SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Síða 41
13. mars 2011 41
LÁRÉTT
1. Sleginn af girndinni. (7)
4. Óborguð upphæð bygginga að sjálfsögðu. (9)
7. Lítill hjá ykkur fær kipp. (9)
9. Þú sem læknir hefur list og teikningu. (9)
10. Kveinkar sér frekar. (6)
14. Sá sem nær lengra niður kemur engu að samt
sem áður. (11)
15. Splæsi í bjöllu á nokkuð stuttri stund. (10)
16. Hálfbiluðum gleymi ekki í skemmtun. (5)
17. Vanda sig við mál og erfiðleika (8)
18. Þreyttir á partíum og samskiptum. (9)
20. Snerist til dæmis við og sleit umfangsmikið.
(6)
22. Líkamshlutar eru það sem endist. (5)
23. Aparnir fá fimmtíu úr fjöllunum. (8)
26. Uppspunnið að búa með Alfreð í rugli. (9)
27. Nást tímasetningar sem eru ekki megnari. (6)
28. Ek á Krókeyri. (5)
29. Þurr í þetta sinn hjá tröllinu. (7)
30. Hugsun fer í jörð ennþá. (8)
31. Hópurinn sýnir hröðun við slægjulandið (6)
LÓÐRÉTT
1. Æi skelli einum einhvern veginn í skýrleika. (9)
2. Spilið í reitnum. (6)
3. Drykkur vegna klæðaleysis (6)
4. Snúningur við endingu. (7)
5. Marðist einhvern veginn við fyrirhöfnina. (7)
6. Kurlaðir mýs einhvern veginn fyrir vafasaman
stjórnmálamann. (11)
8. OK í söngvamynd? (4,1,4)
11. Stækka stærð í atriði. (9)
12. Erlent sjónvarp, ís og vafasöm kona ná að
velja aðgerð með mús. (9)
13. Slæm fær járn með galla. (5)
17. Steiktur hjá vatnsbólinu. (11)
18. Birgjum far einhvern veginn hjá færum. (10)
19. Æri tröðin með safninu? (8)
20. Montinn og endist lengi. (7)
21. Messías tapar upphafi fyrir EM. (8)
22. Veit gin blandast við að láta í té. (7)
24. Með fisk erum að örva hægðir. (7)
25. Átök með ástríðu. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 13. mars
rennur út 17. mars. Nafn vinnings-
hafans birtist í blaðinu 20. mars.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi
krossgátunnar 6. mars er Jón Guðmundsson, Öldu-
granda 7. Reykjavík. Hann hlýtur að launum bókina
Bernska eftir Lev Tolstoj. Hávallaútgáfan gefur út.
Krossgátuverðlaun
Taflfélag Bolungarvíkur er Ís-
landsmeistari taflfélaga þriðja
árið í röð en Íslandsmótinu lauk
með spennandi lokaumferðum í
Rimaskóla um síðustu helgi. Lið
Bolvíkinganna var geysilega
sterkt með Jóhann Hjartarson á
fimmta borði og til marks um
breidd liðsins má geta þess að í
b-sveitinni, sem vann 2. deild,
voru Jón Viktor Gunnarsson,
Þröstur Þórhallsson, Dagur
Arngrímsson, Guðmundur
Gíslason og Halldór G. Ein-
arsson.
A-sveitin tapaði tveim viður-
eignum en miklu réð 8:0 sigur
yfir TR í 6. umferð. Þá voru úr-
slitin í raun ráðin þó Taflfélag
Vestmanneyja hafi náði að vinna
Bolana 4 ½: 3 ½ í síðustu um-
ferð. Lokaniðurstaðan varð
þessi:
1. Bolungarvík 42½ v. ( af 56 )
– 10 stig 2. Vestmannaeyjar 40½
v. – 12 stig 3. Hellir 39½ v. – 14
stig. 4. Fjölnir 30½ v. – 8 stig 5.
TR 23½ v.- 4 stig 6. Akureyri 21
v. – 5 stig 7. KR 16 v. 3 stig 8.
Haukar 10½ v. – 0 stig.
Í 2. deild vann B-sveit Bolvík-
inga öruggan sigur og færist upp
í 1. deild ásamt Mátum sem eru
gamlir félagar úr Skákfélagi
Akureyrar.
Í 3. deild sigraði Víkinga-
klúbburinn og í 4. deild vann
Skákfélag Íslands öruggan sigur.
Hvort Bolvíkingum tekst að
halda í allan sinn mannskap á
næsta keppnistímabili er óvíst.
Þeir verða með tvær sterkar
sveitir í efstu deild og hrópar sú
staðreynd á breytingar á keppni
þar sem mikil íhaldssemi hefur
ráðið ferðinni. Því er alls óvíst
að nokkrar breytingar nái í gegn
á næsta aðalfundi SÍ. Eðlilegast
væri að láta stig gilda. Annar
kostur er að banna tvær sveitir
frá sama félagi í efstu deild,
fækka sveitum í sex og láta þær
tefla tvöfalda umferð, t.d. á tíu
borðum.
Margar athyglisverðar viður-
eignir fóru fram um helgina,
ekki síst í baráttunni á toppn-
um. Það átti t.d. við þegar ný-
bakaður Reykjavíkurmeistari
mætti greinarhöfundi í við-
ureign TV og Hellis. Úr varð
snörp og spennandi viðureign:
Helgi Ólafsson - Björn Þor-
finnsson
Enskur leikur
1. c4 e5 2. g3 Rc6 3. Bg2 g6 4.
Rc3 Bg7 5. Hb1 Rf6 6. b4 O-o 7.
d3 h6 8. e4 Rd4 9. Rge2 c6 10.
O-O a5 11. a3 axb4 12. axb4 d5?!
Tvíeggjaður leikur. Eðlilegast
er 12. … Rxe2+ en Björn á það til
að hleypa öllu í bál og brand þó
traustari leiðir standi til boða.
13. exd5 Bg4 14. dxc6 e4 15.
cxb7 Ha2!?
Með hugmyndinni 16. Rxa2
Rxe2+ 17. Kh1 Rxg3+ og drottn-
ingin fellur. Gallinn við atlögu
svarts er að b7-peðið reynist
mikil ógn.
16. Rxd4!?
16. Bf4 kom einnig sterklega
til greina.
16. … Bxd1 17. Rxa2 Dxd4 18.
Be3!?
Annar möguleiki var 18. Hxd1
Rg4 19. Hb2 e3! með flókinni
stöðu.
18. … Dxd3 19. Hfxd1 Dxc4 20.
Hac1!
Vandi svarts er sá að 20. …
Dxa2 er svarað með 21. Hc8 og
vinnur.
20. … Da6 21. Hc7 Rg4 22. Bc5
Be5!
Þrátt fyrir erfiða stöðu hittir
Björn á bestu vörnina. „Rybka“
gefur nú upp að best sé 23. b5!
Da4 24. Rc3! Bxc3 25. Hc1 og svo
framvegis. Betra er 23. …De6 24.
Hc6 Df5 25. Rb4.
23. He7 De2?
Björn var í miklu tímahraki og
finnur ekki einu vörnina 23. …
e3! 24. Hxe5 De2!! t.d. 25. Hed5
exf2+ 26. Kh1 De1+! 27. Bf1 De4+
og þráskákar.
24. Hf1 Dxa2 25. Hxe5! Rxe5
26. Bxf8
Eftir 26. … Da7 27. Bd6 Dxb7
28. Bxe5 Dxb4 ætti hvítur að
vinna með hrók og tvo biskupa
gegn drottningu.
26. … Rd7 27. Hd1! Rb8 28.
Hd8 Rc6 29. Bc5+
- og svartur gafst upp.
Bolvíkingar Íslands-
meistarar þriðja árið í röð
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta