SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Blaðsíða 37
hann sneri aftur að skákborðinu?
„Þetta var ekki yfirveguð ákvörðun.
Á þessu augnabliki tefli ég og nýt þess,
en hver veit hvað gerist í framtíðinni?
Ég vann áður í fjármálageiranum og
mér fannst það mjög áhugavert.“
McShane náði einum af áföngum
sínum að stórmeistaratitli á Reykjavík-
urskákmótinu, hann hefur oft teflt hér
og segist eiga góðar minningar frá þeim
heimsóknum. „Mér líkar virkilega vel
við allt fólkið sem ég hef hitt og and-
rúmsloftið. Ég reyni að grípa tækifærið
og kynnast landinu, en ég er ekkert
sérstaklega fyrir það að fylgja bara ein-
hverjum lista yfir helstu kennileiti. En
hins vegar, með því að taka þátt í
skákmóti, þá fær maður tækifæri til að
hitta marga sem búa á staðnum, og
mér finnst það jafnvel enn áhugaverð-
ara.“
Þekkt í Hvíta-Rússlandi
Anne Sharevich er skákmeistari sem
kemur alla leið frá Hvíta-Rússlandi og
er ekki aðeins sterkust við taflborðið
þar í landi, heldur einnig þekkt fyrir
að koma fram í sjónvarpsþáttum og
sinna fyrirsætustörfum. Það vakti at-
hygli er hún bar sigurorð af Hannesi
Hlífari í annarri umferð mótsins.
Sharevich segir það ánægjulegt að
vera boðið til Íslands, sem hún hafi
gjarnan viljað sækja heim. „Það er
dásamlegt þegar hægt er að blanda
saman skákinni og heimsókn á áhuga-
verða staði. Stundum fáum við ekki
tækifæri til að skoða landið sem við
teflum í, til dæmis þegar Evr-
ópukeppnin er haldin, en mér finnst
mjög mikilvægt að gefa færi á því þegar
þessi helstu skákmót eru skipulögð á
rómuðum ferðamannastöðum.“
Skákin er líf mitt
Hver skyldi vera galdurinn við árangur
Ihya Nyzhnik við skákborðið, yngsta
stórmeistara í heimi? „Ég veit það
ekki,“ segir hann. „Kannski finnst mér
bara skák skemmtileg. Skákin er líf
mitt. En þetta er vinna, vinna og aftur
vinna. Og fyrst af öllu þarf maður að
hafa trú á sjálfum sér.“
Nyzhnik setur markið hátt, eins og
nærri má geta. „Ég er ungur stórmeist-
ari, svo ég þarf að venjast þessum nýja
titli. Næsta markmið er að verða einn
af hundrað bestu skákmönnum heims-
ins.“
Þetta er í þriðja skipti sem Nyzhnik
teflir á Reykjavíkurskákmótinu. „Mér
líkar vel að tefla hérna. Ég er þakklátur
mótshöldurum fyrir að bjóða mér að
taka þátt í þessari merkilegu keppni.
Fyrir mér var þetta eins og að koma
heim frá heimkynnum mínum.“
En hann hefur ekki tækifæri til að
ferðast mikið um mótsstaði. „Hver ferð
er lítið ævintýri, svo ég hef tækifæri til
að kynnast löndunum sem ég heim-
sæki. En skákin tekur mikinn tíma
meðan á keppnum stendur. Venjulega
hef ég aðeins svigrúm til að fara í
gönguferðir.“
Ekki slakur í fótbolta
Annar skákmaður vekur ekki aðeins
athygli fyrir ungan aldur, heldur einnig
fyrir nafnið, Kiprian Berbatov, sem er
frændi markahróksins Dimitars hjá
Manchester United. „Ég spila líka fót-
bolta – og er ekki slakur af áhuga-
manni að vera,“ segir Kiprian glað-
beittur. „Og frændi minn kann held ég
undirstöðuatriði skákarinnar, en teflir
ekki.“
Eins og það sé ekki nóg að vera
skyldur Dimitar, þá kemur Kiprian
einnig frá Búlgaríu, sem hefur átt tvo
heimsmeistara í skák, Veselin Topalov
og Antoanetu Stefanovu. Það er því
sterk skákhefð í heimalandinu. Kiprian
segist hafa fengið hugmyndina að þátt-
töku í Reykjavíkurskákmótinu frá
þjálfara sínum, stórmeistaranum Boris
Chatalbashev, sem einnig er á meðal
þátttakenda.
„Hann sagði mér að þetta væri virt
og sterkt skákmót,“ segir Kiprian.
„Venjulega einbeiti ég mér alfarið að
skákinni, en stundum heimsæki ég
áhugaverða staði á mótsstað. Við höf-
um þegar gengið um miðbæ Reykjavík-
ur og heimsótt jarðböðin.“
Nansý Davíðsdóttir og Vignir Vatnar við skákborðið. Þau eiga framtíðina fyrir sér.
Morgunblaðið/Ómar
’
Líklega spilar heimavöllurinn inn í og líka
þjóðarstoltið, en ég á erfitt með að gefa ein-
hliða skýringu á því, hvers vegna mér hefur
tekist þetta
13. mars 2011 37
Það hefur vakið athygli á Reykjavík-
urskákmótinu að tveir óvenju ungir skák-
menn eru á meðal keppenda. Annar þeirra
er Vignir Vatnar, átta ára gamall úr Tafl-
félagi Reykjavíkur, og hinn er Nansý Dav-
íðsdóttir, níu ára skákstelpa úr Fjölni. Þau
voru spurð nokkurra spurninga. Fyrst Vign-
ir.
– Ertu ekkert stressaður að vera að
mæta á Reykjavíkurskákmótið innan um
alla þessa fullorðnu skákmeistara – eða
ertu kannski vanur því að tefla á móti full-
orðnum?
„Nei ekkert svo, ég hef oft teflt við full-
orðna,“ svarar Vignir.
– Hvenær byrjaðir þú að æfa og hvað
varð til þess að þú byrjaðir?
„Þegar ég var 4 eða 5 ára. Pabbi var oft
að tefla við vin sinn og ég að horfa á og
svo fór ég bara að æfa.“
– Var það þá pabbi sem kenndi þér að
tefla?
„Nei, ég bara lærði það með því að
horfa á hann og vin hans tefla.“
Vignir byrjaði að æfa fimm til sex ára
gamall, mætti fyrst á æfingar í Taflfélagi
Reykjavíkur og byrjaði svo í einkakennslu
hjá Skákakademíu Reykjavíkur.
– Hvaða markmið seturðu þér fyrir
Reykjavíkurskákmótið?
„Ég veit það ekki, kannski að vinna 2
skákir, þetta er erfitt mót.“
Ég þarf að flýta mér
Nansý var í miðri skák þegar viðtalið var
tekið og mátti ekkert vera að þessu – hún
hefur forgangsröðina á hreinu.
– Ertu ekkert stressuð að vera að mæta
á Reykjavíkurskákmótið innan um alla
þessa fullorðnu skákmeistara – eða ertu
kannski vön því að tefla á móti full-
orðnum?
„Nei ég held ekki,“ svarar hún.
– Hvenær byrjaðir þú að æfa og hvað
varð til þess að þú byrjaðir?
„Sjö ára. Ég fór á skákæfingu í Rima-
skóla.“
– Hvaða markmið seturðu þér fyrir
Reykjavíkurskákmótið?
„Veit ekki. Ég þarf að flýta mér, ég held
ég eigi leik.“
Og þá var hún rokin.
Hef oft teflt við fullorðna
Kiprian Berbatov: „Það sem er mest
heillandi við skákina er frá einu sjón-
arhorni rökhyggjan, eins og í stærðfræði,
og frá öðru næmið fyrir samræmi, eins og
í listum.“
Jon Ludvig Hammer: „Með orðinu
heillandi, býst ég við að þú eigir við hvað
laðar mig að skákinni. Það er mjög ein-
falt: Að vinna.“
Hannes Hlífar Stefánsson: „Það sem
er heillandi við skákina er hversu flókin
og djúp hún er en það koma stöðugt fram
nýir leikir í byrjuninni sem maður þarf að
kunna tök á.“
Luke McShane: „Riddarar geta hreyfst
aftur á bak, en peð ekki.“
Nansý Davíðsdóttir: „Að nota heilann.“
Ihor Nyzhnik: „Ég veit ekki svarið við
þessari spurningu, en milljónir tefla og
allir fá eitthvað út úr því.“
Lenka Ptacnikova: „Það er svo margt
heillandi við skákina. Skák inniheldur
keppni, list og galdur – lætur fólk brosa
og gráta. Skák tengir fólk saman, gefur
því tækifæri til að ferðast og kynnast fólki
frá ólíkum löndum og sjá allan heiminn.
Skákfólk segir: GENS UNA SUMUS!“
Anne Sharevich: Skák er lífsstíll, einn
mikilvægasti hluti lífs míns!!!“
Vignir Vatnar: „Það er bara svo
skemmtilegt að tefla. En það er líka
stundum skemmtilegra að leika sér.“
Hvað heillar þig við skákina?
Jon Ludvig Hammer
Morgunblaðið/Ómar