SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Qupperneq 8
8 13. mars 2011
Bradley Manning er 23 ára gam-
all bandarískur hermaður. Hann
var tekinn höndum í Írak síðast-
liðið sumar grunaður um að hafa
lekið upplýsingum til uppljóstr-
unarvefjarins WikiLeaks og í
kjölfarið fluttur til fangavistar í
Quantico.
Ákæran á hendur Manning er í
mörgum liðum en honum er gefið
að sök að hafa lekið leynilegum
upplýsingum, myndböndum og
herskrám frá Írak og Afganistan
sem hann hafði aðgang að. Verði
hann fundinn sekur um að „að-
stoða óvininn“ gæti hann átt
dauðarefsingu yfir höfði sér.
Sameinuðu þjóðirnar grennsl-
ast nú fyrir um það hvort Mann-
ing sæti pyntingum í Quantico
og ætti bréf hans nú að varpa
skýrara ljósi á aðbúnað her-
mannsins.
Gæti hlotið
dauðarefsingu
Julian Assange hjá WikiLeaks.
Reuters
H
ún er ófögur myndin sem Bradley
Manning, hermaðurinn sem grunaður
er um að hafa lekið ríkisleyndarmálum
til WikiLeaks, dregur upp af fangavist
sinni í Quantico-herfangelsinu í Virginíu. Hann
hefur nú, fyrir milligöngu lögmanns síns, tjáð sig í
fyrsta skipti um aðbúnaðinn en mannúðarsamtökin
Amnesty International hafa þegar mótmælt með-
ferðinni á Manning formlega við bandarísk yfirvöld.
Áður höfðu lögmaður hans og vinur vakið athygli á
málinu.
Í bréfi sem lögmaður hans gerði opinbert í vik-
unni lýsir Manning aðbúnaði og meðferðinni sem
hann hefur sætt í grjótinu. Þar kemur meðal annars
fram að hann hefur verið undir sérstöku eftirliti
síðan í janúar fyrir þær sakir að fangaverðir óttast
að hann kunni að svipta sig lífi. Í því felst að
Manning er haldið í klefa sínum í 23 klukkutíma á
sólarhring og litið til með honum á fimm mínútna
fresti, líka að næturlagi, gerist þess þörf.
„Mér var skipað að fara úr öllum fötunum, nema
nærklæðunum. Gleraugun voru meira að segja tekin
af mér og ég neyddur til að hírast án þess að sjá
nokkurn skapaðan hlut,“ segir Manning í bréfi sínu
þegar hann lýsir aðbúnaði sínum.
Hann hafnar þeirri skýringu fangavarða að hann
sé í sjálfsvígshugleiðingum. Þvert á móti sæti hann
þessari meðferð vegna þess að stuðningsmenn hans
mótmæltu kröftuglega fyrir utan Quantico daginn
áður en efnt var til hennar. Manning segir fanga-
verðina vera sér erfiður ljár í þúfu, þeir ausi yfir
hann svívirðingum, hæðist að honum og gefi hon-
um misvísandi fyrirmæli.
Þegar hann var upplýstur um sjálfsvígsvaktina
kveðst Manning hafa komist í mikið uppnám. „Í
ergelsi mínu greip ég um hárið og hrópaði: Hvers
vegna gerið þið mér þetta? Hvers vegna er verið að
refsa mér? Ég hef ekkert brotið af mér?“
Stara á hann kviknakinn
Manning lýsir einnig niðurlægingunni sem felst í
því að vera berháttaður frammi fyrir hópi fanga-
varða en við það hefur hann búið mestallan tímann
frá því hann kom í fangelsið í júlí í fyrra. „Mér var
skipað að standa kviknakinn í klefanum mínum
meðan fangelsisstjórinn og aðrir verðir gengu hjá.
Þetta tók um það bil þrjár mínútur. Fangelsisstjór-
inn nam staðar og virti mig fyrir sér áður en hann
hélt áfram í næsta klefa. Ég dauðskammaðist mín
að standa þarna meðan allir þessir menn störðu á
mig nakinn.“
Lögmaður Mannings hefur ritað yfirstjórn Banda-
ríkjahers bréf, þar sem hann kvartar undan með-
ferðinni sem skjólstæðingur hans sætir. Þar er
meðal annars að finna ágrip af upplýsingum úr
Quantico, þar sem fram kemur að Manning hafi
sýnt mönnum virðingu og kurteisi í hvívetna með-
an á fangavistinni hefur staðið. Þá kemur fram að
sálfræðingar, sem metið hafa Manning, eru þeirrar
skoðunar að hann sé ekki í sjálfsvígshugleiðingum
og eigi ekki að sæta sérstöku eftirliti í fangelsinu.
Bradley Manning segir farir sínar ekki sléttar í fangelsinu.
Hírist gleraugna-
laus á nærklæðum
Bradley Manning tjáir sig sjálfur
um aðbúnaðinn í Quantico
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
5
7
7
3