SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Page 42

SunnudagsMogginn - 27.02.2011, Page 42
42 27. febrúar 2011 Ö ll höfum við gaman af góðu gríni. Smekkur okkar á því hvað er gott grín er hins vegar mismunandi. Sumum finnst gaman að leika sér með tungu- málið í ýmiss konar orðabröndurum. Þá er oft snúið út úr hefðbundinni merk- ingu orða og þau fá nýja og óvænta merkingu. Dæmi um slíkan brandara heyrði ég ekki alls fyrir löngu. Grínarinn hafði verið í hniti og fengið boltann í andlitið, beint á varirnar sem bólgnuðu nokkuð. Þegar sagt var frá atvikinu sagði sú sem fyrir boltanum varð að hún hefði endað sem varamaður í leiknum. Í svona tilvikum er tungumálið notað á skemmtilegan og oft á tíðum fyndinn hátt. En ekki eru allir brandarar jafn sak- lausir og varamannabrandarinn. Sumu gríni er ætlað að benda á ýmislegt sem þykir gagnrýnivert í samfélaginu og margir telja að beittur húmor sé besta vopn gagnrýnandans. Þetta má til dæmis gera með því að snúa raunverulegum at- vikum upp í andhverfu sína. Þennan húmor sjáum við daglega til dæmis í formi skopmynda í dagblöðum. Einnig er til í dæminu að atvik sem þykir gagn- rýnivert sé tekið skrefinu lengra í grín- inu. Þannig má til dæmis nefna brandara úr nýjasta Áramótaskaupi Sjónvarpsins. Þar voru orð Sóleyjar Tómasdóttur og viðbrögð samfélagsins við þeim til um- fjöllunar. Í Skaupinu voru viðbrögð Sól- eyjar við karlkyns ísbirni afdráttarlaus, hún vildi láta drepa hann eins og allt annað karlkyns. Þarna voru viðbrögð samfélagsins við blaðaviðtali við Sóleyju tekin lengra og í raun beindist grínið ekki að Sóleyju heldur ofsafengnum við- brögðum fólks við viðtalinu. Önnur tegund af húmor er svo langt frá því að vera fyndin eða til gagns. Þetta er húmor sem er meiðandi og nið- urlægir þá sem fyrir honum verða. Þeir sem beita húmor af þessu tagi eiga það gjarnan sameiginlegt að vera í sterkari stöðu en sá sem grín beinist að. Núna er mjög í tísku að beita þessum meinta húmor gegn konum. Konan sé best geymd bak við eldavélina; konur eigi ekki heima í stjórnmálum því þær láti stjórnast af tilfinningum; að gott sé að eiga konu til að þvo þvottinn og ým- islegt í þessum dúr og raunar margt miklu verra. Ef kona hlær ekki að þessu er hún í ofanálag húmorslaus freðýsa, skilur ekki grínið og tekur alltaf allt svo alvarlega. Málið er bara að svona grín af- hjúpar ákveðin viðhorf, hvort sem þau eru meðvituð eða ómeðvituð. Og þegar síendurtekið grín af þessu tagi dynur á fólki hættir það fljótlega að vera fyndið og verður ógnvænlegt og jafnvel hættu- legt. Í bröndurum af þessu tagi birtist megn og rótgróin kvenfyrirlitning. Því öllu gamni fylgir nokkur alvara og kvenfyr- irlitning er alvarlegt mál. Halda lesendur að það sé tilviljun að kona sem talar fyrir jafnrétti sé kölluð krossþroskaheft en karlar sem undanfarið hafa skrifað um jafnrétti séu kallaðir öðlingar? Það er kannski bara grín líka? Tungumálið er tæki sem menn nota til að skemmta sér og öðrum. En tungumálið er líka tæki sem menn nota til að halda stöðu sinni og meiða aðra. Tungumálið sjálft gerir þó ekki mikið upp á sitt eindæmi, það eru málnotendurnir sem ákveða til hvers þeir nota málið. Leikum okkur með það, gerum grín, gagnrýnum en meiðum ekki annað fólk með þessu fína tæki sem við búum yfir. Öllu gamni fylgir alvara ’ Tungumálið er tæki sem menn nota til að skemmta sér og öðr- um. En tungumálið er líka tæki sem menn nota til að halda stöðu sinni og meiða aðra. Tungutak Halldóra Björt Ewen hew@mh.is Málið Hvurn andskotann áttu við? KALDHÆÐNI? Nei, bara svona kald- hæðni. Já, eða myndlíking. Eða eitthvað... Persónulega finnst mér allir ísbirnir ógeðslegir og vitlausir og að þeir eigi bara að vera lokaðir í dýragarði eða notaðir í pylsur. El ín Es th er D agný Kristjánsdóttir, pró- fessor í íslenskum bók- menntum við Háskóla Ís- lands, segir að þegar litið sé yfir sögu íslenskra kvennabókmenna sé nafn Torfhildar Hólm þar framarlega í flokki. Hún var fyrsti Íslendingurinn sem hafði atvinnu af því að vera rithöf- undur, fædd 1845 og lést 1918. „Hún var líka fyrsta íslenska konan sem gaf út skáldsögu og fyrst rithöfunda til að skrifa sögulegar skáldsögur og fyrsti Ís- lendingurinn sem fékk listamanna- laun.“ Prentverk kom seint til Íslands og aðeins örfá skáldverk eftir karla og konur voru gefin út fyrir aldamótin 1900 að sögn Dagnýar. Það mun hins vegar hafa verið algengt að bækur hafi gengið á milli manna sem handrit en þau voru skrifuð upp og notuð í skipt- um fyrir meira lesefni. Að því sögðu þá segir hún að aðstaða kvenna til þess að stunda ritstörf hafi verið öllu lakari en karla og mikið átak fyrir konur að snúa sér að listsköpun. Sjáendur og snillingar, en ekki konur „Við getum ekki ekki með góðu móti skilið það hvaða augum karlar litu það að konur færu út af heimilunum. Þá var beinlínis verið að rugga þjóðfélagsskip- aninni eins og hún lagði sig. Menn vildu ekki kerfisbreytingu sem þeir gátu ekki séð annað en myndi fara illa, heimurinn myndi farast og óreiðan ríkja. Svona of- boð má sjá þegar rætt var um kvenrétt- indamál og kosningarétt kvenna á árum áður. Þetta var ríkjandi viðhorf og var svo framan af tuttugustu öldinni, langt fram á eftirstríðsárin. Í bókmennta- umræðunni var líka ríkjandi mikil snill- ingsdýrkun, þær leifar frá rómantíkinni að listamenn væru alveg sérstök dýra- tegund, þeir væru sjáendur og snill- ingar. Það þótti alls ósannað að konur gætu verið í þeim hópi. Þær lentu því sjálfkrafa í annarri deild.“ Viðurkennd mynd af listamanninum á eftirstríðsárunum var bóheminn, frjáls og engum háður, kæruleysislegur í út- liti, gjarnan með staupið við höndina, hrifnæmur og ástríkur, sífellt með nýja í takinu, rómantísk hetja. Kona sem lék þetta hlutverk var ekki skoðuð sem rómantísk hetja. Ásta Sigurðardóttir sendi frá sér fyrstu smásöguna 1950 og þremur árum síðar sögu sem kölluð hefur verið ein af fyrstu módernísku smásögunum á Íslandi. Dagný segir að hugarfarið hafi verið þannig á nítjándu öldinni og vel fram á þá tuttugustu að konur sem komu fram opinberlega, til að mynda leikkonur, væru ekki heið- virðar konur. „Orðin kona og bóhem útilokuðu hvort annað og Ásta Sigurð- ardóttir var þannig lifandi þversögn,“ segir hún og minnir á að það sé ekki svo langt síðan; Ásta lést 1971. „Fyrir ungar konur varð hún nú samt upp- reisnarhetja og fyrirmynd.“ Rifin háborgarbygging Upp úr þessu fer þó að losna um valdið yfir umræðunni og goggunarröðin breyttist, eins og Dagný orðar það, í kjölfar ’68-byltingarinnar, stúdenta- uppreisnar, baráttuhreyfinga fyrir rétt- indum minnihlutahópa, svartra, kvenna, samkynhneigðra og jafnvel barna. Róttækustu baráttuhreyfingarnar voru ekki endilega hallar undir kven- frelsi og fannst að það gæti beðið þang- að til eftir byltinguna. „Sjöundi áratugurinn var mjög dramatískur um margt. Það var svo mikið að gerast á þeim árum, fjölda- menning flæddi inn í landið og menn- ingaráhrif úr austri og vestri. Sem dæmi um það hve breytingarnar voru örar á þeim árum get ég nefnt frásögn Ingi- bjargar Haraldsdóttur af því í ævisögu Allir lesa karlana en bara kon- urnar konur Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmennta- verðlauna kvenna, verða kynntar á morgun, en verðlaunin verða veitt í fimmta sinn í lok mars. Tilnefning til verðlaunanna gefur tilefni til að velta fyrir sér stöðu bókmennta kvenna á Íslandi í gegnum árin. Árni Matthíasson arim@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.