SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Side 36
Þ
átttökumet er á MP Reykja-
víkurskákmótinu sem hófst í
vikunni og lýkur 16. mars, en
um 170 skákmenn taka þátt
og þar af 30 stórmeistarar. Mótið fer
fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og er
minningarmót um skákmeistarann Inga
R. Jóhannsson, en auk þess Norð-
urlandamót í opnum flokki og kvenna-
flokki.
Keppendur eru frá um 30 löndum
sem einnig er met. Margir sterkir
skákmenn taka þátt og er þeirra stiga-
hæstur enski stórmeistarinn Luke
McShane með 2683 skákstig. Ungstirn-
in setja svip sinn á mótið og má þar
sérstaklega nefna tvo 14 ára stráka sem
eiga án efa eftir að láta ljós sitt skína.
Yngsti stórmeistari heims, Ilya Nyzn-
hik frá Úkranínu, tekur þátt og það
gerir einnig Kiprian Berbatov, bróð-
ursonur Dimitars hjá Manchester Unit-
ed, sem hefur unnið sér sæti í ólymp-
íuliði Búlgara.
Í ár er slegið aldursmet því Vignir
Vatnar Stefánsson er yngsti skákmað-
urinn í sögu Reykjavíkurmótanna að-
eins 8 ára. Nansý Davíðsdóttir, sem
einnig er átta ára, er sú næstyngsta
sem hefur tekið þátt og er að sjálfsögðu
yngsta stúlkan.
Hér er rætt við nokkra af þeim
keppendum, sem augun munu beinast
að á mótinu.
Hliðhollar lukkudísir
Sterkastur íslenskra stórmeistara er
Hannes Hlífar Stefánsson, sem hefur
náð þeim merkilega árangri að vera á
meðal sigurvegara á þremur síðustu
Reykjavíkurskákmótum, þrátt fyrir að í
öll skiptin væru stigahærri stórmeist-
arar á meðal keppenda, jafnvel í allra
fremstu röð í heiminum.
„Líklega spilar heimavöllurinn inn í
og líka þjóðarstoltið, en ég á erfitt með
að gefa einhliða skýringu á því, hvers
vegna mér hefur tekist þetta,“ segir
hann. „Lukkudísirnar hafa verið mér
hliðhollar en það þarf líka að fylgjast
með til að vera sigurvegari í svo fjöl-
sóttu móti sem Reykjavíkurskákmótið
er.“
Hannes býr í Prag og segir auðveld-
ara að stunda skáklistina erlendis, því
einfaldara sé að ferðast á milli móta.
Og hann hefur teflt nokkuð á þessu ári.
„Ég tók þátt í tveimur sterkum skák-
mótum í janúar á Indlandi og gekk
ágætlega á fyrra mótinu, en ekki eins
vel á því seinna. Það getur reynt á að
tefla við ólíkar aðstæður, þar sem
loftslag og menning er frábrugðið því
sem maður á að venjast, en að sama
skapi getur líka verið gaman að takast
á við það. Ég tel mig vera í góðu skák-
formi, en það er erfitt að geta sagt fyrir
um það með nokkurri vissu fyrr en á
hólminn er komið. Oft ráða úrslitum
augnabliksmistök, sem skilja á milli
feigs og ófeigs.“
Er í góðu skapi
Lenka Ptacnikova er sterkasta skák-
kona Íslands á mótinu og raunar sterk-
ust á Norðurlöndum, en Reykjavík-
urskákmótið er jafnframt
Norðurlandamótið í skák á þessu ári.
„Hjá mér tekur alltaf svolítið langan
tíma að komast í gang, svo það var
ágætt fyrir mig að hita upp í deilda-
keppninni um í síðustu helgi,“ segir
hún.
„Núna er ég í góðu skapi og hlakka
til að taka þátt! Auðvitað væri ágætt að
vinna Norðurlandamót kvenna einu
sinni enn og ná kvennaverðlaunum í
mótinu. Að berjast fyrir þeim titli á
svona risastóru og sterku móti er
miklu erfiðara en í litlum sérflokkum
eins og á síðustu árum. Maður fær
varla að tefla beint við aðrar sterkustu
skákkonur Norðurlanda og úrslitin fara
mikið eftir því hvernig gengur í síðustu
umferðunum. En hins vegar er miklu
skemmtilegra að taka þátt í svona
stóru móti og fá tækifæri til að etja
kappi við miklu sterkari skákmenn.“
Hinn norski stórmeistarinn
Á meðal erlendra keppenda er norski
stórmeistarinn Jon Ludvig Hammer,
sem er um tvítugt. Hann hefur þó ekki
vakið eins mikla athygli og annar
norskur stórmeistari, Magnus Carlsen,
sem er Íslendingum að góðu kunnur og
einn fremsti skákmeistari í heiminum.
Þeir hafa aldrei unnið saman að skák-
iðkun sinni, en gengu þó í sama
menntaskóla í þrjú ár, sem komið var á
fót fyrir fremstu íþróttamenn Noregs,
en þar sá Simen Agdestein um skák-
kennslu.
„Það er erfitt að svara því, af hverju
Norðmenn eiga allt í einu tvo skák-
menn í fremstu röð,“ segir Hammer.
„Magnus er einstakt tilfelli og Norð-
menn sem skákþjóð eru mjög lánsamir
að njóta krafta hans. Hvað mig varðar,
þá hef ég gaman af að tefla og hef alltaf
viljað ná betri árangri. Auk þess er það
mikil hvatning að fylgjast með Magnusi
skáka heimsins bestu skákmönnum og
undravert hversu lítið hann hefur fyrir
því. Vonandi munu margir fleiri hæfi-
leikamenn frá Noregi blómstra í náinni
framtíð!“
Þetta er í fimmta skipti sem Hammer
teflir hér á landi og segist hann ein-
faldlega njóta þess að taka þátt í sterk-
um skákmótum. „Og það vill bara svo
til að það er mikið um þau á Íslandi!“
Og það veltur á því hvernig hann er
upplagður, hvort hann notar tímann á
ferðalögum til að kynnast landi og
þjóð. „Venjulega hef ég ýmislegt í bí-
gerð í þeim efnum, en það dettur upp
fyrir vegna þess að skákin er framar í
forgangsröðinni. En við spilum knatt-
spyrnuleik á sunnudag, Ísland gegn
umheiminum, og ég hlakka til þess!“
Hætti í fjármálageiranum
Einna sigurstranglegastur á mótinu
hlýtur að teljast stórmeistarinn Luke
McShane, sem nýverið náði frábærum
árangri á skákmóti í London, hafnaði í
öðru til þriðja sæti ásamt heimsmeist-
aranum Anand eftir að hafa unnið sig-
urvegara mótsins, Magnus Carlsen.
Ekki er langt síðan McShane hætti
skákiðkun og ætlaði að hasla sér völl í
fjármálageiranum, nánar tiltekið hjá
Goldman Sachs. En hvað olli því að
Augnablik skilur á
milli feigs og ófeigs
Hátíð skákáhugamanna er gengin í garð. Met-
þátttaka er í Reykjavíkurskákmótinu sem hófst í
vikunni og kennir þar ýmissa grasa. Nokkrir
forvitnilegir skákmenn voru teknir tali.
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is Myndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is
Reykjavíkurskákmótið 2011 stendur nú sem hæst. Íþróttin krefst gríðarlegrar einbeitingar eins og glöggt sést á þessari mynd.
Morgunblaðið/Ómar
36 13. mars 2011