SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Síða 2
2 13. mars 2011
F
östudagsmorgunn.
Allir aðrir í fasta-
svefni, dæturnar í fríi
í skólanum og konan
þarf ekki að mæta í vinnu, en
ég kominn á þann aldur að
vakna, án nokkurrar hjálpar,
fyrir allar aldir.
Með stírurnar í augunum
hökti ég niður í eldhús af
gömlum vana, kveiki tíru
og gjóa augum út um
gluggann. Reyni það öllu
heldur en gengur ekki sérlega
vel af ýmsum ástæðum; í fyrsta
lagi er ég nývaknaður, í öðru
lagi ekki búinn að setja upp
gleraugun, og til að bæta gráu
ofan á svart er snjóskán á
glugganum eftir ofankomu og
blástur.
Þegar ég finn gat á skáninni
til að kíkja í gegnum geri ég
mér ljóst að það er töluverð
hríð, hann er á norðan og það
sér varla út úr augum. Varla á
milli augna, eins og góður
maður sagði einhvern tíma.
Við mælum með
Bára Grímsdóttir, Chris Foster
og sagnakonan Rósa Þorsteins-
dóttir halda söngstund í Gerðu-
bergi undir heitinu Syngjum og
kveðum um atvinnu fólks fyrr
og nú. Gestum gefst kostur á að
eiga saman góða stund, syngja
og hlýða á söngva um bændur,
húsfreyjur, verkamenn og kon-
ur, o.fl. Lögin eru blanda af ís-
lenskum alþýðulögum og er-
lendum þjóðlögum.
Syngjum og kveðum
22 Þurfum viðspyrnu til vaxtar
Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs Norðurþings, vill að orkan í
Þingeyjarsýslum verði nýtt til að byggja upp atvinnu á svæðinu.
28 Unnið af kærleika
Lovísa Christiansen, framkvæmdastjóri Meðferðarheimilisins í Krýsu-
vík, hefur séð fjölda einstaklinga losna úr viðjum áfengis og fíkniefna.
30 Anna Borg og Charlotte Böving
Styrmir Gunnarsson segir tengslin milli hins danska leikhúss og hins
íslenska alltaf hafa verið sterk.
35 Bjartur og fallegur
Kaffihús undir merkjum The Laundromat Café var
opnað í vikunni í húsinu við Austurstræti 9. Friðrik
Weisshappel rekur staðinn.
40 Blessuð tæknin
Lífið er orðið mun auðveldara í dag með aukinni
tækni. Stundum þvælast þessar nýjungar samt
fyrir manni.
Lesbók
44 Fjörugir andar
Hús andanna, hin vinsæla skáldsaga Isabel Allende, hefur verið end-
urútgefin í þýðingu Thors Vilhjálmssonar.
45 Konur lesa bækur
Orðanna hljóðan í umsjá Árna Matthíassonar.
47 Heimurinn í nýju ljósi
Auður A. Ólafsdóttir á síðasta orðið.
36
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók RAX.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
38
Augnablikið
Staðan er fullkomin; ég sit
inni í hlýjunni, þarf ekki út og
uppáhaldsheimilistækið mitt í
seilingarfjarlægð. Það er fullhá-
vært við notkun og ég velti því
fyrir mér um stund hvort borgi
sig að taka þá áhættu að ein-
hver vakni við lætin. Gleymi
þeim áhyggjum á mettíma,
sæki lítinn bolla og kem fyrir
neðan við tvær litlar pípur, ýti
á takka og held fyrir eyrun (svo
enginn vakni) á meðan vélin
malar nokkrar baunir. Síðan
bunar úr henni skammtur í lít-
inn bolla.
Það er unaðslegt þegar
dásamlegur kaffiilmurinn fyllir
vitin, hvað þá þegar froðan
smýgur inn á milli varanna og
sjóðheitt kaffið leikur við tung-
una. Bara muna að lygna aftur
augum og segja mmm. Og ekki
gleyma að rýna út í sortann því
þá bragðast fyrsti kaffibolli
dagsins enn betur en ella.
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ein unaðsstund
Mmmmmmm... Fyrsti bolli dagsins.
12. mars
Hörður Ás-
kelsson, org-
anisti og
kantor Hall-
grímskirkju
flytur franska barokktónlist í
hádeginu í Hallgrímskirkju.
Tónleikarnir eru á vegum List-
vinafélags Hallgrímskirkju.
13. mars
Dúnmjúkur
Jazz á Faktorý
Bar öll
sunnudags-
kvöld. Sam-
suða af jazzgúrúum tryggir
mjúka lendingu eftir erilsamar
helgar.
13. mars
Ingó töframaður með magnaða
töfrasýningu í Austurbæ en
hann starfar sem atvinnu-
töframaður.
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8,
112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ILVA.is
mánudaga - föstudaga 11-18:30
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
einfaldlega betri kostur
Brauð með hangikjöti.
490,-
SMURT
BRAUÐ