SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Side 14
M
ikill viðbúnaður var í Japan í gær
eftir jarðskjálftann, sem varð í gær.
Jarðskjálftinn hleypti af stað tíu
metra hárri flóðbylgju, sem sópaði
með sér bílum, bátum, skipum og mannvirkjum.
Seint í gær var vitað að hátt í fjögur hundruð
manns hefðu látið lífið, en óttast er að rúmlega
þúsund hafi farist.
Jarðskjálftinn var 8,9 stig á Richter-kvarða og
mun vera sá sjöundi stærsti í sögunni. Fréttir
bárust af því að 200 til 300 lík hefðu fundist í
fjörunni í bænum Sendai. Farþegalestar var að
sögn lögreglu saknað í Miyagi-héraði og flóðalda
sópaði burt skipi með 100 manns um borð.
Skemmdir voru miklar á húsum. Samgöngur
lömuðust í Tókýó og milljónir borgarbúa voru
strandaglópar á vinnustöðum sínum og komust
ekki heim vegna þess að neðanjarðarlestakerfi
Hamfarir í Japan
Mikið manntjón varð í jarðskjálftanum, sem varð undan
ströndum Japans í gær og hleypti af stað gríðarlegri flóð-
bylgju. Skjálftinn var 8,9 á Richter og er sá mesti, sem
mælst hefur í Japan í 140 ár.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Gríðarleg iða mynd-
aðist við Oaraiborg
í Ibaraki-héraði í
Norðaustur-Japan.
Naoto Kan, forsætisráðherra Japans, horfir upp á nefndarfundi í efri deild japanska þingsins í skjálftanum í gær.
Gasgeymar í Chiba-héraði skammt frá Tókýó voru í ljósum logum eftir
jarðskjálftann í gær og eldsúlan teygði sig hátt til himins.
Fólk leitaði skjóls þegar loftið í bókabúð hrundi í borginni Sendai á
norðausturströnd Hokkaido í skjálftanum í gær.
Fólk horfir yfir eyðilegginguna af völdum flóðbylgjunnar eftir jarðskjálftann í gær í hafnarborginni Kessen-
uma í Miyagi-héraði. Mikið uppbyggingarstarf fer nú í hönd í Japan. Vonleysið skín af andlitunum.
14 13. mars 2011