SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Page 35
13. mars 2011 35
Þ
að verður áreiðanlega meiri „ys og
læti“ í Austurstræti eftir opnun La-
undromat-kaffihússins, að minnsta
kosti á daginn, því staðurinn verður
opinn frá klukkan átta á morgnana á virkum
dögum. Er það fagnaðarefni fyrir íbúa í ná-
grenninu og hina fjölmörgu gesti miðborg-
arinnar. Staðurinn er bjartur og skemmti-
legur, gerður í sama stíl og dönsku
Laundromat-kaffihúsin, sem hafa ekki aðeins
vakið athygli fyrir góðan mat heldur líka
þægilegt andrúmsloft og skemmtilega hönn-
un.
Rauði liturinn er einkennislitur staðarins
eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Kjall-
arinn hefur ennfremur verið lagður að mestu
undir börnin en þar er búið að skapa ævin-
týraheim fyrir gesti í minni kantinum. Mikið
er lagt upp úr smáatriðum á staðnum og hugs-
að fyrir öllu. Húmorinn er aldrei langt undan
hjá Friðriki og félögum eins og endurspeglast í
veggspjöldunum sem bjóða fólk velkomið.
Staðurinn er bjartur og skemmtilega hannaður. Barstólarnir eru þægilegir, vel bólstraðir og hlífa afturendanum vel.
Friðrik að dreifa kaffi um gólfið til að útrýma málningarlyktinni.
Bjartur og fallegur
Kaffihús undir merkjum The Laundromat Café var opn-
að á föstudaginn í húsinu við Austurstræti 9. Fyrir rekur
Friðrik Weisshappel tvö vinsæl kaffihús með sama nafni
í Kaupmannahöfn. Staðurinn er bjartur og fallegur.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is
Ýmsar fígúrur úr bókaheiminum heilsa gestunum í kjallaranum.