þrjátíu söfnum þar sem rætt verður við eigendur um uppáhaldsbækurnar. Mun þetta vera í
fyrsta skipti sem almenningi er boðið að taka þátt í sýningunni með þessum hætti.
Meðfylgjandi eru nokkur sýnishorn af heimilisbókasöfnum sem landsmenn hafa sent inn, þar á
meðal rafbókasafni Árna Matthíassonar blaðamanns, en myndir má senda á info@sagenhaftes-
island.is eða líma beint á vegg Sögueyjunnar á facebook (facebook.com/sogueyjan.island).
Skilafrestur er til 2. apríl og þrír heppnir þátttakendur geta unnið ferð fyrir tvo á bókasýninguna
í haust.
BókasöfnBókasöfn
íslenskra
heimila til
Frankfurt