SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Side 6
6 13. mars 2011
Tom Ford fékk lausan tauminn hjá franska Vogue í
desember og eitt af hugarfóstrum hans var 15 blað-
síðna myndaþáttur með litlum stúlkum, uppá-
klæddum og máluðum og eru meðfylgjandi myndir úr
honum. Þrátt fyrir að Ford hafi verið gestaritstjóri
heftisins bar Roitfeld á endanum ábyrgðina.
Stúlkurnar líta ekki út eins og litlar stelpur heldur
eru mikið málaðar og í kjólum frá toppmerkjum eins
og Versace, Lanvin, Gucci og Yves Saint Laurent við
dýra demantaskartgripi.
Stúlkubörn í fullorðinsleik
Auglýsendur voru ósáttir og kvörtuðu við Condé Nast vegna þessara mynda.
H
inn áhrifamikli tískuritstjóri Carine
Roitfeld hefur stýrt sínu síðasta hefti af
franska Vogue og við stöðu hennar
tekur tískuritstjóri blaðsins, Emm-
anuelle Alt. Ritstjóraskiptin þóttu koma snögglega
til en Roitfeld hafði ritstýrt
tímaritinu í tíu ár. Þetta þóttu
miklar fréttir en ritstjóraskipti
hjá stóru tískutímaritunum eru
sjaldgæf. Anna Wintour hefur
ritstýrt bandaríska Vogue í
22 ár, Franca Sozzani
ítölsku útgáfunni jafn-
lengi og Alexandra
Shulman hefur verið hjá
breska Vogue í aðeins styttri tíma.
Ástæða þess að Roitfeld hætti störfum
virðist vera umdeilt desemberhefti blaðsins
þar sem Tom Ford, náinn vinur og sam-
starfsmaður hennar til langs tíma, kom
mikið við sögu. Sérstaklega fór í útgefand-
ann myndaþáttur þar sem litlar stúlkur
eru sýndar málaðar í kvenmannsfötum.
Fyrirtækinu þótti Roitfeld hafa gefið Ford
lausan tauminn með blaðið og ekki stýrt
því sjálf af nægri festu. Einnig var ágrein-
ingur mikli útgefandans og hennar vegna
fjarveru hennar frá skrifstofunni. Þegar
þessi meintu stjórnunarvandamál komu
upp á borðið bauðst Roitfeld til að segja af
sér, samkvæmt grein Cathy Horyn í The
New York Times. Ef til vill vonaðist hún
til þess að fyrirtækið vildi halda henni
en uppsögnin var samþykkt. Útgáf-
unni, Condé Nast, bárust ennfremur
margar kvartanir frá auglýsendum
vegna myndaþáttarins með stelpunum.
„Mér var fórnað vegna þessa. Þú veist, það er erfitt
að gera eitthvað nýtt í hverjum mánuði,“ sagði hún
við Horyn. Aðspurð hvort hún sæi eftir því að hafa
sagt upp svaraði hún: „Ég er leið yfir þessu en
að hluta til er ég líka mjög glöð. Ég vil ekki verða
gömul í einhverju gullbúri. Ég er svo mikill pönkari
í mér.“ Roitfeld skilur eftir sig góða arfleifð en sala
tímaritsins jókst um 40% í hennar tíð. Roitfeld og
Alt unnu náið saman þessi tíu ár en þessi átök hafa
haft það í för með sér að þær talast ekki lengur við.
Alt er 43 ára gömul, dóttir fyrirsætu og laga-
smiðs. Sjálf lítur hún út eins og fyrirsæta, há og
grönn og líta margir upp til rokkaðs fatastíls henn-
ar. Hún hefur unnið sig upp metorðastigann
innan tískuheimsins, byrjaði sem nemi
hjá franska Elle og vann líka hjá 20 Ans
og Mixte og byrjaði þremur vikum á
undan Roitfeld hjá Vogue. Hún hefur
getið sér gott orð sem stílisti, bæði
fyrir myndaþætti í tímaritinu og hin
mjög svo svölu frönsku tískuhús
Balmain og Isabel Marant. Nú þegar
hún er orðin ritstjóri ætlar hún þó
ekki að taka að sér neina ut-
anaðkomandi vinnu.
Í viðtali við Vogue.com segist Alt
ekki ætla að breyta tímaritinu á
áberandi hátt. „Þetta er eins og
þegar þú kaupir íbúð: Áður en þú
flytur ertu með margar hugmyndir
um hvað þú ætlir að gera en þegar þú
flytur inn áttarðu þig á því að það er
betra að búa í íbúðinni um tíma og
breyta henni smám saman,“ segir Alt
sem er þó með einhverjar hugmyndir
um breytingar sem hún er tilbúin til að
deila. „Ég vil sýna lífsstíl fólks. Það er svo
mikið af áhugaverðu, svölu fólki hérna,
og það á að vera í blaðinu. Fleiri franskar
stelpur, meira af frönskum lífsstíl,“ út-
skýrir Alt en það er alveg ljóst að hún verð-
ur að leggja allt í sölurnar til að sanna sig.
Þetta kemur þó ekki í ljós fyrr en aprílhefti
franska Vogue berst í búðir en það verður fyrsta
heftið sem Alt ritstýrir. Tímaritið tilkynnti á Fa-
cebook-síðu sinni á föstudaginn að blaðið kæmi í
búðir 25. mars. Forsíðuna prýðir engin önnur en
Gisele Bündchen í hvítum, gegnsæjum blúndukjól
frá Dolce & Gabbana.
Alt eða ekkert
Ritstjóraskipti hjá franska
Vogue vegna óviðeigandi
myndaþáttar með stúlkubörnum
Carine Roitfeld gegndi stöðu ritstjóra franska Vogue í tíu ár. Hér er
hún í 90 ára afmælisfagnaði tímaritsins í París í september.
Reuters
Vikuspegill
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Emm-
anuelleAlt er nýrritstjórifranskaVogue.Hún erþekkturstílisti ogþykir veramjög töff.
Carine Roitfeld hefur ekki gefið upp
hvað hún ætli að taka sér fyrir
hendur næst. Hún neitar því þó að
það eigi eftir að tengjast vini henn-
ar Tom Ford á neinn hátt heldur vill
hún leita á nýjar slóðir
Orðrómur er uppi um að hún muni
koma á fót tískutímaritinu Harper’s
Bazaar í París eða fari að vinna hjá
franska tískuhúsinu Yves Saint
Laurent. Eitt er ljóst, hún á ekki eft-
ir að eiga í erfiðleikum með að út-
vega sér starf í tískuheiminum.
Hvað næst?
Tom Ford uppáklæddur á síð-
ustu Óskarsverðlaunahátið.
Reuters
www.noatun.is
Fermingarveislur
Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun.
1990
KR./MANN
VERÐ FRÁ
AÐEINS