SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Side 43
13. mars 2011 43
skálda úti í heimi. Í þeim birtast skoð-
anir Thors og áhugamál, en líka skörp
greining á listaverkum sem hann fjallar
um.
Ég hafði tekið viðtöl við Thor og mynd-
að hann við ýmis tækifæri; myndrænni
maður var vandfundinn – eða mælskari.
Ég kynntist honum þó fyrst að ráði fyrir
níu árum, á íslenskri menningarhátíð í
Bonn í Þýskalandi þar sem ég sýndi
ljósmyndir af sögustöðum og hann var
að lesa upp. Einn daginn var íslenskum
hátíðargestum boðið í skoðunarferð um
Rínarhéruð og mættum við bara tveir:
það var eftirminnilegur dagur. Skáldið
var í essinu sínu, sögurnar flæddu og
ógleymanleg er hrifnæmin við fagra
staði í umhverfinu, eða inni á heimili
meistara Beethovens.
Þá kynntist ég líka fyrst einlægum
áhuganum sem Thor sýndi verkum
annarra listamanna, þótt þeir væru mun
yngri. Hann vildi sífellt vita meira og
fræðast – það var aðdáunarvert að upp-
lifa hjá manni á níræðisaldri.
Þá deildum við áhuga á ferðalögum og
upplifunum í slíkum reisum. Stundum
hringdi síminn og á enda línunnar var
Thor, kannski nýkominn frá Ítalíu og
vildi að við kæmum hingað upp sýningu
ítalsks ljósmyndara sem hann hafði
kynnst, eða hann vildi segja mér frá því
sem hann kynntist á Húsavík. Símtölin
urðu stundum löng.
Á síðustu vikum virtist Thor vera alls
staðar þar sem boðið var upp á fegurð
og fagrar listir – á hverjum tónleikunum
eftir aðra og á myndlistarsýningum.
Ekki að hann hafi verið ánægður með
allt: „Gervilist,“ fussaði hann yfir fram-
lagi sumra listamannanna á Kjarvals-
stöðum. Andi hans lyftist þó yfir verk-
um Kristjáns Davíðssonar og Kjarvals.
Á einum tónleikanna sagði Thor mér
frá ferð sem hann fór til Parísar og var
kátur; sagði ferðina hafa verið sér
hvatningu til að ljúka bók sem hann
vann að.
„Þetta er svo fallegt og stórkostlega
flutt,“ sagði hann svo með djúpri til-
finningu um sönglög Schuberts sem við
vorum að hlýða á. Hann lyfti síðan báð-
um höndum í kveðju – á flugi til hinstu
stundar, að njóta lífs og listar.
’
Thor reyndi
sífellt á
þanþol
orða, stíls og
hugsana, og ef
lesandinn gekk
inn í þann heim
með opinn huga
og móttækilegur
fyrir töfrunum,
var honum um-
bunað ríkulega.
Árið 1962 gengu þeir Svavar Guðnason og Thor saman í mótmælagöngu
1. maí. Thor skrifaði bók um Svavar og list hans.
Aldnir höfðingjar og gamlir félagar úr módernísku glím-
unni, Thor og Kristján Davíðsson listmálari.
Morgunblaðið/Sverrir
Hér var skáldið í essinu sínu, í stólnum sínum í stofunni heima,
umkringdur listaverkum og naut þess að segja frá og spjalla.
Morgunblaðið
Rithöfundurinn á
flugi í eldhúsinu
heima hjá sér.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Ljósmynd/Jim Smart